þriðjudagur
Skotapils
Kominn tími á smá blogg.... ég tækla kannski helgina fyrir ykkur.
Ég og Fjóla fórum í bíó á föstudaginn og sáum Farenheit 9/11, hún var drullu góð. Eftir bíóið fórum við á smá rúnt og þar sem það var frítt inn í Sjallann fórum við þangað, var háskóla get to gether.... vægast sagt stór furðulegt lið, sérstaklega leðurklæddi Pólverjinn sem gerði ekkert nema reykja pípu.... örugglega hasspípa.
En ég og Fjóla vorum að gera góða hluti þarna inni.... eins edrú og hægt er að hugsa sér og ég í íþróttagallanum, vantaði bara derhúfuna. En það var hellingur af liði þarna inni... eftirminnilegastur er hann Toni minn, já kauði var í skotapilsi og eins og lög gera ráð fyrir var hann ber undir því.... bara flottur :-)
Á laugardaginn komu svo Þóra og Fjóla til mín (Stefanía og Inga Hrefna voru ekki að nenna að hanga með okkur)... ég og Þóra blönduðum bollu sem minnti allra helst á hinn fræga svepp sem gerði landann óðann hér fyrir nokkrum árum, ógeðslegt. Það var svo bara allt gert kreisí á Kaffi Akureyri og skriðið heim í rúm seint og síðar meir.
Settið er komið heim frá útlandinu og gáfu mér hrikalega flottan jakka.... hann er aðeins of lítill þar sem ég er búin að vera full dugleg við að safna forða í sumar.... forðinn er orðinn það vænn að ég þarf ekkert að borða í Ástralíu!!

föstudagur
Fegurð
Það er ekki leiðinlegt þegar karlkyns viðskiptavinir bankans minnast á hvað maður líti vel út, að maður sé með fallegt andlit, brosi svo fallega, sé svo yndislegur persónuleiki að maður ætti að gerast geðhjúkrunarkona, hvað lífið er yndislegt þegar þeir koma í bankann og sjá mig..... Fyrir utan það að einu mennirnir sem segja þetta eru svo veikir á geði að þeir þurfa að taka margar pillur á dag til að halda sér temmilega normal eða þá að gaurinn er þroskaheftur, hefur aldrei stundað kynlíf og þess vegna er hormónaflæðið mun meira en eðlilegt getur talist, eiginlega bara skuggalegt.
En það er skárra að heyra þetta frá illa sjúku fólki heldur en að heyra það ekki.... held ég allavegna!
En, hér eru smá myndir frá menningarnóttinni og hérna eru svo mun fleiri myndir....
Góða helgi :-)

Já ég er vangefið djöfullsins grey
Sjaldan verið jafn fegin að hafa ekki boðið draumaprinsinum mínum í mat í gærkvöldi.... ég ætlaði þó að hafa það huggulegt og elda mér kjúklingabringur og sulla þeim saman við góða sósu. Þetta heppnaðist þó ekki betur en svo að bringurnar enduðu úti í tunnu. Ég tók þær semsagt út úr frystinum og þar af leiðandi voru þær gadd freðar. Jújú, við búum svo vel að eiga örbylgjuofn þannig að ég var ekki lengi að dúndra bringunum þar inn, stillti ofninn á 25 mín og setti í gang. Á meðan hafði ég það bara huggulegt í tölvunni og hlakkaði til að fá góðan mat.... jæja, svo fór ég fram hálftíma seinna þar sem bringurinar áttu að vera tilbúnar..... greit, hafði stillt ofninn á high en ekki defrost og því voru bringurnar búnar að vera á bullandi suðu og ég skal sko segja ykkur það að þær lyktuðu eins og soðin ýsa en litu út eins og fjögur dvergvaxin albinóafóstur.... endaði þetta kvöld á ristuðu brauði, líter af ís og American Pie.
Held að ég skelli mér í mat til ömmu í kvöld.....

