fimmtudagur
Síðasti vinnudagurinn
Þetta atvik fékk mig til að rifja upp þegar ég og Karen vorum einu sinni að leika okkur með flugu. Eins og lög gera ráð fyrir þá slitum við að sjálfsögðu af henni vængina svo hún myndi ekki reyna að flýja.... við bjuggum til þetta flotta virki handa henni í gluggakistunni. Svo fengum við hálfgerða leið á að horfa á hana gera ekki neitt þannig að við ákváðum að gefa henni sykurmol að borða.... hún var ekkert of hrifin af honum þannig að við klipptum af henni lappirnar líka og settum hana ofaná molann svo hún myndi borða hann..... að lokum þá sprakk flugan!!! Bara snilld :-)
Í dag er síðasti dagurinn minn hér í bankanum.... en ég kem alltaf aftur, mohhaaaaa
mánudagur
Hagræðingar
Eins og dyggir lesendur hafa tekið eftir er ég búin að taka til í linkunum á síðunni minni... hefur án efa ekki farið framhjá neinum. Henti því liði út sem kallar sig bloggara en gerir ekkert í því, aðrir eru á síðasta séns. Líka komnar síður aðeins um Ástralíu sem ég á eftir að laga.
Svo er það hún Þóra partner.... jújú, hún Þóra elskan ætlar að koma með mér til Ástralíu og ég get sagt ykkur það að henni ömmu minni er mikið létt.... og auðvitað er ég sjálf mjög ánægð. Þannig að við munum gera allt kreisí þarna í útlandinu.
Annars var helgin góð.... Lóa og Guðbjörg alltaf sömu snillingarnir og stóðu fyrir sínu. Einn viðskiptavinur bankans kom til mín á föstudagskvöldið, hrikalega ánægður með mig og ákvað að deila því með mér að kærastan hefði haldið fram hjá honum. Sýndi mér líka sms sem hún skrifaði honum þar sem sleikjuskapurinn var í hávegum hafður, hann svaraði henni í sama dúr... ógeðslegt. Ég þekki þennan dreng ekki nokkurn skapaðan hlut og sagði honum að hætta þessum aumingjaskap og senda ´fuck you´ á gelluna.... hitti hann aftur seinna um kvöldið, hann hafði sent henni eitt nett ´fuck you´ og var að deyja úr stressi hvernig hún myndi taka því..... hverjum er ekki sama!!
Já svo er ég svo klár að það er með ólíkindum.... komin með gestabók og læti, þannig að nú þarf að kvitta :-)
fimmtudagur
Lykt eða bragð
Eitthvert það ógeðslegasta málverk sem ég hef séð hangir núna uppi í bankanum.... það er eins og manneskja hafi verið bombuð upp og inniflunum og öllu draslinu dúndrað á vegginn!
Lóa, Jóhann og Guðbjörg ætla að koma norður um helgina, þá mun enn ein heiðarlega tilraunin vera gerð til að stúta lifrinni....
þriðjudagur
Sprautufíkill
mánudagur
Kata dyravörður
Var reyndar hrikalega róleg á föstudagskvöldið, fór heim til Lindu og við horfðum á video og borðuðum MIKIÐ af nammi... Linda gæti opnað sjoppu heima hjá sér miðað við það magn sem er til þar, ekki leiðinlegt.
