laugardagur
Bara mánuður...
Já við eigum bara eftir að vera í einn mánuð í Brisbane... guð hvað ég á eftir að sakna þessarar borgar ofboðslega mikið, mun kveðja með tárin í augunum. En við erum búnar að bóka okkur á gistiheimili á Gold coast um áramótin og munum því fagna nýju ári með því að stripplast í ströndinni :-)
Svo erum við búnar að gera gróft plan um ferðalagið okkar til Melbourne og stefnum á að vera komnar þangað í byrjun febrúar....
Annars er allt í lukkunnar velstandi hjá okkur gellunum. Fórum í gær og mátuðum helling af síðkjólum... það var bara stuð. Æðislegt að búa næstum því á stærstu verslunargötu borgarinnar :-) Svo étum við eins og svín, hlaðborð á Pizza Hut á 500 kall (pizzur, pasta, salat og ís)!!! Við erum að sjálfsögðu sannir Íslendingar, græðgin uppmáluð, þannig að við borðum þangað til við fáum hjartsláttatruflanir..... þetta er bara svo ódýrt!!
En það er ofboðslega erfitt að vera stelpa í svona borg.... við þurfum auðvitað að eiga öll flottustu fötin, skóna og töskurnar þannig að það er ekkert skýtið að ég sé að fara að senda 20 kíló af fötum heim!!!
Jæja ég ætla að koma mér í seinni sturtu dagsins og svo ætlum við að skella okkur í pool. Þurfum að finna okkur golfvöll bráðum og æfa höggin.... við munum rústa bankapúttmótinu á næsta ári ;-)
P.S. Ég hendi inn myndum óreglulega!!