sunnudagur
Byron Bay
Hæhæ, við erum komnar heim. Home sweet home!!
Komum aðeins fyrr en við ætluðum þar sem Byron Bay var ekki alveg það sem við vorum að leitast eftir. Þessi strönd er alveg ofboðslega flott og það er örugglega alveg þrusu fjör að fara þangað í skólaferðalag.... djamma á kvöldin og sofa svo á ströndinni á daginn. Okkur fannst full mikið að liggja bara á strönd í 4 daga, sérstaklega þar sem sólin hér í Ástralíu er svo sterk að hún grillar þig jafnt að utan sem innan á klukkutíma. Þannig að maður eyðir sko ekki heilum degi í sólbað..... já svo vantaði alla afþreyingu þangað þannig að við skelltum okkur bara heim aðeins fyrr. Gaman að hafa komið þangað og þetta er draumastaður allra 19 ára unglinga :-)
Brosið dofnaði aðeins af andlitunum okkar þegar við komum heim. Auminginn með vin sinn í heimsókn og sá ætlar að búa í sófanum fram á mánudag.... kjellingin henti honum út, hann á engan pening af því að hann hefur ekki neina vinnu, á hvergi heima og ætlar því bara að leggjast inná sjúkrahús!!! Þetta eru sko sannir karlmenn hérna.... en þessi vinur er semsagt búinn að vera nota klósettið okkar og í einu orði sagt er það ógeðslegt.... hann kláraði allan pappírinn þannig að við þurftum að byrja á því að kaupa klósettpappír þegar við komum heim. Já og svo þarf svo sannarlega að þrýfa klósettið, það er allt í ógeðslegum slettum eftir hann. Huggulegheitin að drepa kauða og hann blaðraði okkur í svefn í gær.
Við ætlum því að halda okkur utandyra í allan dag....