mánudagur
Kata dyravörður
Kemur enn eitt týpískt mánudagsblogg.... fyllerí helgarinnar.
Var reyndar hrikalega róleg á föstudagskvöldið, fór heim til Lindu og við horfðum á video og borðuðum MIKIÐ af nammi... Linda gæti opnað sjoppu heima hjá sér miðað við það magn sem er til þar, ekki leiðinlegt.
Laugardeginum eyddi ég með Stefaníu og litla krílinu hennar honum Kristjáni.... mikill töffari þar á ferð. Þann daginn hélt nammiátið svo sannarlega áfram, gott að spjalla og borða nammi :-)
Eftir að hafa legið í ljósum og pottinum með bjór í annarri og Birnu og Hörpu í hinni, slógum við upp teiti í Grenilundinum.... eftir miklar umræður hringdi Axel, sem er dyravörður á Kaffi Svita og kærasti Lindu, í mig og bað mig um að koma og hjálpa til í dyrunum þar sem það væri klikk að gera. Auðvitað var ég tilbúin til að hjálpa og því var haldið í bæinn. Þarna stóð ég í dyrunum, óeinkennisklædd og við hliðina á Axel... hann skoðaði miðana hjá fólkinu en ég ákvað að taka miðana og fólki fannst í raun ekkert athugavert við það, að ég væri að hnupla miðunum af þeim..... Þannig að núna á ég helling af miðum á Kaffi Svita sem ég get selt svart... ef ykkur vantar miða þá hafiði bara samband ;-)
Gærdagurinn fór svo í sjónvarpsgláp, pönnukökuát og bíóferð.... Man on Fire er þrusu góð. Talandi um bíómyndir, fór á Notebook um daginn og það er einhver sú rómantískasta mynd sem ég hef séð... þvílíkt æðisleg!!