<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

3ggja daga helgi 

Þá er vinnuvikan hin fyrst á enda.... var ansi mögnuð og í dag ákvað Lalli að láta mig hafa umsjón með einhverjum fótboltaklúbb, hmmm veit ekki alveg um hvað það snýst en vona svo innilega að það snúist ekki um að taka fólk í fótboltakennslu....sjáum til hvernig þetta endar!!
Ég er búin að plana að liggja á pallinum heima alla helgina í sólbaði og klára að lesa ævisögu Nelson Mandela...annaðkvöld verð ég í grilli heima hjá Helenu. Ála ætla að mæta norður og Dabbi og Íbbi munu einnig gleðja okkur með nærveru sinni.... fátt betra en að sitja úti í góðu veðri að kvöldi til, sötra bjór og spjalla við gott fólk.... aldrei að vita nema maður líti á skemmtistaði bæjarins.
Er fyrst núna að átta mig á því að það er löng helgi... semsagt frí á mánudaginn. Skildi ekkert í því af hverju allir voru alltaf að tala um að gera hluti á þriðjudaginn. Kræst, ég ætlaði sko að mæta á mánudaginn og vinna mína vinnu....Hvítasunnuhelgi, hver fattar það!!!
Núna er ég hins vegar farin út í sólina.... 3ggja daga helgi :-) Sweeeet

þriðjudagur

Brjóst 

Skil ekki af hverju konur sem eru tja VEL yfir kjörþyngd með stór brjóst, ganga ekki í brjóstahöldurum... OK ég veit að ég get ekki alhæft þetta en mikið ofboðslega er þetta algengt.... og ógeðslegt. Veit ekkert verra en að horfa á stóra og mikla konu arka um götur bæjarins þar sem júllurnar eru á flegi ferð fram og til baka, upp og niður. Svo mæta þær í bankann, eru oftar en ekki bara í stuttermabol þannig að geirvörturnar standa beint út í loftið...önnur snýr í norður en hin suður. Þetta þarf maður að horfa uppá og brosa á meðan ekkert annað kemst að í höfðinu á manni nema hvort það fáist ekki nógu stórir brjóstahaldarar eða hvort að konur sem eru að vissri stærð geti hreinlega ekki gengið í þess konar apparati... svo snúa þær sér við og ganga í burtu og ég þakka guði fyrir að konur skuli bara vera með tvö brjóst!

mánudagur

Landsbankinn 

Þá er maður mættur í þá merku stofnun The National Bank of Iceland, já það er nú frekar huggó og æðislegt að hitta þetta lið aftur... ég hef engu gleymt og svoleiðis rúlla hverju verkefninu upp á fætur öðru :-)
Ég og Harpa ákváðum að fara aðeins út á lífið á laugardagskvöldið þar sem við nenntum hvorugar að hanga heima og horfa á sjónvarpið... enduðum í rosa fjöri á Kaffi Akureyri og áttum skemmtilegar samræður við Gumma og Trausta um HE-MAN. Hann Baldur kallinn var líka þarna í gúddí fíling...voru þarna verðandi læknar að skemmta sér.
Í gær voru svo útskriftartónleikarnir hans Dabba og drengurinn er alveg þrusu góður á kontrabassann, Ála mætti meira að segja í bæinn bara til að hlusta á kappann... Baldur mætti líka þangað en var ekki í alveg jafn góðum fíling og kvöldið áður en samt mjög hress....auðvitað.
Allt stefnir í dinner um næstu helgi með þotuliði Akureyrar og þá verða grillaðar nautalundir og fínerí...

