<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Sweet 

Loksins búin að losa mig við lokaverkefnið :-)

fimmtudagur

29. apríl 

Jahá, í dag er merkis dagur.... litli bróðir á afmæli og vil ég hér með óska honum innilega til hamingju með daginn :-) Í dag munum ég og Stefanía líka klára lokaverkefnið okkar.... Það stefnir allt í 10 fyrir þetta meistarastykki og ef menntamálaráðherra kaupir ritgerðina ekki og hefur til sýningar öðrum nemendum til framdráttar, þá ætti hún að segja af sér.....

Ég er líka búin að setja nýtt myndaalbúm inn, og prýðir það að sjálfsögðu prinsessuna hana Sunnu Kristínu.... tékk it át :-)

En ef við förum aðeins aftur í tímann þá spilaði ég á tónleikum með henni Helenu elskunni á sumardaginn fyrsta (og já, gleðilegt sumar þið). Hún var semsagt að útskrifast úr söng og ég spilaði eitt lag með henni og held að það hafi bara gengið ágætlega. Enda er maður ansi lúnkinn á Fiðluna sko.... já ég og Gísli ákváðum að skíra klarinettið Fiðluna þar sem svo margir halda að ég spili á fiðlu.... er víst eitthvað svo fiðluleg, hvað sem það nú þýðir. En já, þetta var ansi gaman og um kvöldið bauð hún mér og fleirum heim til sín í kampavín og jarðaber... rómó. Þar hitti ég tvo Pólverja sem baunuðu því á mig að ég væri nágranni þeirra.... jájá, heppin þau.

Sú gamla er alveg æst í að halda eitthvert smá get together hérna í Akurgerðinu þegar ég útskrifast þannig að svoleiðis verður það. Eina ástæðan fyrir því að ég samþykkti þetta var sú að þennan dag eigum ég, Gilli og Gossi 10 ára brúðkaupsafmæli. Já við erum afbrigðileg.... nei nei, þennan dag, 12.júní 1994, fermdumst við í Skálholtskirkju, reyndar bara frekar flott á því. Þannig að Gilli og Gossi VERÐA að mæta til Akureyrar þennan dag og við sláum upp partíi.... ekki úr vegi að slá bara upp ættarmóti og fá stuðboltana úr Borginni til að koma Norður. Allavegna, þið ættingjar sem lesið þetta, takið daginn frá!! Held að við verðum líka að endurtaka fermingarmyndatökuna, fáar myndir flottari en hún allavegna. Ég lít út eins og 9 ára krakki, Gossi með ljósu lokkana lengst niður á bak (fólkið sem þekkti hann ekki skildi ekkert í því af hverju stúlkan gerði ekkert fyrir hárið á sér) á þessum tíma var Gossi kallaður stelpan frændi minn. Gilli var svona töffaratýpa....hmmm ef hann hefði ekki verið með þessi gleraugu. Ekkert nema snilld.....

Svo eru próf framundan, próflokadjamm 14. maí og kveðjupartí hjá Hörpu Hrönn 15. maí..... fæ ekki að byrja að vinna fyrr en 24. maí þannig að ætli ég verði ekki bara að vera full þangað til, verð að nýta tímann...!!!

þriðjudagur

SMS.... 

Klám og kaffi??

Snilld :-)

Annars er ég bæði komin með andateppu og legusár....


sunnudagur

Sit uppí skóla.... surprise surprise... og er að kroppa í ritgerðina okkar Stefaníu!! Susss, þetta er meistaraverk og ekkert annað :-) Ég mætti með geisladiska til að geta hlustað á eitthvað skemmtilegt á meðan ég les mér til en nei nei, tölvan vill ekki spila þá, ég er ekki með svona lélegan tónlistarsmekk af því að það gekk ekki heldur að hlusta á Xið :-( Það eina sem ég get hlustað á í þessari tölvu er FM957.... ég var ekki lengi að leggja frá mér headfónin.... frekar hlusta ég á pikkið í lyklaborðinu en FM957. Annars er ég búin að vera með massa FM lag á heilanum í nokkra daga núna, Toxic með Britney vinkonu.... þetta lag er rosalegt!

Guttinn á neðri hæðinni hjá Stefaníu er að gera góða hluti... rosa duglegur að æfa sig og í morgun var hann að reyna að spila I believe in a thing called love með The Darkness. Var að pæla hvort við ættum að bjóða honum í bandið okkar Bjössi??

