fimmtudagur
Sjóndöpur og heyrnaskert
Ef ég hef einhverntíman átt eitthvert líf þá er það löngu liðið.... um þessar mundir fer ég í bankann kl.9-17, svo á Kaffi Akureyri frá 17-22 og svo bara heim að sofa! Já þetta er ansi huggulegt líf. Langar ekkert lítið til að skella mér í útileigu um helgina en draumurinn um eitthvert frí er mjög fjarlægur.
Annars þá hefur sjónin á mér og heyrnin versnað enn meira.... mátti nú varla við því. Læt fólk fá rör á barnum í staðin fyrir vodka í kók, gef fólki bjór í glas en ekki latte kaffi, vinka eins og óð menneskja í fólk sem ég held að hafi verið með mér í bekk en oftar en ekki reynist það vera miðaldra fólk ef ekki eldra.... svo er það bara hinn almenni misskilningur þar sem "ertu vangefin eða helduru að ég sé það" lúkkið ræður ríkjum.
Ég sakna Ástralíu meira en alls......!!!!!

sunnudagur
Næs
- Var ljúft að setjast á Amour eftir vinnu á föstudaginn og sötra bjór eftir ógeðslegan vinnudag.
- Vann á Kaffi Ak um kvöldið en var komin snemma heim þar sem mætingin var frekar dræm.
- Brunaði úr bænum með Bjössa á laugardaginn og heimsóttum við þau gömlu á nýja ættaróðalið í Aðardal. Vorum í góðu yfirlæti þar fram á kvöld en þá skelltum við okkur aftur í bæinn og ég fór að vinna.... Mun betri mæting þetta kvöldið og farið seinna að sofa.
- Eyddi deginum í dag á rölti og kjafti í Kjarna með vinkonunum, skelltum okkur svo í Brynju og nutum dagsins.... brilliant.
- Fór að vinna smá í kvöld og eyðilagði nokkrar pizzur.... jammm, litlan orðin pizzubakari á Kaffi Ak!
- Komst að því um helgina að mannkynið skiptist í tvo hópa: Þá sem þekkja mig og minn sjúka húmor og þá sem þekkja mig ekki neitt og telja mig vera illa þroskaheftan einstakling. Ég veit að ég er mjög misskilinn manneskja og er ég að hugsa um að halda því bara þannig.... heimurinn er of stór svo ég geti haldið öllum ánægðum!
- Er annars komin með hjartsláttatruflanir af ofáti og er að hugsa um að fara að æla....
föstudagur
Sturta.... já takk
Klukkan er 11 á föstudagskvöldi og ég var að vakna.... váá hvað ég er þreytt. Mun dröslast í vinnuna um eitt og halda fjörinu uppi fram eftir nóttu... líka á morgun.
Vona að fólk sé ekki búið að tapa gleðinni..... ekki húmornum heldur!!!

miðvikudagur
Ofsótt
Ekki veit ég hvar þetta endar..... Þóra gjörsamlega eltir mig hvert sem ég fer. Ekki nóg með það að hún hafi fundið út í fyrra að ég væri að vinna í Landsbankanum og þar með ákveðið að byrja að vinna þar heldur reyndi ég að flýja til Ástralíu til að fá smá frið frá konunni. Það gekk nú ekki betur en svo að hún sat við hliðina á mér í flugvélinni.... Náði að senda hana fyrr heim en um leið og ég mætti á klakann þá beið hún auðvitað eftir mér í bankanum. Ég fékk mér þá auka vinnu bara til að geta dreyft huganum.... já nei nei, kellingin skellti sér bara líka í þessa sömu aukavinnu og ekki nóg með það heldur náði hún að troða sér inná mínar vaktir líka.... ætli hún sniglist ekki í kringum húsið mitt á kvöldin bara til að sjá mér bregða fyrir!!
..... þetta er vangefið djöfullsins grey!!

mánudagur
Magnað helvíti
Það var vægast sagt tekið vel á því um helgina..... er enn að reyna að jafna mig!! Þarf virkilega að ritskoða myndirnar áður en þær fá að sjást á þessari síðu.
Skemmti mér konunglega við að hitta alla gömlu bekkjarfélagana á miðvikudagskvöldið og mætti svo meira en spræk í Höllina á fimmtudagskvöldið (þarf alltaf að troða mér allsstaðar og mætti galvösk uppá svið til að skemmta fólkinu)..... skemmti mér ógeðslega vel og hef svosem ekkert meira um það að segja. Mamma pínu svekkt að ég hafi ekki náð mér í einn gamlann bekkjarfélaga en það er bara augljóst að þeir eru ekkert skotnir í mér lengur!
Aldrei farið jafn snemma að sofa á 17. júní eins og í ár..... safnaði kröftum fyrir laugardagskvöldið þar sem ég fór á galeiðuna með Bjössa og vinum hans. Massa fínt kvöld, bara eins og helgin öll.
Simmi minn, ertu til í að senda mér mynir frá 15. júní..... enginn betri ljósmyndari en ég :-)

Þú gætir forskalast
Já fljótt skipast veður í lofti og það er kominn vetur. Sultardroparnir renna niður nefið á mér og það voru úlpa og vettlingar sem fengu að fara með í vinnuna í morgun.
Ég var að vinna í gærkvöldi og það var nánast ekki ein einasta sála sem kom inn.... þurfti samt að vera til kl. 1 þar sem menn á miðjum aldri lentu á trúnó við mig og ég fékk jarðarför konu annars beint í æð!
Í kvöld er svo bekkjarpartí sem mun enda með MA hitting á Amor.... á morgun er svo hin langþráða 5 ára útskriftarafmælisveisla, þar verður tjúttað. Fæ nú ekki frí í vinnunni þannig að greiðslumötin og íbúðarlánin verða ennþá fersk þegar ég mæti í Höllina. Býst við miklu stuði þessa komandi helgi og ég bið ykkur bara vel að lifa.

