<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Páskar 

Jamms, leiðinlegasti dagur ársins runninn upp og ekkert nema gott um það að segja!!
Átti mjög skemmtilega kvöldstund með vinkonum mínum og mökum þeirra á miðvikudagskvöldið.... byrjaði sérstaklega vel þar sem Fjóla tilkynnti það yfir hópinn að Birna væri komin með sortuæxli á augnlokin.... vona að hún láti það vera í framtíðinni að tilkynna svona sjúkdómsgreiningar á fólki.... gott að hún er ekki að læra að verða kynsjúkdómalæknir! Þegar við vorum búin að vera hjá Eygló í nokkurn tíma ákváðum við að skipta um umhverfi og fara heim til Elsu.... vorum orðin allt of æst hjá Eygló og sumir farnir að slást (fólk á stundum erfitt með að átta sig á því að spil er bara leikur). Aldrei þessu vant var ég á bíl og þegar Harpa var að spenna beltið í aftursætinu fann hún æfingaraksturs merki.... Karen skellti því á hliðina á bílnum og við lögðum í hann. Þetta var rosaleg ferð.... Ég í æfingarakstri með Karen frammí og þrjá snar bilaða einstaklinga afturí (Hörpu, Fjólu og Sturlu). Við lentum auðvitað í lífsháska á leiðinni.... stór hættuleg kjellingarbeygla keyrandi á móti umferð eins og ekkert væri sjálfsagðara, en hún gugnaði á einvíginu og vék undan. Ég fór svo bara snemma heim en hinir skelltu sér á Sveitta Akureyri og tjúttuðu úr sér allt líf ef marka má sms-ið sem Birna sendi mér um nóttina :-)
Samkoma hjá Jóhönnu í kvöld.....sjáum hvernig það fer!!!

Annars er allt í góðum gír hér í Akurgerðinu.... bræður mínir eru báðir staddir hérna og afkvæmi annars að auki. Engin takmörk fyrir því hvað þetta barn er fallegt. Málið er bara að hafa það gott um páskana og ég vona að þið munuð eiga jafn skemmtilega páska og ég :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?