<$BlogRSDUrl$>

laugardagur

Bland í poka 

Susssss, þá er maður farinn að skoða flug heim... það eru nú samt enn nokkrir mánuðir í mig en best að reyna að ná sem ódýrasta fluginu, það hélt ég allavega. Er búin að vera að tékka á flugi í maí og það ódýrasta sem ég fann með Singapore airline er á rúmlega 300.000 kall..... tja, hvað eyðsluna mína varðar hérna þá hef ég ekki efni á því. Fékk vægt sjokk þegar ég sá þetta en áttaði mig síðan á því að það eru til önnur flugfélög en þetta... ekkert samt meiri snilld en að fljúga með þeim, algjör draumur :-)

Gaman að segja frá því að það er eitthvað með mig og einkennisklædda menn í þessu landi.... þeir gjörsamlega flykkjast að mér og eru æstir í að tala við mig (nei amma, þeir eru ekki glæpamenn!). Þóra skilur mig eftir í smá stund og þá eru þessir menn all over me. Ég veit ekki hvort ég er svona rosalega krimmaleg eða bara svona sæt!!! mohahahah

Svo er ég líka að gera Þóru elskuna geðveika.... þeir sem þekkja mig vita að ég kalla svolítið mikið uppúr svefni, er alltaf eitthvað að rífa mig. Jammm, ég geri ansi mikið af því líka hérna og er farin að rífast í svefni á ensku.... ég held samt að Þóra hafi lúmskt gaman að þessu!!

En núna erum við komnar með bjór í hönd og Þóra er að skera niður kjúklinginn í Faijtas.... nammm. Já ætli það sé svo ekki bara pool í kvöld, hljómar allavega vel.
Segi þetta gott í bili.....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?