sunnudagur
Raunarsaga ungs drengs
- Ég lenti í næst síðasta sæti, fattaði stundum ekki að þetta væri púttmót og tók góða sveiflu þannig að það tók ansi mörg högg að koma kúlunni í holuna.... en ánægð með þennan árangur.
- Mættum á svæðið í STÆLON bolunum okkar og vöktum mikla lukku að vanda.
- Fengum bara tvo bjórmiða á mann.... þá þýðir ekkert annað en að hnupla fleiri miðum og það tókst ljómandi vel, allavegna nóg af bjór.
- Löbbuðum úr golfskálanum og í bæinn... fórum á Kaffi Ak. Einhver ógeðsleg hljómsveit að spila en söngvaranum leist vel á mig og var óspart að láta mig syngja með sér.
- Mikið af ógeðisköllum að reyna við Fjólu þannig að ég tók málin í mínar hendur.... fékk reyndar olbogaskot í nefið í hamaganginum og er enn að reyna að jafna mig.
- Fékk góða fylgd heim og er mjög ánægð með kvöldið.
Í gær hékk ég svo með Fjólu uns við ákváðum að skella okkur með Birnu í löggupartí.... löggupartí eru aðeins öðruvísi en önnur partí þar sem löggurnar eru duglegar við að taka stöffið með sér heim sem er gert upptækt á stöðinni.... meina, þetta er allt frítt eins og Birna sagði. Enduðum að sjálfsögðu á Sveitta... Þegar lokaði varð Birna að fá sér eitthvað að borða... en hún hætti snarlega við þegar hún sá röðina. Því fundum við eitt saklaust fórnarlamb; ungur drengur á röltinu með pizzukassa. Ég hóf samningarviðræður við kauða og sættumst við á að við myndum skutla honum heim með því skilyrði að hann gæfi okkur með sér af pizzunni. Stráksi sættist á það og hoppaði uppí bílinn.... ég opnaði kassann og byrjaði að borða en strákurinn opnaði munninn og byrjaði að tala, kærastan hafði dömpað honum um kvöldið og hann var í sárum sínum. Birna vorkenndi stráknum svo mikið að hún hafði ekki samvisku í að fá sér sneið af pizzunni.... en ég fór södd og sæl að sofa :-)
Núna er ferðinni heitið í bíó.... einhver svakaleg ástarsaga skilst mér, en bara gaman að því ;-)