Laugardeginum eyddi ég með Stefaníu og litla krílinu hennar honum Kristjáni.... mikill töffari þar á ferð. Þann daginn hélt nammiátið svo sannarlega áfram, gott að spjalla og borða nammi :-)
Eftir að hafa legið í ljósum og pottinum með bjór í annarri og Birnu og Hörpu í hinni, slógum við upp teiti í Grenilundinum.... eftir miklar umræður hringdi Axel, sem er dyravörður á Kaffi Svita og kærasti Lindu, í mig og bað mig um að koma og hjálpa til í dyrunum þar sem það væri klikk að gera. Auðvitað var ég tilbúin til að hjálpa og því var haldið í bæinn. Þarna stóð ég í dyrunum, óeinkennisklædd og við hliðina á Axel... hann skoðaði miðana hjá fólkinu en ég ákvað að taka miðana og fólki fannst í raun ekkert athugavert við það, að ég væri að hnupla miðunum af þeim..... Þannig að núna á ég helling af miðum á Kaffi Svita sem ég get selt svart... ef ykkur vantar miða þá hafiði bara samband ;-)
Gærdagurinn fór svo í sjónvarpsgláp, pönnukökuát og bíóferð.... Man on Fire er þrusu góð. Talandi um bíómyndir, fór á Notebook um daginn og það er einhver sú rómantískasta mynd sem ég hef séð... þvílíkt æðisleg!!
miðvikudagur
Eftir 22 daga....
... mun ég vera í flugvél á leið til London (aldrei að vita nema ég hafi félagsskap)
... mun ég hafa það hrikalega huggulegt með Hörpu Hrönn í London (og þessum ákveðna félagsskap ef allt gengur að óskum), ég neflilega ELSKA London :-)
... mun ég bíða með hnútinn í maganum á Heathrow og heyra kallað í vél til Singapore (Félagsskapurinn verður vonandi ekki langt undan).... svo mun ég eyða næstu 22 klukkutímum í flugvél!
Svona líður tíminn nú hratt.... annars er gjaldkera-Kata bara að gera góða hluti, skrapp uppá skjúkrahús í hádeginu og lét fjarlægi smá hluta af mér.... já fitusogið virkar eins og smurt á mig ;-)
Ekki er búið að bjóða mér í neina gleði um næstu helgi... bíð eftir einhverju spennandi boði!!
sunnudagur
Raunarsaga ungs drengs
- Ég lenti í næst síðasta sæti, fattaði stundum ekki að þetta væri púttmót og tók góða sveiflu þannig að það tók ansi mörg högg að koma kúlunni í holuna.... en ánægð með þennan árangur.
- Mættum á svæðið í STÆLON bolunum okkar og vöktum mikla lukku að vanda.
- Fengum bara tvo bjórmiða á mann.... þá þýðir ekkert annað en að hnupla fleiri miðum og það tókst ljómandi vel, allavegna nóg af bjór.
- Löbbuðum úr golfskálanum og í bæinn... fórum á Kaffi Ak. Einhver ógeðsleg hljómsveit að spila en söngvaranum leist vel á mig og var óspart að láta mig syngja með sér.
- Mikið af ógeðisköllum að reyna við Fjólu þannig að ég tók málin í mínar hendur.... fékk reyndar olbogaskot í nefið í hamaganginum og er enn að reyna að jafna mig.
- Fékk góða fylgd heim og er mjög ánægð með kvöldið.
Í gær hékk ég svo með Fjólu uns við ákváðum að skella okkur með Birnu í löggupartí.... löggupartí eru aðeins öðruvísi en önnur partí þar sem löggurnar eru duglegar við að taka stöffið með sér heim sem er gert upptækt á stöðinni.... meina, þetta er allt frítt eins og Birna sagði. Enduðum að sjálfsögðu á Sveitta... Þegar lokaði varð Birna að fá sér eitthvað að borða... en hún hætti snarlega við þegar hún sá röðina. Því fundum við eitt saklaust fórnarlamb; ungur drengur á röltinu með pizzukassa. Ég hóf samningarviðræður við kauða og sættumst við á að við myndum skutla honum heim með því skilyrði að hann gæfi okkur með sér af pizzunni. Stráksi sættist á það og hoppaði uppí bílinn.... ég opnaði kassann og byrjaði að borða en strákurinn opnaði munninn og byrjaði að tala, kærastan hafði dömpað honum um kvöldið og hann var í sárum sínum. Birna vorkenndi stráknum svo mikið að hún hafði ekki samvisku í að fá sér sneið af pizzunni.... en ég fór södd og sæl að sofa :-)
Núna er ferðinni heitið í bíó.... einhver svakaleg ástarsaga skilst mér, en bara gaman að því ;-)
fimmtudagur
Púttmót
Laugardagskvöldið mun að öllum líkindum líka fara í drykkju, þýðir ekkert að bregða út af vananum.... bara 4 helgar eftir á klakanum og um að gera að nýta þær!!