Hætt að blogga.....

laugardagur

Meiri geðveiki 

Ég er búin að komast að því að ég er ekki eins geðveik og ég hélt að ég væri... eða jú kannski, en Karen er allavegna mun klikkaðri en ég. Þegar hún hefur ekkert að gera á föstudagskvöldi þá sest stúlkan niður með tebolla og les Biblíuna.... Eitthvað sem henni bara datt í hug að gera, ekki eins og hún sé í einhverju trúarnámi..... annars veit ég ekkert hverju er verið að troða í hausinn á þeim þarna í Heilbrigðisdeildinni. Kannski er þetta eitthvað sem maður á eftir að gera, lesa Biblíuna, en ég hef hugsað mér að ef ég mun einhverntíman lesa þessa skáldsögu þá verður það í sumarhúsinu mínu á Tælandi þegar ég er komin á svífandi eftirlaun eða á snekkjunni hans Bjössa, krúsandi á milli eyjanna í Karabískahafinu. Talandi um Bjössann, þá er hann farinn aftur og okkur tókst bara að gera remix af einu Pixies lagi.... en hann kemur aftur í sumar og þá verður gert meira af þessari vitleysu :-)

Jæja, er farin að taka slátur!!!

föstudagur

Klikkaðri en venjulega 

Veit ekki hvað er í gangi með mig þessa dagana.... venjulega þarf ég 10 tíma svefn og sofna um leið og ég loka augunum, en núna uppá síðkastið get ég ekki sofnað á kvöldin og þegar vekjaraklukkan hringir þá fer ég á fætur í staðin fyrir að snooza fimm sinnum. Vegna þessa er ég komin á fætur rúmlega 7 og í morgun var ég mætt uppí skóla klukkan hálf 8 og byrjuð að læra.... ef þetta er ekki sjúkt þá veit ég ekki hvað er það. Þetta er ekki stress af því að ég stressast mjög sjaldan upp, ég veit að hlutirnir reddast og þess vegna er óþarfi að stressast yfir þeim. Ég viðurkenni það samt að ég er með pínu áhyggjur af ritgerðinni en ekki það miklar að ég eigi að missa svefn og mæta í skólann fyrir allar aldir. Ég held að ég sé bara spennt.... spennt að komast í burtu og losna við allt vesen í nokkra mánuði.
Eftir mánuð verð ég búin í prófunum, eftir tvo mánuði verð ég útskrifaður viðskiptafræðingur og það besta er að eftir 6 mánuði verð ég farin á vit ævintýranna.... vááá hvað það verður mikil snilld :-)

En núna verð ég að koma mér heim, var eitthvað að fikta í tölvunni og var næstum búin að stúta ritgerðinni... það væri´ða!!!

fimmtudagur

Lokaverkefnið 

Lokaverkefnið okkar tók stakkaskiptum í gær..... jamm 2 vikur í skil og við ákváðum að umturna því, það er svona þegar maður fær ógeð á því sem maður er að gera.... en þetta reddast og það borgar sig ekki að hafa áhyggjur. Annars þá gekk okkur ljómandi vel í gær og veitt 13 ára strákurinn á neðri hæðinni hjá Stefaníu okkur mikinn innblástur þegar hann byrjaði að æfa sig á rafmagnsgítarinn sinn.... bara gaman að því.

Einhver sú mesta snilldar setning sem ég hef heyrt lét Bjössi vaða í jólaboði hér um árið. Hann var að útskýra fyrir frænku okkar einhvern hluta af lambalærinu og sagði: “Þetta er rassgatið á beljunni....”!! moohhhhaa

þriðjudagur

Myndir 

Takk Birna mín fyrir myndirnar :-)
Þær eru í albúminu ef einhvern langar til að skoða!!

mánudagur

Súkkulaði.... namm 

Kominn mánudagur og mun það vera síðasti dagurinn í bili sem ég mun hanga á náttfötunum og háma í mig súkkulaði....kannski er það bara öllum fyrir bestu. Stefnan er allavegna tekin á bókasafnið í fyrramálið, vantar nokkrar bækur og svona.
Föstudagskvöldið veitti mér mikla ánægju :-).... það var allavegna partí hjá Jóhönnu sem endaði í tómu rugli. Hægt er að sjá afraksturinn af því í kommentkerfinu hennar Lóu.... samdi nokkuð góða vísu þangað líka og læt ég hana bara flakka:

Lóa latur bloggari er,
liggur bara og sefur,
sjaldan beint til Bibba fer,
Buddan töfra hefur!!