laugardagur

Bitch fight 

Ég held að engar teiknimyndir séu jafn mikill klassi og HE-MAN... Við eigum 3 spólur með þessum þáttum og ég og Harpa ákváðum í gærkvöldi að horfa á tvo þætti... fór pabbi þá ekki út í skúr og fann alla HE-MAN kallana sem við systkinin áttum þegar við vorum yngri og það var engin smá hrúga... að auki fann mamma HE-MAN partí hatta og glös sem notuð voru í afmæli hjá Gísla 1983... þvílík snilld :-) Þannig að í gær var sannkallað HE-MAN þema partí hjá mér og það var nú ekki leiðinlegt (getið séð örfáar myndir frá gærkvöldinu í albúminu).
Þegar líða tók á kvöldið mættu Lóa, Eygló og Elsa á svæðið og hófust mjög skemmtilegar umræður um fóstureyðingar og fleira áhugavert... Það er alltaf jafn frábært að hitta hana Eygló og ég veit ekkert hvenær ég mun hitta hana næst... en ég vona að það verði sem fyrst :-) Við ákváðum nú að halda niður í bæ og settumst inná Amor og fengum okkur að drekka..... þar hitti ég hann Palla Ingvars og einhverra hluta vegna fór hann að tala um þegar ég og Bjössi vorum að leggja hann í einelti í Hakróli árið 1988...situr greinilega fast í honum þar sem drengurinn var 4 ára á þessum tíma. En hann semsagt sagði að ég og Bjössi hefðum hlegið svo mikið að honum af því að hann var í svo síðum bol að það væri eins og hann væri í kjól... eigum að hafa kallað hann stelpu eða eitthvað álíka. Greyið Palli, en auðvitað hló hann að þessu enda var ferlega fyndið að rifja eitthvað svona upp. Palli er sko snillingur og ef Baldur bróðir hans vill ekki giftast mér þá ætlum ég og Palli að gifta okkur... svalt :-)
Jæja, við enduðum auðvitað á Kaffi Akureyri þar sem ég átti nokkuð gott samtal við eigandann og ég er ekki frá því að hann ætli að ráða mig sem skemmtanastjóra þarna á staðnum... allavegna kom það til tals!! Það gerðist svosem ekkert merkilegt þarna inni en þegar við fórum á Tikk takk til að fá okkur að borða þá breyttust hlutirnir heldur betur. Jájá, við vorum að bíða eftir matnum okkar þegar einhver stelpa labbar inn, skoðar matseðilinn og hreytir því út úr sér hvað verðið hafi hækkað mikið... þá sagði ég við hana að hún væri nú að borga fyrir gæði... annað hvort var þetta mjög viðkvæm setning eða þá að hún var svona óvön að fólk skuli nenna að yrða á hana, sama hvort það var þá tjúllaðist pían og fór að öskra á mig og hvað í ósköpunum ég væri að skipta mér að henni! Það var hálf vorkunnarlegt að hlusta á aumingja stlpuna þar sem hún vissi ekkert hvað hún var að segja... leiðinlegt að reyna að rökræða við svoleiðis fólk. Svo kom vinkona hennar á svæðið og hún byrjaði líka að æsa sig og segja hvað ég væri nú ömurlegt að vera að skipta mér af vinkonu sinni... hún setti sig meira að segja í stellingar og ætlaði að lemja mig... þá fór ég nú að hlægja því þessi stelpa var mun minni en ég og eins og þið getið ímyndað ykkur, ekki líkleg til neinna stór afreka... við skemmtum okkur vel yfir kjaftinum á þessum smá buddum. Eyddi restinni af kvöldinu í spjall við Einar, Hauk, Sævar og Leibba og skemmti mér konunglega yfir bullinu í þeim.
Það besta er að ég fór aðeins í Rúmfatarlegerinn í morgun og þá var engin önnur er stlpan með kjaftinn að vinna á kassanum... svo hrikalega timbruð, það var ljúft að horfa á hana og brosa og sjá hvernig hún leitaði að byssunni undir borðinu svo hún gæti skotið sig...

Chill í kvöld.... búin að fá bragðaref í dag þannig að það verður Greifapizza í kvöld yfir sjónvarpinu :-)

P.S. Vegabréfið mitt er komið til baka með simpli um það að ég er velkomin til Ástralíu í 9 mánuðu.... já krakkar mínir, þetta styttist :-)

fimmtudagur

Uppstigningardagur 

Þvoglumæltir Danir eru ekki eitthvað sem ég sækist í...sérstaklega ekki eftir gærkvöldið. Ég, Harpa og Lóa fórum semsagt í pool í gær (eða þær sáu um það) og þar hittum við semsagt nokkra vel drukkna herskips Dani. Það sannaðist endanlega að við drykkju drepast í þér heilasellurnar.... þarna var einn Daninn svo fullur og reyndi eins og hann gat að tala við mig... á dönsku. Ég sagði ´hvad for noget´ eftir hverja einustu setningu hjá honum og bað hann vinsamlegast um að tala ensku... en það gekk ekki og hann hélt áfram að tala dönsku sem mér gekk svo innilega ekki að skilja. Sem betur fer var Lóa með okkur og gat verið túlkur þar sem kellan er altalandi dönsku. Ef ég hefði verið búin að fá mér smá bjór hefði sennilega losnað um málbeinið því eins og Bjössi og Gísli vita þá er ég feiknar góð í dönsku og með massa framburð... kom þó einni klassa setningu að þarna í gær og er mjög sátt við það....´nei, for helvede´
Við vorum rekin út af pool staðnum og þá fórum við á Kaffi Akureyri...sjaldan jafn lítill sviti enda ekkert af fólki í bænum. Þarna sátum við og chilluðum með Greifastarfsfólki... Já og svo kom Hlynur, djöfull er ég komin með mikið ógeð af stælunum í honum.
Annars vorum ég og Harpa aðallega að fylgjast með einu pari... strákurinn var að reyna að húkka gelluna en hún var eitthvað treg til, þau dönsuðu þó eitthvað saman og þetta var rosa drama.... að lokum tók gaurinn á það ráð að setja gelluna í band og tók hana með sér heim....já þeir deyja ekki ráðalausir þessir menn... bara snilld.

