<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Maraþon 

Á mánudaginn ákváðum ég og Þóra að skella okkur í eitt úthverfi Brisbane sem nefnist Springwood. Það tók okkur um 20 mín að skrölta þetta í rútu. Aðal ástæða þessarar ferðar hjá okkur var draumur allra karlmanna (IKEA) og hrossabúð fyrir Þóru. Eftir að hafa skannað svæðið tók við löng ganga til að finna hestabúðina...... eftir laaaaangt labb fannst hún loks og vel sveitta Þóra fór hamförum í búðinni og verslaði grimmt. Þar sem við höfðum labbað svo langt vorum við alveg sannfærðar um að það væri varla langt að labba bara restina heim, þannig að við hófum gönguna...... löbbuðum ógeðslega lengi þangað til við sáum skilti og á því stóð að það væru 18 km til borgarinnar.... úfffff. En þrjósku við ætluðum ekki að gefast upp og löbbuðum heim. Til að gera langa sögu stutta þá einkenndist gærdagurinn af blöðrum og verkjum í fótum.... algjör sófadagur.

Annars er allt ljómandi gott héðan.... búin að sprengja blöðrurnar mínar og farin að geta labbað á ný! Erum búnar að bóka ferð til Rockhamton 13.desember. Það er svona kúrekafílingur; veiða naut í snöru, sofa undir berum himni, fara á hestbak, torfærur á fjórhjólum og svona huggulegheit. Þannig að í kvöld tilkynnum við Aumingjanum að við séum að fara frá honum og verðum ekki með honum um áramótin..... vona að hann verði ekki of sár!!

Ykkur að segja þá er ég komin með ógeðslega flottann brúnan lit á kroppinn..... er vel súkkulaðihúðuð og sæt :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?