Í sól og sumaryl
Merkilegt hvað lífið verður miklu betra og skemmtilegra þegar veðrið er gott. Föstudagurinn var alveg meiriháttar og fórum ég, Auður og Þóra á Amor eftir vinnu og sötruðum öl..... þegar ég kom heim var verslaður hellingur af kjöti og sátum við úti í steikjandi hita og sól, borðuðum kjöt og skáluðum fyrir nýjum sumarbústað.
Vaknaði snemma á laugardaginn og skellti mér á námskeið niðrí banka, fékk mér Brynjuís en mætti svo galvösk í veislu til Karenar. Þar var dælt í okkur allskonar mat, áfengi og kökum og vorum við þar í góðu yfirlæti fram eftir kvöldi. Ég byrjaði að vinna klukkan 12 og var algjört tuskudýr það kvöldið... ekki alveg nógu góð stemmning en ég skemmti mér samt ágætlega við að týna glös, þurrka af borðum og spjalla við fólk.
Jæja, deginum í dag eyddi ég útá palli þar sem veðrið er búið að vera yndislegt alla helgina og ég mæti endurnærð í hitastækjuna í bankanum á morgun..... þarf svo að vinna annað kvöld þannig að það er nóg að gera :-)
Komst að því í veislunni hjá Karen að það er augljóst hver af okkur vinkonunum er vinsælust.... um leið og Birna mætti á svæðið varð allt kreisí. Fólk gjörsamlega stökk á hana, tók myndir af henni og lét eins og sjálfur Mick Jagger hefði mætt á svæðið. Ekki vildi fólk taka myndir af mér eða Eygló sem var að koma heim frá DK eða láta taka myndir af sér með okkur.... annars þá held ég að þetta hafi bara verið athyglissýki í Birnunni þar sem hún mætti klædd eins og lögga í veisluna!!!

Allt að gerast
Díííí..... var að koma úr vel lukkaðri bæjarferð með Hörpu. Það er rosalegt að eiga svona stóran vinkonuhóp, mér finnst ég alltaf vera að leggja pening á stelpurnar fyrir einhverjum gjöfum... eins gott að ég er komin með aðra vinnu bara til að halda í við útgjöldin. Útskriftargjafir, brúðkaupsgjafir, skírnargjafir, ´til hamingju með barnið´ gjafir, afmælisgjafir, jólagjafir, innflutningsgjafir.... þær eru æði þessar elskur :-)
Það er semsagt útskrift hjá Karen seinnipartinn á laugardaginn. Jóhanna er líka að útskrifast og svo Stína mágkona í Reykjavík.... kemst því miður ekki þangað. Laugardeginum þarf ég að mestu að eyða inni í banka fyrir framan tölvuna, það verður næs. Svo er það veislan og ég verð að vinna um kvöldið.... Eins gott að allir mæti á Sveitta (verður frítt inn!!!!)
Skrapp í litun og plokkun um daginn.... alltaf jafn ógeðslega gaman að fara þangað. Engin smá brussa sem vaxaði á mér brúnirnar. Þegar hún reif ógeðið í burtu dofnaði hálft andlitið á mér og ég gat varla opnað augun á eftir.... þetta var ekki lítið sárt og svo borgar maður fyrir þessar pyntingar!!
Núna ætla ég að henda mér í langþráð bað, stytta nokkrar buxur, leggja mig jafnvel og fara svo að vinna.....
Annars er ég farin að huga að íbúðarkaupum.

Helgin
Helgin leið svona eins og vanalega.... eins og smurt.
Á föstudagskvöldið var byrjað ansi snemma á bjórnum, fengum okkur eitt glas á meðan við vorum að klára vinnuna. Svo var það bara sölukynning og almenn gleði uppi sem endaði í tómu fyllerís rugli.... semsagt hjá öllum nema mér, ég var bara edrú þar sem ég fór að vinna á miðnætti. Var reyndar send heim klukkan þrjú þar sem ekkert var að gera og þá skellti ég mér á Amor með Hörpu. Það er greinilegt hvaða staður er inn og hver er ekki lengur nógu kúl.
Á laugardaginn ákvað ég að kíkja aðeins á hann Begga minn í Ogvodafone og kvöldinu var eytt í grillveislu og fór aftur að vinna um kvöldið. Gærdagurinn fór í þryf, súkkulaðikökuát og mikið kjaft.
Shitturinn titturinn hvað þetta er orðið leiðinlegt blogg.....

Auka job
Þá er maður búinn að redda sér smá auka vinnu og hef lokið fyrsta deginum... jájá, ég er farin að vinna á Kaffi Akureyri og átti mjög fróðlegt kvöld í gærkvöldi.
Kvöldið byrjaði með þessari venjulegu fimmtudagsstemmningu en það breyttist heldur betur.... staðurinn fylltist af einhverjum kennurum og mér fannst full mikið af mínum fyrrverandi háskólakennurum sem voru gjörsamlega á öndverðu meiði.... en koníak og vískí voru augljóslega drykkir kvöldsins og ég held að ég hafi bara reddað þessu nokkuð vel. Vann til 2 og er þess vegna frekar þreytt í bankanum núna. Svo er vinna í kvöld og annað kvöld, endilega allir að kíkja á mig :-)
Það er reyndar fíkniefna- og bjórsamkoma í bankanum í kvöld en ég verð bara að vera róleg.... fer nú samt sennilega í pool með Þóru áður en ég fer að vinna.
Bleble