<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Ekki eintóm hamingja 

Lífið er ekki bara leikur og síðustu dagar hérna hafa einkennst af tárum og miklum tilfinningalegum erfiðleikum. Kannski smá ýkjur en hér kemur smá saga.
Fyrir nokkrum dögum tilkynntum við Aumingjanum að við værum að fara frá honum þann 13. des, við spurðum hvort það væri ekki í lagi fyrir okkur að koma til hans aftur 19. des (eftir ferðina okkar) og fá að krassa í sófanum hjá honum í þrjá daga og verða svo samferða honum til mömmu hans þegar hann færi þangað þann 22. des.
Þetta var svo innilega ekki vandamálið. Næstu daga á eftir var hann samt ógeðslega fúll og talaði ekki við okkur, svona eins og hann væri móðgaður við okkur. Svo einn daginn tilkynnir hann okkur að hann væri kominn með nýjan leigjanda sem mun flytja inn um leið og við förum út (ekkert athugavert við það, auðvitað þurfti hann nýjan leigjanda). Hann ælir því svo útúr sér að hann fari til mömmunnar 17.des og þóttist ekkert muna eftir því að við höfum ætlað að vera í sófanum. Jæja, við spurðum þá hvenær mamma hans byggist við okkur og hann sagði að við mættum bara koma þegar við vildum og vera eins lengi og við vildum..... vááá! Við báðum hann þó um númerið hjá mömmunni til að tala við hana og sjá hvort það væri alveg pottþétt að við mættum vera eins lengi og við vildum hjá þeim. Kauði var sko ekki á því að láta okkur fá númerið og hann sagðist bara ætla að hringja í hana sjálfur.
Í gærkvöldi settist hann svo hjá okkur og tilkynnti það að mamma hans býst ekki við okkur lengur til þeirra um jólin..... hann sagði að þar sem við værum hættar að leigja þá bjóst hún við að við værum líka hættar við að mæta til þeirra. Ekki veit ég hverju Auminginn er búinn að ljúga í konuna og það er ekkert lítið sem þessi drengur er tregur. Það eina sem hann greinilega man frá samtalinu okkar var að við værum að hætta að leigja og hann hefur bara ákveðið að segja mömmunni að við ætluðum ekki að koma, þótt við hefðum sagt annað við hann.
Það greyp okkur því mikil óvissa í gær því þegar við komum úr ferðinni frá Rockhampton erum við heimilislausar (aumingjanum gat ekki verið meira sama). Við erum þó búnar að reyna að redda þessu og við hringdum í nýja leigjandann og hún ætlar að leyfa okkur að vera í sófanum í tvær nætur og svo náðum við að bóka okkur á gistiheimili eftir það og verðum þar um jólin.... reyna að gera það besta úr hlutunum.
Þannig að það eru sem betur fer bara tveir dagar eftir með þessum manni og þessum vesaling sem hangi hér í íbúðinni tímunum saman og spilar tölvuleiki við kauða.... get ekki beðið eftir að losna við þetta lið. Dvölin hér hefur samt verið yndisleg og það verður leiðinlegt að fara.

Núna fer bloggfærslunum að fækka.... ekkert frítt net lengur ;-) og við erum að fara á flakk. Förum 28.des til Gold coast og verðum þar til 6.janúar. Eftir það er ferðinni heitið niðureftir og við stefnum á að vera í Sydney 11. janúar. Endilega haldið áfram að senda mér bréf og commenta, alltaf gaman að heyra frá ykkur.

Segi þetta gott í bili og kveð að sinni :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?