sunnudagur
Menningin
Já já ég skrapp í Borgina í gær og kom heim áðan.... mjög stutt stopp. Nenni ekki að skrifa neitt en nenni ekki heldur að fara að sofa, reyndar get ég ekki sofnað þrátt fyrir mikla þreytu... Í fyrsta lagi er ég búin að éta svo mikið í dag að ég er komin með hjartsláttatruflanir, held að þetta endi í hjartaáfalli. Já og svo er ég ein heima og það er merkilegt hvað ég er orðin myrkfælin með aldrinum.... ímynda mér allskonar viðbjóð og er sannfær um að einhver subbulegur kall hangi á gluggunum mínum... gott að fara að sofa með þessar hugsanir í hausnum. Kannski ekki nema von að mig dreymi ógeðisdrauma. Uppáhalds draumurinn er þegar ég er að slást við einhvern kall, dreg svo upp hníf og sting kallinn í magann, þá hallar hann sér fram og því kjörið færi til að taka hnífinn og stinga honum á kaf í hausinn á náunganum... hlakka til að prófa þetta einn daginn.
En já, menningarnóttin.... sá fullt af skemmtilegum viðburðum sem ég nenni ekki að telja upp. Getið bara lesið dagskrána og giskað. En eftir að hafa horft á massa flugeldasýningu var ferðinni haldið á Kaffi Vín þar sem var drukkinn bjór og tjúttað við Öndina.... svo var að sjálfsögðu farið í skrúðgöngu og þetta var algjör snilld.
Það var ansi mikið af furðulegu liði þarna til dæmis tvær 18 ára buddur. Þar sem ég er nú jafnaldri þeirra lentum við á rosa spjalli sem þróaðist útí það að ég var að reyna að sannfæra þær um að Latína og rúsneska er ekki lykillinn að velgengni eins og þær virtust vera heilaþvegnar af. Þarna voru líka tveir náungar sem sögðust vera frændur, voru mjög nánir og undir lokin voru þeir að reyna að sannfæra mig um að samband þeirra væri bara fallegt.... það var ekkert fallegt við það sem ég sá í þessu sambandi þeirra, sérstaklega ekki eftir að þeir voru búnir að lemja mig svoleiðis sundur og saman í rassinn að mig var farið að verkja og reyna í leiðinni að sannfæra mig um að gista heima hjá þeim.... hmmm.
Ála tók massa fyndavélaflipp þetta kvöld og ég er nokkuð sannfærð um að ég og Steinunn séum á allavegna annarri hvorri mynd.... bara eins og í fyrra. Var semsagt þursu fjör þetta kvöld :-)
Endaði svo þessa blessuðu Borgarferð á McDonalds með Omma í Quarashi....

fimmtudagur
Komandi helgi
Well well well.....
Ég er búin að komast að því að ég er kvennkostur mikill. Á þriðjudagskvöldið réði ég mig sem kokk heim til Þóru og eldaði ofan í hana, Hörpu og Ingu Berglindi.... já reyndar elduðum ég og Þóra saman, báðar mjög góðir kostir :-) Þetta heppnaðist ljómandi vel og enduðum við kvöldið á því að horfa á Shallow Hall, mögnuð mynd!
Jæja, annars er mest lítið að frétta og er ég nánast komin á þá skoðun að pilla mér suður á laugardagsmorguninn.... þannig að ef ykkur langar að hitta mig þá bara hafið samband :-) Reyndar verður Halla frænka farin til DK og mun ég því ekkert sjá hana fyrr en ég kem heim... vóó það er langt. Svo er hinn helmingur minn að fara til Svíþjóðar á sunnudaginn, já kveðjustundirnar nálgast óðfluga.
Annars þá er auðvitað mennningarnótt í borginni á laugardaginn og þar sem ég skemmti mér konunglega á henni í fyrra, langar mig að skella mér aftur núna.... Kaffi Vín er málið þar sem Öndin mun fara hamförum!!
Svo er ég búin að setja inn nokkrar myndir frá kveðjuhófinu um síðustu helgi... tékk it át undir Ástralíumyndir!!!
Gaman að segja frá því að póstkortið sem Eygló og Karen skrifuðu til Hörpu þegar þær voru staðsettar í Danmörku fyrir nákvæmlega mánuði síðan er komið til skila..... ég vil meina það að pósturinn eigi hrós skilið því á póstkortinu stóð að viðtakandinn væri:
Harpa Birgis
Heima hjá mömmu og pabba í einhverju gili númer eitthvað
603 Akureyri
Island
Þvílík endalaus snilld :-)

