<$BlogRSDUrl$>

laugardagur

Laugardagskvöld 

Er að taka mig til fyrir afmælisteitið hennar Lindu.... hún varð semsagt 25 á fimmtudaginn og Elísa skvísa átti líka afmæli þá, 20 ára... til hamingju stelpur mínar!
Allavegna, ég, Harpa og Fjóla skelltum okkur á Amor fyrr í dag og fylgdumst með landsleiknum með öðru auganu en fjölmennu gengi blökkumanna með hinu. Þegar við svo yfirgáfum staðinn komumst við ekki hjá því að labba framhjá genginu... þá komu þrír þeirra hlaupandi að okkur með videocamerur og sögðust vera frá MTV að mynda lífið á Akureyri og Reykjavík.... af lúkkinu að dæma virtust þeir heldur betur vera að ljúga að okkur, þar sem restin af genginu stóð eins og illa gerðir hlutir og sötruðu pilsner þóttu þeir ekki líklegir til stórafreka.... það var þó fínt að spjalla við þá og einn þeirra náð sko 100% hvað við heitum og kvaddi okkur með því að segja; bæbæ Hannah (Fjóla), Hairskar (Harpa) og Casey (ég)!!

En þetta verður ekki lengra í bili.... er farin á sukk með Lindu og hennar vinum :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?