<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Ég er nammisjúk 

Veit ekki alveg hverju ég á að ljúga að ykkur í dag.... kannski ég komi aðeins inná síðustu helgi. Semsagt þá var hún Fjóla að útskrifast sem snyrtifræðingur á laugardaginn og ákvað að koma norður og fagna þeim áfanga með mér, Hörpu, Elsu, Ragga og Líney. Elsa og Fjóla sáu algjörlega um drykkjuna en ég var akandi og sá um að koma bittunum á milli staða.... Það er svo sem ekki frásögufærandi hvað gerðist þetta kvöld nema Hólmar kom til mín á Kaffi Akureyri og spurði hvort ég væri á AA fundi..... svo fór hann að segja að ég mætti alls ekki hætta að drekka þar sem ég væri svo leiðinleg edrú!!!! Frábært, er að hugsa um að gerast dagdrykkjumanneskja. Já og svo kvaddi ég Hlyn endanlega þetta kvöld þar sem hann sagði að við myndum sennilega aldrei hittast aftur.... ég trúi því nú samt ekki.

Þótt ég sé ekki alkóhólisti þá er ég nammisjúk.... ég er búin að vinna hér í bankanum í 5 vikur og búin á þeim tíma að bæta á mig 5 kílóum. Þetta lofar bara góðu, ég á eftir að vinna í svona 12 vikur í viðbót þannig að maður verður orðinn lögulegur í enda sumars :-)
Svo auðvitað nenni ég ekki að hreyfa mig. Sit fyrir framan tölvu allan daginn og sundlaugin sem ég ætlaði að stunda í sumar hefur gjörsamlega setið á hakanum af því að mér finnst miklu notarlegra að liggja í baði..... og borða nammi!

mánudagur

Útlendingar 

Já kallið mig bara rasista....
Hvað er að gerast á þessu blessaða landi? Ekki nóg með það að einhverjir tveir aumingjar ákveði að bjóða sig fram til forseta landsins heldur er Hæstiréttur að leyfa allskonar lýð að setjast að hér á landi....eru engin takmörk. Ég er persónulega á móti því að útlendingar geti bara komið til landsins og sest hér að eins og ekkert sé... ekkert mál að taka við flóttafólki og einhverjum útlendingum (ættleiddum krökkum og svona) en það eru sko takmörk Þetta er svo lítil þjóð og áður en við vitum af verða hreinræktaðir Íslendingar geymdir í búrum til sýnis... já við erum í útrýmingarhættu. Frábært að lettneskur nauðgari og morðingi fái að ganga um götur borgarinnar eins og ekkert sé. Eigum við ekki nóg með geðveika Íslendinga svo við séum ekki að taka geðveika útlendinga uppá arminn líka.... djöfullsins vitleysa. Það er svo margt í þessu; trúarbrögðin sem fylgja þessu liði til landsins, fólk er ekkert að aðlagast heldur mætir á svæðið með sína siði og venjur.... huggulegt!!!

Húsið mitt verður sennilega brennt og ég myrt í nótt....

laugardagur

Kosningar 

Já þá er kosningadagurinn runninn upp og mun ég, ásamt fjölskyldu minni, ganga til kosninga og setja krossinn minn fyrir framan nafnið hans Ólafs.... Horfði á svakalegann grínþátt í sjónvarpinu í gær sem nefdist Forsetakosningarnar 2004. Þvílíkt og annað eins. Þessir tveir hálfvitar sem eru í framboði á móti Ólafi hafa greinilega ekki hugmynd um, um hvað forsetaembættið snýst og á tímabili voru þeir farnir að hjálpa hvorum öðrum að svara.... þvílíkur brandari. Þær gætu ekki einu sinni sinnt þessu embætti þótt þeir væru tveir saman.

Fjóla mín útskrifast í dag sem snyrtifræðingur og er sennilega á leiðinni Norður núna og ætlum við að fagna með henni í kvöld :-)

föstudagur

Nýr 

Ég bíð spennt eftir svæsnum sögum úr undirheimum Akureyrar þar sem Birna er byrjuð að blogga frá löggustöðinni.... Þetta verður spennandi :-)

....já svo er ekkert að gera í vinnunni þannig að ég er búin að dunda mér við það að henda fólki upp í stafrófsröð.

fimmtudagur

Kuldi 

Frábært.... konurnar í vinnunni telja mig endanlega klikkaða og mér tókst að fá 6 þeirra til að kúgast í hádegismatnum áðan.
Það er alkunna að ég borða bara kjöt og fisk, ekkert gras kjaftæði. Svo í matnum deildi ég því með vinnufélögunum að mér þætti hrossakjöt ofboðslega gott.... kræst, ég veit ekki hvert þær ætluðu en ég veit alveg hvert maturinn sem þær voru með uppí sér ætlaði. Þvílíkt og annað eins hneyksli....hrossakjöt. Þetta eru allt rosalegir hestavinir, það er nú ekki eins og ég hafi verið að éta kettina þeirra....væri reyndar alveg til í að smakka svoleiðis kjöt.... Já ég er talin afbrigðileg með meiru!!