Ljómandi kvöld og svo er Eygló að koma til landsins á morgun og þá ætlum við sem eftir erum á Akureyri að hittast og hafa það gaman. Taumlaus gleði :-)

miðvikudagur

Berklahæli 

Mér er búið að líða í nokkrar vikur eins og ég búi á berklahæli... sú gamla er búin að vera með svo mikinn hósta að mér er skapi næst að skella súrefniskút á bakið á henni... já þetta er frekar ógeðslegt.
Annars er ég búin að fýla mig eins og atvinnuleysingja núna í 6 daga og ég held að ég sé að missa vitið.... það var yndislegt að vera í fríi í svona 3 daga en núna er ég sko komin með nóg. Það tekur á að hafa ekkert fyrir stafni...úfff. Ætlaði að nota tímann í að bera á pallinn, liggja í sólbaði og svona huggulegheit en neinei. Það er skítakuldi hérna og ég sé svo eftir að hafa ekki skellt mér til útlanda í viku (hefði átt að skella mér með Gulla og vera með honum og kærustunni í Brussel...hmmmm, nei). Jæja, þýðir ekki neitt að vera með eitthvert væl, ég verð að skemmta mér sjálf en ekki bíða eftir að einhverjir aðrir geri það. Þannig að núna er Rush hour að byrja í sjónvarpinu og ekki verður leiðinlegt að horfa á það...til að fullkomna skemmtunina ætla ég að horfa á ALLAR Lethal weapon myndirnar á morgun og seinni Rush hour myndina..... vúhú, hlakka til :-)
Ójá, lífið snýst um sjónvarp þessa dagana og ég er orðin vel steikt...

mánudagur

Með bremsuför í brókinni 

Föstudagur:
- Verslaði buxur, skó og jakka... ljúft
- Fór með Birnu, Karen og Hörpu í Kjarna að hlusta á Helga og hljóðfæraleika og hnupla bjór
- Fórum heim til Birnu með nóg af bjór og héldum pylsu-partí
- Héldum niður í bæ og hittum Einar og Hauk sem voru búnir að koma sér vel fyrir í röð.
- Fórum á Kaffi Akureyri og hittum Lóu elskuna :-)
- Nudduðum okkur vel og mikið utaní sveitta kroppa
- Hittum Einar og Hauk aftur... það er þeim að þakka að Birna skuldar mér fjóra bjóra. Takk elskurnar :-)
- Skreið í bólið um 6

Laugardagur:
- Skúra, skrúbba og bóna
- Matarboð hjá Hildi móðu og horft á Júró
- Kveðju-, júró- og útskriftarteiti hjá Hörpu Hrönn
- Svo í partí til Birnu
- Sviti, sviti
- Tikk takk!!!

Þið getið svo búið til einhverja massa sögu í kringum þetta...

föstudagur

Búið 

Jæja, hér kemur enn ein bloggfærslan....eins og ykkur sé ekki sama. Aðal fréttirnar eru þær að ég er búin í prófum og get farið að kalla mig viðskiptafræðing....því verður fagnað í kvöld...loksins!! Núna er ferðinni heitið í bæinn þar sem ég ætla að kaupa mér einhvað fatakyns.... sennilega Diesel gallabuxur á 17.000 kall. Keypti mér neflilega Diesel gallajakka fyrir p

