<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Hæfileikalaus 

Aumingjagenin eru að byrja að brjótast fram eftir að hafa legið í góðum dvala.... hnerraköst og stanslaust nefrennsli, styttist sennilega líka í augnkláðann og almennan pirring.
Helgin var bara ljómandi og eftir að hafa horft á Hemma Gunn (ánægð með þetta come back) skelltum ég, Harpa og Lóa okkur í pool. Bara eitt um þetta að segja; ef ég hef einhverntíman haft eitthvað kúl þá er það gjörsamlega farið núna.... það er með ólíkindum hvað ég er hæfileikalaus og ógeðslega léleg í þessum leik. Æfingin skapar sko ekki meistarann.... ég hef spilað ófáa leikina og er alltaf jafn léleg. En svo var rétt kíkt inná Amor en ég fór bara snemma heim.
Jæja, Bjössi kom heim á laugardaginn og það var algjör snilld og á sunnudaginn eyddi ég deginum í að spila á tónleikum og í skrúðgöngu, skellti mér svo með fjölskyldunni í Aðaldalinn til að skoða sumarbústaði.
Núna er svo kominn mánudagur og það er bíó með Þóru í kvöld

This page is powered by Blogger. Isn't yours?