föstudagur
Klikkaðri en venjulega
Veit ekki hvað er í gangi með mig þessa dagana.... venjulega þarf ég 10 tíma svefn og sofna um leið og ég loka augunum, en núna uppá síðkastið get ég ekki sofnað á kvöldin og þegar vekjaraklukkan hringir þá fer ég á fætur í staðin fyrir að snooza fimm sinnum. Vegna þessa er ég komin á fætur rúmlega 7 og í morgun var ég mætt uppí skóla klukkan hálf 8 og byrjuð að læra.... ef þetta er ekki sjúkt þá veit ég ekki hvað er það. Þetta er ekki stress af því að ég stressast mjög sjaldan upp, ég veit að hlutirnir reddast og þess vegna er óþarfi að stressast yfir þeim. Ég viðurkenni það samt að ég er með pínu áhyggjur af ritgerðinni en ekki það miklar að ég eigi að missa svefn og mæta í skólann fyrir allar aldir. Ég held að ég sé bara spennt.... spennt að komast í burtu og losna við allt vesen í nokkra mánuði.
Eftir mánuð verð ég búin í prófunum, eftir tvo mánuði verð ég útskrifaður viðskiptafræðingur og það besta er að eftir 6 mánuði verð ég farin á vit ævintýranna.... vááá hvað það verður mikil snilld :-)
En núna verð ég að koma mér heim, var eitthvað að fikta í tölvunni og var næstum búin að stúta ritgerðinni... það væri´ða!!!