Búið 

Jæja, hér kemur enn ein bloggfærslan....eins og ykkur sé ekki sama. Aðal fréttirnar eru þær að ég er búin í prófum og get farið að kalla mig viðskiptafræðing....því verður fagnað í kvöld...loksins!! Núna er ferðinni heitið í bæinn þar sem ég ætla að kaupa mér einhvað fatakyns.... sennilega Diesel gallabuxur á 17.000 kall. Keypti mér neflilega Diesel gallajakka fyrir próflokadjammið í fyrra... Svo langar mig líka í skó... já og jakka.... hmmm, sjáum hvar þetta endar. Allavegna ætla ég að vona að hann haldist þurr í kvöld þegar við munum sprikkla eitthvað í Kjarna þar sem Helgi og Hljóðfæraleikararnir munu spila, maður ætti kannski að mæta með rörið og rifja upp gamla takta....svo held ég bara að aðal stemmarinn í kvöld verði í röð fyrir utan Og Vonafone... jamm, fólk ætlar að sofa í göngugötunni í nótt til að tryggja sér miða á Metallica!! Annars hafa þessi þrjú ár sem ég var í Háskólanum liðið eitthvað óvenju hratt... mamma sagði í gær að henni finnst svo stutt síðan ég og Harpa Björk kynntumst Begga...einmitt í Kjarna. Jamms, en þetta hafa verið góð ár og ég kynnst fullt af nýju fólki og gert allskonar hluti...bara gaman að því :-)
Ég hefði kannski átt að velja mér eitthvað aðeins lengra nám þar sem ég er ekki enn alveg viss við hvað ég vil vinna..... kannski ég fari bara í læknisfræði þegar ég kem heim frá Ástralíu... ég kæmist kannski inn í fimmtu tilraun, svo er þetta nám einhver 8 ár... flott, þá kæmi ég spræk á vinnumarkaðinn rétt fyrir fertugt.

Ég er búin að vera að dunda mér í að setja nýtt myndaalbúm upp.... bara svona ef einhver skyldi hafa áhuga.

Annars þá kveð ég að sinni.... 10 daga fylleríið mitt er hafið, shit hvað ég verð tussuleg þegar ég svo loksins fer að vinna...!!!


laugardagur

Dildó og Anus 

Fór á hrikalega flotta óperu í gær sem heitir Dildó og Anus.... þar var Harpa Björk í aðalhlutverki og stóð sig ofboðslega vel, var ekkert smá montin af henni : -) Hún lék semsagt Dildóinn en einhver strákur Anusinn.... þetta var alveg dúndur flott!! Svo að lokinni óperunni kom stjórnandinn til mín og færði mér rós... þvílíkt huggó.
Eftir óperuna bauð Heimir okkur í partí.... rifjuðum upp fullt af gömlum og mis góðum minningum. Það var fámennt en mjög góðment og ég skemmti mér vel alveg fram að þeirri stundu sem við vorum rekin út vegna hávaða.

Annars þá átti Jóhanna afmæli í gær.... til lukku með daginn!!

miðvikudagur

Blessuð prófin 

Djöfulls myndaalbúmið er í tómu rugli... ég las greinilega ekki smáaletrið þegar ég stofnaði það og um daginn fékk ég bréf frá þeim sem ég nennti ekki að lesa þannig að ég henti því.... já , flott hjá mér..... þetta er alveghreint magnað helvíti. Ætla að kroppa eitthvað í þetta eftir prófin. Einmitt próf....þau byrja semsagt eftir tvo daga!!
Skil ekki hvað fólk er að unda sig á því að það skuli snjóa í byrjun maí.... ég var miklu meira undrandi þegar ég var í fyrsta bekk í MA. Þá eru prófin ekki búin fyrr en í júní. Alla próftíðina var geggjað veður.... daginn sem prófin voru búin ætluðu allir að fara í Ýdali til að fagna, en nei.... þá kom þetta brjálaða veður og það var ófært. Það fóru nú samt nokkrir þangað en ég man að margir bílar fóru útaf og það kom sannkallaður vetur. Þannig að þeir sem eru að væla yfir nokkrum snjókornum sem fljúga í loftinu núna, ættu að þakka fyrir svo framarlega sem það verði ekki snjóskaflar í útskriftinni....

....love is only a feeling!!

mánudagur

Próflestur 

Alveg er þetta merkilegt..... ég held að ég þjáist af athyglisbrest. Á mjög erfitt með að sitja kyrr og einbeita mér að því sem ég á að vera að gera. Held samt að ég hafi drekkt þeim heilasellum sem eftir voru í ógeði.... greyin að reyna að berjast fyrir lífi sínu en nei; hamborgarar, pizzur, brauðstangir, ís, bernessósa, franskar, nammi og gos. Þetta hefur allt hjálpast að við að drepa það fáa sem eftir var í höfðinu á mér.... eftir situr ung stelpa með athyglisbrest og magasár vegna of mikils sukklífernis.

Ef allt gengur að óskum (ég sé ekki fram á annað) þá mun ég spóka mig hér um næstu jól og áramót ásamt nokkrum öðrum.... ekkert að því :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?