<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Eitthvað minna 

Fékk góðar fréttir í gær.... settið er búið að útiloka mig. Ætlaði að fá ferðatryggingu í gegnum fjölskyldutrygginguna sem þau eru búin að vera að borga í ótal ár. En neinei, ég er ekki skráð í Akurgerðið... flott, sendi bara gamla manninn á þau á morgun!

Það eru tvær ógeðslegar auglýsingar í gangi í sjónvarpinu.... safnaðu 5 lokum af Mjúkís og þú færð eina ísskeið í staðin. Hver kaupir sér fimm lítra af ís til þess að fá eins ísskeið, sjálf myndi ég hreinlega bara kaupa mér þess blessuðu skeið. Sennilega mun ódýrara. Já og svo er það Nissan auglýsingin.... viltu poka. Ég gæti gubbað þegar ég sé manninn sem leikur sölumanninn í þessari auglýsingu og ef ég hefði ekki góða reynslu af Nissan bílum myndi ég aldrei kaupa mér svoleiðis bíl.... úffff.

Annars er allt í fúl swing... fólk sprautandi á sig ilmvatni eins og það eigi lífið að leysa, hvað er betra...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?