fimmtudagur
Hrísey
Hríseyjarhátíðin er framundan og væri ég svo sannarlega til í að skella mér. Hef farið tvö síðustu ár og skemmt mér alveg glimmrandi vel.... að vísu er eitt sem eltir mig hvað þessa hátíð varðar en það er dauðinn. Jammm, í fyrra skiptið stóðum ég og Gulli og horfðum á þegar traktor reyndi að kremja Karen, Grjóna og Líney... ekki fögur sjón og voru þau ansi krambúleruð eftir þetta. Í fyrra var ég svo næstum því myrt þegar eitt stykki feitur, sköllóttur karl tók mig hálstaki og bjó sig undir að henda mér í höfnina, auðvitað barðist ég um og beit hann eins fast og ég gat.... var marga daga að plokka skinntætlurnar úr tönnunum eftir þetta... óskemmtileg lífsreynsla.
Þannig að þetta árið ætla ég bara að hafa hægt um mig heima....
Þannig að þetta árið ætla ég bara að hafa hægt um mig heima....