mánudagur
Marblettir
Já það mætti halda að einhver hafi sett nauðgaralyf í drykkina mína á föstudagskvöldið, nýtt sér ástand mitt út í ystu æsar og murkað svoleiðis úr mér lífið.... allavegna er ég svo marin eftir þetta kvöld að ég ákvað að mæta í kafaragalla í vinnuna í morgun til að hylja áverkana. Alveg skuggalegir þessir marblettir....
Annars var föstudagskvöldið svaka fínt.... ég, Þóra og Auður gerðum þessa fínu bombuárás uppá skotsvæði og var ég svo sannarlega tekin í gegn eftir það. Alltaf verið að nýðast á manni. Það var heljarinnar fjör þarna uppfrá, mikið sungið og spilað á gítara.... en svo var haldið í bæinn. Þar var byrjað að dæla í mig og Auði einhverjum drykk í grænu hylki.... viss um að þetta hafi verið nauðgaralyfið því minnið er ekki svo gott eftir þetta. En eitt veit ég að ég var ekki að fara á kostum þetta kvöld og bið ég vissa aðila fyrirgefningar á því.
Að sjálfsögðu varð ég líka að kíkja út á laugardagskvöldið.... eftir að hafa legið úti á palli allan daginn og létt soðið á mér skinnið ákváðum ég og Fjóla að skella okkur til Grenivíkur þar sem Birna og heitmaður hennar voru í góðum gír..... kannski full góðum því við komumst aldrei til Grenó heldur eyddum hluta af kvöldinu á Slysó, Tóti full grófur í barnaleiktækjunum. Ekki létum við það á okkur fá heldur fórum í partí til einhvers sem ég veit ekkert hver er.... þar nánast sofnaði ég í sófanum þannig að ég ákvað að fara heim. Þegar ég kom heim var Bjössinn og félagar hans að taka sig til og ætluðu að halda í bæinn þannig að ég bauðst til að skutla þeim.... þegar þangað var komið var allt liðið mætt í bæinn og í góðum gír þannig að ég hætti við að fara að sofa og ákvað að slást í för með þeim.... fórum á Sveitta og svitnuðum mikið.
Í gær var bongó blíða eins og síðustu daga þannig að ég og Fjóla skelltum okkur í göngutúr.... byrjuðum á því að hitta Hlyn og Tona á Bláu könnunni, yndislegir drengir báðir tveir. Allt í einu ákvað Hlynur samt að sýna mér á sér bringuna.... já hann var með sár á henni eftir mig, ég semsagt beit hann í bringuna á föstudagskvöldið....
En jæja, það er kominn enn einn mánudagurinn og ég er að huXa hvað ég eigi að gera um næstu helgi..... það er menningarnótt og huggulegheit fyrir sunnan. Já ég er að melta þetta.
Annars þá eiga þau gömlu 30 ára brúðkaupsafmæli í dag :-) Já þau eru bara töffarar!

