sunnudagur
Tíminn æðir áfram
Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt hérna. Við erum búnar að vera mjög rólegar síðustu daga en þó gert eitthvað. Skruppum á risastórt safn um daginn þar sem saga Ástralíu (aðallega Queensland samt) er skönnuð frá A-Ö... ofboðslega flott safn. Lentum inni í hópi af Japönum og ég hef alltaf haldið að þetta myndavélaæði þeirra séu ýkjur.... já nei nei, þeir tóku mynd af gjörsamlega öllu og ekki bara eina heldur heilan helling. Mér leið eins og ég væri stödd á diskóteki það var svo mikið að gerast.
Flugnabitin eru að breytast í einhverjar ógeðslegar harðar og risa stórar rauðar doppur.... ef fólk spyr hvaða ógeð þetta sé á handleggjunum á mér ætla ég að segja þeim að ég sé með herpes... mohhahahaha, gaman að sjá sviðinn á liðinu þá :-)
Skruppum aðeins út á lífið í gærkvöldi.... Fórum reyndar fyrst í bíó á Bridget Jones, hún er flott! Keyptum okkur kassa af bjór og sötruðum nokkra á svölunum áður en við skönnuðum skemmtistaðina. Feitu, gömlu dyraverðirnir voru ekki á því að hleypa okkur inná suma staðina þar sem þeir héldu að við værum með fölsuð skilríki... debetkort frá Landsbankanum!! En þessir ungu voru æstir í að fá okkur inn og við tókum nokkur góð múf á dansgólfinu á einum staðnum... Það var pínu Kaffi Akureyri fýlingur í liðinu, olbogaskotin út um allt en þarna bæta þau axlahnykkjum líka við.... mjög fróðlegt. Það er greinilegt að ég er ekki FM hnakki (hef alltaf vitað það en þarna fékk ég sönnun á því). DJ-inn skellti einhverju ógeðislagi á og lýðurinn gjörsamlega trylltist.... Þóra kunni þetta lag og söng hástöfum með. En þetta var klassa kvöld.
Já haldiði að það sé ekki bara komið á hreint hvar við verðum um jólin.... susssss, mamma Aumingjans alveg æst í að fá okkur þannig að við verðum vonandi í góðu yfirlæti hjá þeim. Almennilegt fólk þetta!!