<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur

Komandi helgi 

Well well well.....
Ég er búin að komast að því að ég er kvennkostur mikill. Á þriðjudagskvöldið réði ég mig sem kokk heim til Þóru og eldaði ofan í hana, Hörpu og Ingu Berglindi.... já reyndar elduðum ég og Þóra saman, báðar mjög góðir kostir :-) Þetta heppnaðist ljómandi vel og enduðum við kvöldið á því að horfa á Shallow Hall, mögnuð mynd!
Jæja, annars er mest lítið að frétta og er ég nánast komin á þá skoðun að pilla mér suður á laugardagsmorguninn.... þannig að ef ykkur langar að hitta mig þá bara hafið samband :-) Reyndar verður Halla frænka farin til DK og mun ég því ekkert sjá hana fyrr en ég kem heim... vóó það er langt. Svo er hinn helmingur minn að fara til Svíþjóðar á sunnudaginn, já kveðjustundirnar nálgast óðfluga.
Annars þá er auðvitað mennningarnótt í borginni á laugardaginn og þar sem ég skemmti mér konunglega á henni í fyrra, langar mig að skella mér aftur núna.... Kaffi Vín er málið þar sem Öndin mun fara hamförum!!

Svo er ég búin að setja inn nokkrar myndir frá kveðjuhófinu um síðustu helgi... tékk it át undir Ástralíumyndir!!!

Gaman að segja frá því að póstkortið sem Eygló og Karen skrifuðu til Hörpu þegar þær voru staðsettar í Danmörku fyrir nákvæmlega mánuði síðan er komið til skila..... ég vil meina það að pósturinn eigi hrós skilið því á póstkortinu stóð að viðtakandinn væri:
Harpa Birgis
Heima hjá mömmu og pabba í einhverju gili númer eitthvað
603 Akureyri
Island

Þvílík endalaus snilld :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?