<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Súkkulaði.... namm 

Kominn mánudagur og mun það vera síðasti dagurinn í bili sem ég mun hanga á náttfötunum og háma í mig súkkulaði....kannski er það bara öllum fyrir bestu. Stefnan er allavegna tekin á bókasafnið í fyrramálið, vantar nokkrar bækur og svona.
Föstudagskvöldið veitti mér mikla ánægju :-).... það var allavegna partí hjá Jóhönnu sem endaði í tómu rugli. Hægt er að sjá afraksturinn af því í kommentkerfinu hennar Lóu.... samdi nokkuð góða vísu þangað líka og læt ég hana bara flakka:

Lóa latur bloggari er,
liggur bara og sefur,
sjaldan beint til Bibba fer,
Buddan töfra hefur!!


Já þetta fannst okkur allavegna fyndið á föstudagskvöldið. Fleira markvert gerðist; Binni ákvað að skalla mig þegar við vorum að kveðjast...... Karen sló auðvitað í gegn á keiluskónum eins og venjulega og Fjóla sagði heimskulegustu setningu ever; sjáðu hvað Kata virðist lítil við hliðina á Binna.... einmitt, þegar maður er 130cm VIRÐIST maður ekkert lítill við hliðina á manni sem er 196cm!!
Ég, Harpos, Fjóla og hr. Fjóla enduðum svo í Sjallanum..... Harpa fór snemma heim en ég fann Bjössann og við tjúttuðum fram á nótt. Var samt ekki eins massað og annar í jólum en þetta var ágætt. Stungum samt af frekar snemma og fórum að tala við Sverri í dyrunum á Sveitta Akureyri..... fullt af fólki sem ég þekki fóru þangað inn þannig að ég ákvað að skella mér þegar ég heyrði að DJarnir voru farnir að spila rokkið (þeir gera það til að reka fólkið út.... já frekar sjúkt). Skemmti mér konunglega þarna inni og ég og Hölli tókum nokkur góð múf.... :-)

Jammmsí, Lóan átti afmæli í gær....búin að óska henni til hamingju en geri það bara aftur opinberlega hér með: til lukku með daginn í gær!!
Annar sit ég bara með headfóna og hlusta á Placebo, þar sem ég fer ekki á tónleikana verð ég að upplifa þetta svona.....


This page is powered by Blogger. Isn't yours?