fimmtudagur
Allt að gerast
Díííí..... var að koma úr vel lukkaðri bæjarferð með Hörpu. Það er rosalegt að eiga svona stóran vinkonuhóp, mér finnst ég alltaf vera að leggja pening á stelpurnar fyrir einhverjum gjöfum... eins gott að ég er komin með aðra vinnu bara til að halda í við útgjöldin. Útskriftargjafir, brúðkaupsgjafir, skírnargjafir, ´til hamingju með barnið´ gjafir, afmælisgjafir, jólagjafir, innflutningsgjafir.... þær eru æði þessar elskur :-)
Það er semsagt útskrift hjá Karen seinnipartinn á laugardaginn. Jóhanna er líka að útskrifast og svo Stína mágkona í Reykjavík.... kemst því miður ekki þangað. Laugardeginum þarf ég að mestu að eyða inni í banka fyrir framan tölvuna, það verður næs. Svo er það veislan og ég verð að vinna um kvöldið.... Eins gott að allir mæti á Sveitta (verður frítt inn!!!!)
Skrapp í litun og plokkun um daginn.... alltaf jafn ógeðslega gaman að fara þangað. Engin smá brussa sem vaxaði á mér brúnirnar. Þegar hún reif ógeðið í burtu dofnaði hálft andlitið á mér og ég gat varla opnað augun á eftir.... þetta var ekki lítið sárt og svo borgar maður fyrir þessar pyntingar!!
Núna ætla ég að henda mér í langþráð bað, stytta nokkrar buxur, leggja mig jafnvel og fara svo að vinna.....
Annars er ég farin að huga að íbúðarkaupum.