Föstudagurinn þrettándi....
Síðustu daga hef ég semsagt verið að sinna starfi gjaldkera og hefur það gengið svona upp og ofan.... yfirleitt hef ég bara verið í tómu rugli, magnað helvíti. Þar sem ég nenni nú yfirleitt ekki að sitja við helvítis tölvuna allan daginn þá stend ég stundum. Já maður myndi nú halda að það væri hrikalega huggulegt, en neinei.... þar sem ég er svolítið smávaxin þá næ ég ekki almennilega uppá blessað borðið (það er í frekar hallærislegri hæð) þannig að ég hangi einhvernvegin á því og þarf svo að slengja brjóstunum uppá borðið þar sem þau hvíla eina og tveir sláturkeppir.... En þessi pína mun senn taka enda og í kvöld ætlar bankinn að bjóða okkur á enn eitt fylleríið og fíkniefnasamkomuna.... mun þessi samkoma meðal annars innihalda riffla og sprengjuvörpur, já ég mun sko fá útrás í kvöld!!
þriðjudagur
Sifjaspellsmótið
Það er greinilega öllum drullu sama um þessa blessuðu Mærudaga, hef ekki náð að gera söguna nógu spennandi.... En mér gæti ekki verið meira sama þannig að ég ætla að klára þessa sögu.
Þegar við vorum búnar að finna svona temmilega sléttan blett á tjaldstæðinu tók ég kúlutjaldið uppúr pokanum.... æðislegt, tjaldið var myglað!!! Vissum ekki alveg hvað við áttum af okkur að gera á þessum tímapunkti. Mættar til Húsavíkur og höfðum ekki hugmynd um hvað við vorum að gera þarna og núna var tjaldið búið að svíkja okkur.... við hringdum í Fjólu til að tékka hvort hún væri ekki til í að fara í bíltúr og taka með sér eitt tjald.... já og Hauk. Það var neflilega hann sem ætlaði á þessa hátið en ekki við, en endaði með því að hann komst ekki, bara ég og Harpa.... magnað helvíti. Jæja, ekki vildi Fjóla rúnta til Húsavíkur þannig að ég og Harpa slóum þessu uppí kæruleysi, helltum í okkur nóg af bjór og fórum á galeiðuna....
Húavík er mjög sérstakur bær.... þetta er í raun bara ein stór fjölskylda, allir eru skyldir og þekkja þar af leiðandi alla... það var ansi augljóst að við værum ekki Húsvíkingar og vöktum því nokkra athygli :-) Ég vil meina að þarna hafi sifjaspell dauðans verið framið. Kræst, minnir bara á fólkið sem býr lengst frá öllu og þarf að sofa hjá pabba sínum eða bróður til að fjölga mannkyninu.... og ef þeir eru ekki til staðar þá er það bara hundurinn.... nei OK djók.
Jæja.... en kvöldið heppnaðist vel og við skemmtum okkur konunglega á þessari skemmtun þrátt fyrir að hafa þurft að sofa í bílnum..... bara gaman að þessu :-)
Núna er bara vinnuleiði í gangi.... er verið að setja mig sem gjaldkera, ekkert rosa sátt. En það styttist í útlöndin þannig að þetta er bærilegt....

Mærudagar og matarboð
Hér sit ég, heima hjá mér á sunnudagskvöldi og frekar uppgefin eftir helgina, enda frekar lítið sofið vegna ákveðinna aðstæðna.... meira um það hér á eftir. Ætla að byrja á réttum stað og segja ykkur frá matarboðinu sem Líney hélt á föstudagskvöldið. Það var sko ekkert slor, margra klukkutíma át þar sem Líney hristi fram úr erminni hvern klassa réttinn á fætur öðrum..... legið var hver um annan þveran fram á kvöld eða þar til ákveðið var að sýna sig á skemmtistaðnum Ali. Þar voru nokkrir leikir tæklaðir í góðra vina hóp.... Birna var á vakt og var eina leiðin til að hitta hana að vera með eitthvert vesen. Ég dróg því upp hnúgujárnið mitt og fór að lemja Karen, þá varð Grjónið alveg kreisí og eitt leiddi af öðru.... að lokum var kallað á lögguna og við náðum þá loksins að spjalla smá við Birnu, reyndar í járnum en það var þess virði....
Laugardagurinn var góður. Haukur náði að sannfæri mig á föstudaginn að Mærudagar væru málið þannig að ég og Harpa lögðum upp í road trip. Fórum í Jarðböðin, borðuðum á ZanZibar og enduðum daginn á Húsavík.... reyndar var þetta ekki alveg svona einfalt. Fundum semsagt tjaldstæðið, lögðum við hliðina á Geirmundi Valtýs, opnuðum bjór og bjuggumst við partíi á tjaldstæðinu.... en nei. Þarna voru bara fjölskyldur og útlendingar og við fengum sko lúkkið frá þeim.... já og Harpa fékk sko lúkkið frá Geirmundi eftir að hafa tekið gríðarlegt magn mynda af bílnum hans, en tók ekki eftir að hann var inní honum allan tímann.... ekki skrýtið að maðurinn hafi flúið af tjaldstæðinu..... Jæja, þá var komið að því að tjalda þessu glæsilega kúlutjaldi sem var með í för... en SHIT...!!!!!
Æi er farin að sofa, skrifa restina seinna...