Líney skvís á afmæli í dag.... til hamingu :-)

Annars þá snjóaði í nótt....ekki nema 24.júní þannig að það er bara eðlilegt!!!

mánudagur

Ó borg mín borg.... 

Ég og Harpa skelltum okkur semsagt í borgina eftir vinnu á föstudaginn þar sem ég var alveg æst í að komst í veisluna hennar Höllu. Þar sem ekkert útvarp er í bílnum var gettóblasterinn tekinn með og skiptumst við á að þeyta skífum.... Harpa krassaði svo hjá Lóu en ég fór til Gísla og Stínu.
Laugardagurinn var tekinn í Kringlunni þar sem nammibarinn í Hagkaup var skannaður og nokkrar aðrar búðir.... Svo var það veislan þar sem allt var morandi í ættingjum, áfengi og eiturlyfjum. Halla var stórglæsileg að vanda og frumsýningin á kærastanum tókst vel.... Frábær dagur í alla staði.
Ætlunin var að fara í partí til Lóu og skella sér svo í bæinn með stelpunum en þar sem ég lá útúr dópuð inná klósetti með Gossa eftir of stóran sprautuskammt, varð aldrei af því. En fréttir herma að stelpurnar hafi skemmt sér konunglega....
Vaknaði svo á sunnudagsmorguninn með glóðurauga á báðum og æluna í hálsinum.... deginum var eytt í helstu sjoppum borgarinnar og áður en haldið var úr bænum var tilvalið að kíkja á Hebba og fá sér ís. Tussulegheitin voru umlukun okkur Hörpu og Fjólu þegar við brunuðum úr bænum með blasterinn í botni og nammibirgðir dauðans.... ánægjuleg ferð þetta allavegna!!

Stefanía mín átti afmæli í gær....til hamingju með það sæta. Var svo tjónuð að ég gat ekki hugsað í gær, enda efast ég um að þú hafir viljað heyra í mér ;-)

föstudagur

Sultardropar 

Gleðilega þjóðhátíð í gær alle sammen. Að venju skrapp ég niður í bæ til að sjá nýstúdentana sprella....djöfull var kalt. Tveggja gráðu hiti og horið lak úr nefinu á mér eins og það fengi borgað fyrir það.... En þetta er ómissandi liður.
Í dag er ár síðan litla prinsessan hún Sunna Kristín fæddist.... já tíminn líður sko hratt. Það er aldrei að vita nema maður skelli sér í afmælisveislu til píunnar! Já og tilnefni sjálfan sig sem bestu frænku árþúsundsins í leiðinni.... þetta er allt í vinnslu og við sjáum bara til hvernig þetta endar alltsaman.


miðvikudagur

Drep 

Ég er búin að vera að velta því fyrir mér uppá síðkastið í hvað allir þessir peningar sem bankinn sankar að sér fara og ég hef komist að tvennu.... þeir fara ekki í laun til mín og ekki í loftræstingu bankans. Ekki veit ég hvað þessir menn ætla sér en mig er farið að gruna að þeir séu að reyna að drepa okkur starfsfólkið smám saman. Þetta mun vera kvalarfullur dauðdagi þar sem fólk í tuga tali mun detta niður úr súrefnisskort.... tja, þá þarf nú bara að leggja bankann niður og þeir sleppa við að borga fólki laun....ekki það að þá muni eitthvað um þessar hlægilegu launagreiðslur. Já ég er sannfærð um að einn daginn mun ég kafna hérna inni, kannski skárra en margt annað... ég meina, maður þarf nú að drepast úr einhverju!

mánudagur

Góð helgi 

Þá er maður formlega orðinn viðskiptafræðingur....
Eftir útskrift og myndatökur á laugardaginn var ferðinni haldið heim þar sem fullt af frábæru fólki gladdi mig með nærveru sinni. Birna kom seinna um kvöldið þar sem stelpan var að útskrifast sem íþróttafræðingur, já flottar við, báðar að útskrifast. Ég fékk fullt af fallegum gjöfum og meðal annars áritaða mynd af Larry Bird... ekki leiðinlegt það. Harpa og Gulli hugsa greinilega eins (þeim þykir ég augljóslega gráðug) þar sem þau gáfu mér bæði gjafakort á Tikk takk.... namminammm.
Það var ýmislegt merkilegt sem gerðist en ég held að það sem standi uppúr sé hann Páll Axel frændi minn sem var fullur.... drengurinn er átta ára. Greinilega mjög barnvænleg veisla hjá mér! Já það var sko nóg af bjór og hvítvíni á svæðinu og ég vona að allir hafi skemmt sér jafn vel og ég. Er búin að henda inn nokkrum myndum, undir eldri myndir. Þessi blessuðu myndaalbúm eru alltaf með einhver leiðindi við mig.... en kemur sennilega meira inn seinna.
Við enduðum svo á Kaffi Akureyri, auðvitað, þar sem Solla frænka átti ekki til orð yfir þeim furðufuglum sem voru á svæðinu. Annar var maður bara í tómu rugli þar eins og venjulega en skemmti mér þó mjög vel.... Lóa splæsti svo á mig Tikk takk þar sem ég gleymdi gjafabréfunum heima, Lóa ég bíð þér uppá einn seinna ;-)

