mánudagur
Próflestur
Alveg er þetta merkilegt..... ég held að ég þjáist af athyglisbrest. Á mjög erfitt með að sitja kyrr og einbeita mér að því sem ég á að vera að gera. Held samt að ég hafi drekkt þeim heilasellum sem eftir voru í ógeði.... greyin að reyna að berjast fyrir lífi sínu en nei; hamborgarar, pizzur, brauðstangir, ís, bernessósa, franskar, nammi og gos. Þetta hefur allt hjálpast að við að drepa það fáa sem eftir var í höfðinu á mér.... eftir situr ung stelpa með athyglisbrest og magasár vegna of mikils sukklífernis.
Ef allt gengur að óskum (ég sé ekki fram á annað) þá mun ég spóka mig hér um næstu jól og áramót ásamt nokkrum öðrum.... ekkert að því :-)
Ef allt gengur að óskum (ég sé ekki fram á annað) þá mun ég spóka mig hér um næstu jól og áramót ásamt nokkrum öðrum.... ekkert að því :-)