<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Já ég er vangefið djöfullsins grey 

Sjaldan verið jafn fegin að hafa ekki boðið draumaprinsinum mínum í mat í gærkvöldi.... ég ætlaði þó að hafa það huggulegt og elda mér kjúklingabringur og sulla þeim saman við góða sósu. Þetta heppnaðist þó ekki betur en svo að bringurnar enduðu úti í tunnu. Ég tók þær semsagt út úr frystinum og þar af leiðandi voru þær gadd freðar. Jújú, við búum svo vel að eiga örbylgjuofn þannig að ég var ekki lengi að dúndra bringunum þar inn, stillti ofninn á 25 mín og setti í gang. Á meðan hafði ég það bara huggulegt í tölvunni og hlakkaði til að fá góðan mat.... jæja, svo fór ég fram hálftíma seinna þar sem bringurinar áttu að vera tilbúnar..... greit, hafði stillt ofninn á high en ekki defrost og því voru bringurnar búnar að vera á bullandi suðu og ég skal sko segja ykkur það að þær lyktuðu eins og soðin ýsa en litu út eins og fjögur dvergvaxin albinóafóstur.... endaði þetta kvöld á ristuðu brauði, líter af ís og American Pie.
Held að ég skelli mér í mat til ömmu í kvöld.....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?