Takk fyrir daginn allir saman :-)

fimmtudagur

Afmælisdagur 

Já, hún Halla mín á afmæli í dag.... til hamingju elskan. Hún er auðvitað enn í fyrsta sæti á lista ættarinnar þrátt fyrir að hafa misstigið sig smá ;-)

Hlakka til að sjá þá sem sjá sér fært að mæta til mín um helgina og vonandi munum við skemmta okkur vel!!!

þriðjudagur

Svolítið móðguð 

Get ekki sagt annað en að Halla Björg frænka sé eitthvað að klúðra málunum núna... kellan hringdi í mig um daginn og tilkynnti mér það að hún kæmi ekki í veisluna mína, og ástæðan... jú, kærastinn er að koma í heimsókn!! Ekki nóg með það að hann sé frá Danmörku heldur er hann svartur í þokkabót....Einmitt, hin svokallaða besta frænka tekur danskan blökkumann fram yfir mig. Vona að hann sé þess virði!! Ætla að endurskoða forgangsröð ættarinnar aftur, já Halla mín, sjáum hvar þú lendir þá....!!!
Bjössinn er kominn heim, stoppaði í 2 daga en fór þá til Þorlákshafnar og verður þar í sumar.... kemur reyndar heim um helgar til að halda mér félagsskap.

Annars vil ég óska Birnu og Tóta innilega til hamingju með trúlofunina :-) Myndarlegt par þar á ferð!!

föstudagur

Bjútí trítment 

jújú, mín bara búin að panta sér tíma í litun og plokkun á morgun (slökunarmeðferð dauðans...) svo er það bara klipping og litun föstudaginn fyrir útskrift. Já maður verður huggulegur þarna í Höllinni ásamt fullt af öðrum bjútíum... sérstaklega ef kvikindið sem er að brjótast út úr hökunni á mér hefur hægt um sig um næstu helgi.
Svo þarf maður nú að fara að versla sér ný gleraugu. Allt að gerast í peningamálunum... ætla samt að grafa tvær holur. Peningarnir munu verða settir í aðra og ég mun vera í hinni...kem sennilega ekki uppúr holunni nema til að vinna, fara í sund og gera hluti sem kosta ekki peninga....vúhú :-) Sé fram á magnað sumar!!

miðvikudagur

Phle 

Já dagurinn í gær var með þeim leiðinlegustu....vinnudagurinn sko. Það er algjör dauði að vera á símanum og þurfa að segja helvítis sömu setninguna endalaust oft.... ´Landsbankinn góðan dag.´ Var orðin veeeel pirruð við símann.
Fór í sund eftir vinnu því planið er að fara alltaf eftir vinnu með Hörpu... er semsagt búin að fara fjórum sinnum og lofar þetta góðu. Því í fyrra ætlaði ég líka að fara í sund eftir vinnu en fór semsagt sjö sinnum (og þar með talið tvisvar sem ég fór uppí laug en nennti svo ekki ofaní.... hmmm, þannig að fimm sinnum í fyrra). Jájá, þetta er ekkert nema jákvæð þróun.

Allar einkunnir komnar og ég er glöð....
Svo er Bjössinn að koma til landsins á föstudaginn....enn meiri hamingja!!

þriðjudagur

Símamær 

Mætt í bankann enn eina ferðina og í dag var ákveðið að setja mig á skiptiborðið.... þannig að ef þið hringið þá svara ég, fátt huggulegra! Þannig að í dag verð ég kölluð Bella símamær og er þessi brandari alltaf jafn fyndinn. Ég er búin að sitja hérna í hálftíma og er búin að lenda á allavegna þremur furðufuglum....Svo þegar ég er ekki almennilega vöknuð þá fatta ég ekki það sem fólk er að biðja um og þess vegna kæmi mér ekki á óvart ef þeir sem hringt hafa í morgun haldi að þeir hafi hringt á Klepp.
Annars var helgin góð... matarboð á laugardagskvöldið sem heppnaðist rosalega vel og svo sólbað í gær sem heppnaðist líka bara nokkuð vel.
Nenni ekki að skrifa meira....pósturinn er líka kominn og ég þarf að gera eitthvað við hann, ekki það að ég hafi einhverja hugmynd hvað... en það kemur vonandi í ljós.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?