Einn vel sveittur koss til þín Karen mín, til hamingju með daginn :-) Karen er einmitt annar helmingur Íslandsmeistaranna í strandblaki, Birna er hinn!! Til hamingju gellur :-)
Á morgun er litun og plokkun og svo klipping snemma á laugardagsmorguninn.... verð svaka pæja á laugardagskvöldið, það er Sveitti með Birnu og Fjólu :-)
mánudagur
Enginn drepinn
Dabbi: Halló
Ég: Blessaður kappi, hvar ertu eiginlega?
Dabbi: Ég er uppí Hjallalundi.
Ég: Hjallalundi? Af hverju? Ætlaðiru ekki að hitta mig og Jónas í Nætursölunni?
Dabbi: Kata, það er fólk sem heldur mér niðri....
Ég: What?
Dabbi: Viltu hringja á lögguna Kata... þau halda mér niðri.
Ég: Bíddu, var löggan ekki að elta þig áðan... á ég núna að hringja í lögguna?? Ertu viss.
Dabbi: Kata, viltu að ég deyji??
Ég: Nei það vil ég auðvitað ekki.... en ef þau halda þér niðri, hvernig náðiru að svara í símann??
Dabbi: Þau sögðu mér að svara.... hringdu í lögguna!!
Kona í símanum: Hver er þetta??
Ég: Hver ert þú?
Konan: Hver ertu?
Ég: Kata heiti ég, en hver ert þú?
Konan: Magga og er í löggunni
Ég: Hvað eruð þið að gera við Dabba?
Þá var skellt á......
Úffff, ég og Jónas vorum að fíla okkur eins og við værum stödd í Practis þætti. Vorum bara í ruglinu þarna fyrir framan Nætursöluna. Við ákváðum þó að hringja í lögguna og þá tók Jónas símann og talaði við eina gamla löggu....
Lögga: Lögreglan
Jónas: Já ég ætlaði að athuga hvort þið væruð með Davíð Þór Helgason í haldi.
Lögga: Nei
Jónas: Nú, hann hringdi neflilega í okkur og sagðist vera í haldi hjá ykkur.
Lögga: Nei
Jónas: Ertu alveg viss um að Dabbi sé ekki þarna hjá ykkur.
Lögga: Já
Jónas: OK, bless
Við vissum svo innilega ekkert hvað við áttum að gera þannig að við fórum bara heim.... Aldrei verið jafn ánægð að sjá í textavarpinu að enginn hafi verið drepinn á Akureyri þessa nótt.
laugardagur
Laugardagskvöld
Allavegna, ég, Harpa og Fjóla skelltum okkur á Amor fyrr í dag og fylgdumst með landsleiknum með öðru auganu en fjölmennu gengi blökkumanna með hinu. Þegar við svo yfirgáfum staðinn komumst við ekki hjá því að labba framhjá genginu... þá komu þrír þeirra hlaupandi að okkur með videocamerur og sögðust vera frá MTV að mynda lífið á Akureyri og Reykjavík.... af lúkkinu að dæma virtust þeir heldur betur vera að ljúga að okkur, þar sem restin af genginu stóð eins og illa gerðir hlutir og sötruðu pilsner þóttu þeir ekki líklegir til stórafreka.... það var þó fínt að spjalla við þá og einn þeirra náð sko 100% hvað við heitum og kvaddi okkur með því að segja; bæbæ Hannah (Fjóla), Hairskar (Harpa) og Casey (ég)!!
En þetta verður ekki lengra í bili.... er farin á sukk með Lindu og hennar vinum :-)