Brjánn Hróbjartsson
já, reynið að segja Brjánn Hróbjartsson upphátt.... hahaha, magnað helvíti þetta nafn. Þetta er uppáhalds nafnið okkar Bjössa, búin að fíbblast mikið með þetta.... pælið í að heita þessu nafni, úfff.
Jæja, allavegna. Eyddi gærkvöldinu með Hörpu, samkynhneygðum vini hennar Sollu frænku (Hann heitir Jón.... Harpa er ekki samkynhneygður vinur Sollu frænku) og kærastanum hans. Fékk massa magavöðva eftir þetta kvöld vegna mikilla hlásturskasta... ekkert nema snillingar þar á ferð.... Jón er semsagt Englendingur en er búinn að læra íslensku í nokkurn tíma og er ekkert smá góður.... hann var fullur í gær en gat samt sagt Brjánn Hróbjartsson fimm sinnum í röð án þess að mismæla sig.... Þessir homma vinir mínir eru æði :-) Langar nú bara mest til að fara suður á morgun á Gay pride..... nei ég er ekki að koma út úr skápnum!!
Gaman að segja frá því að í dag eru nákvæmlega 2 mánuðir þangað til ég verð að spóka mig í London með Hörpu Hrönn og í kvíðakasti yfir því að fara ein út í rassgat.... vááá, hvað ég hlakka til. Þannig að það eru bara 2 mánuðir í helvíti hjá ykkur.... mohhhaaaa
Svo er það dinner hjá Líney í kvöld..... munum skála fyrir afmælisbarni dagsins sem er fjarri góðu gamni... til lukku Eygló mín :-)

miðvikudagur
Klúður
Frekar dræmt að gera þessa dagana í vinnunni þannig að ég er að hugsa um að drita niður einu atviki sem ég lenti í hér í vinnunni um daginn þegar ég svaraði í símann og gæti orsakað það að fólk hættir í viðskiptum hérna.... þroskaheft manneskja farin að svara í símann. En allavegna, svona fór samtalið okkar:
Ég: Lands..... afgreiðslan
Maður: Landsafgreiðslan, það munar ekkert um það.
Ég: Já einmitt (roðna eins og ég veit ekki hvað og flissa ein sog 15 ára gelgja)... öhhhh, get ég eitthvað hjálpað þér?
Maður: Já..... blablabla
Ég: já einmitt, get ég sótt þig?? ..... daaaaaa..... uhhh, ég meina sko, náð í þig??...... í síma sko (kræst Kata, ertu þroskaheft)
Maður: uhhhhh..... já.
Svo slúttaði ég símtalinu með því að bjóða honum út að borða.... bara til að toppa þetta helvíti!

Versló
Í stuttu máli skal ég segja ykkur það að Verslunarmannahelgin heppnaðist mjög vel og eins og svo oft áður ætla ég að drita þessu niður í punktaformi:
- Föstudagurinn fór í rólegheit þar sem ég hlóð batteríin fyrir komandi kvöld.
- Á laugardaginn hélt ég í bæinn með Stefaníu og Kristjáni í bongó blíðu... hlustuðum á fullt af góðum hljómsveitum og loksins fékk ég að sjá Nylon á sviði.... vona bara að ég eigi aldrei eftri að lenda í því aftur. Svo endaði ég á kaffihúsi með Lóu, Jóhanni og Guðbjörgu þar sem við sleiktum sólina og sötruðum bjór.... Skellti mér svo heim í grill og í partí til Lóunnar.
- Kvöldinu eyddum við semsagt heima hjá Lóu í mjög góðu yfirlæti. Svo var haldið á Oddvitann þar sem Ný dönsku fór á kostum..... þvílíkir töffarar!! Þar inni var gjörsamlega troðið og allt morandi í fólki sem ég þekki :-) Enduðum kvöldið á góðu rölti um bæinn.
- Sunnudagurinn einkenndist af þreytu en ég skellti mér bara til ömmu í kaffi og fékk nóg af kröftum hjá henni..... bauð svo nokkrum vel völdum einstaklingum á pallinn heima. Eftir góða bjórdrykkju var farið í bæinn. Fólkið fór held ég flest allt inná Sveitta en ég ráfaði um bæinn með Hauk og ákvað hann að bjóða mér líka á rúntinn, þannig að við hoppuðum uppí næsta strætó og rúntuðum um..... mikið fjör. Svo tríttlaði ég ínná Sveitta og dansði við eitt lag og . Spjallaði við mikið af fólki og meðal annars fyrrverandi tengdamömmu mína..... frábær kona þar á ferð. Ég, Harpa og Haukur komum okkur svo heim einhverntíman þegar langt var liðið á mánudaginn.....
- Dagurinn í gær fór í svefn og mikla leti.....