Já þetta fannst okkur allavegna fyndið á föstudagskvöldið. Fleira markvert gerðist; Binni ákvað að skalla mig þegar við vorum að kveðjast...... Karen sló auðvitað í gegn á keiluskónum eins og venjulega og Fjóla sagði heimskulegustu setningu ever; sjáðu hvað Kata virðist lítil við hliðina á Binna.... einmitt, þegar maður er 130cm VIRÐIST maður ekkert lítill við hliðina á manni sem er 196cm!!
Ég, Harpos, Fjóla og hr. Fjóla enduðum svo í Sjallanum..... Harpa fór snemma heim en ég fann Bjössann og við tjúttuðum fram á nótt. Var samt ekki eins massað og annar í jólum en þetta var ágætt. Stungum samt af frekar snemma og fórum að tala við Sverri í dyrunum á Sveitta Akureyri..... fullt af fólki sem ég þekki fóru þangað inn þannig að ég ákvað að skella mér þegar ég heyrði að DJarnir voru farnir að spila rokkið (þeir gera það til að reka fólkið út.... já frekar sjúkt). Skemmti mér konunglega þarna inni og ég og Hölli tókum nokkur góð múf.... :-)

Jammmsí, Lóan átti afmæli í gær....búin að óska henni til hamingju en geri það bara aftur opinberlega hér með: til lukku með daginn í gær!!
Annar sit ég bara með headfóna og hlusta á Placebo, þar sem ég fer ekki á tónleikana verð ég að upplifa þetta svona.....


föstudagur

Páskar 

Jamms, leiðinlegasti dagur ársins runninn upp og ekkert nema gott um það að segja!!
Átti mjög skemmtilega kvöldstund með vinkonum mínum og mökum þeirra á miðvikudagskvöldið.... byrjaði sérstaklega vel þar sem Fjóla tilkynnti það yfir hópinn að Birna væri komin með sortuæxli á augnlokin.... vona að hún láti það vera í framtíðinni að tilkynna svona sjúkdómsgreiningar á fólki.... gott að hún er ekki að læra að verða kynsjúkdómalæknir! Þegar við vorum búin að vera hjá Eygló í nokkurn tíma ákváðum við að skipta um umhverfi og fara heim til Elsu.... vorum orðin allt of æst hjá Eygló og sumir farnir að slást (fólk á stundum erfitt með að átta sig á því að spil er bara leikur). Aldrei þessu vant var ég á bíl og þegar Harpa var að spenna beltið í aftursætinu fann hún æfingaraksturs merki.... Karen skellti því á hliðina á bílnum og við lögðum í hann. Þetta var rosaleg ferð.... Ég í æfingarakstri með Karen frammí og þrjá snar bilaða einstaklinga afturí (Hörpu, Fjólu og Sturlu). Við lentum auðvitað í lífsháska á leiðinni.... stór hættuleg kjellingarbeygla keyrandi á móti umferð eins og ekkert væri sjálfsagðara, en hún gugnaði á einvíginu og vék undan. Ég fór svo bara snemma heim en hinir skelltu sér á Sveitta Akureyri og tjúttuðu úr sér allt líf ef marka má sms-ið sem Birna sendi mér um nóttina :-)
Samkoma hjá Jóhönnu í kvöld.....sjáum hvernig það fer!!!

Annars er allt í góðum gír hér í Akurgerðinu.... bræður mínir eru báðir staddir hérna og afkvæmi annars að auki. Engin takmörk fyrir því hvað þetta barn er fallegt. Málið er bara að hafa það gott um páskana og ég vona að þið munuð eiga jafn skemmtilega páska og ég :-)

miðvikudagur

Phlee 

Heiladauði er búinn að vera allsráðandi núna síðustu daga og er besta dæmið kannski það að ég er búin að pota þrisvar í hægra augað á mér í dag.... það var ekki gott. Ég er kannski bara svona hrikalega spastísk!!
Einhver sú erfiðasta fæðing sem ég hef upplifað átti sér líka stað um helgina þar sem ég og Stefanía vorum að reyna að breinstorma.... orðin sátu gjörsamlega föst og komust ekki út, hefði þurft að taka bráðakeisara á þetta þá hefðu þau ekki fæðst svona hrikalega andvana....
Skírdagur fer í verkefnavinnu með Alla, þrjú verkefni sem bíða okkar. En þar af leiðandi kemst ég ekki í skírnina til Kristjáns.... bömmer :-( Ætla nú samt að reyna að kíkja á þau.
Það er stelpukvöld í kvöld..... át, drykkja og slúður. Gerist ekki mikið betra!!!

sunnudagur

Flottur Rúnni Júl 

Það var semsagt djamm í gær....auðvitað. Allavegna þá komu Elsa, Karen, Eygló (æðislegt að hitta hana loksins aftur.... var sko brjáluð pæja í lífstykki og allt), Sverrir, Eva, einhver og Harpa Björk til mín í gærkvöldi og drukku bolluna hennar Eyglóar. Gló er snillingur í að kaupa bara eitthvað áfengi sem enginn hefur séð áður og sullar sig áfram með það.... þetta heppnaðist bara nokkuð vel!! Við fórum svo að sjálfsögðu á Græna hattinn þar sem Rokksveit Rúnna Júl var að spila....algjör snilld. Hittum Binna, Tona og Katý þar, frábært að hitta Binna aftur og reitti hann svoleiðis af sér setningar úr Svínasúpunni! Sundurskotni Britney Spears bolurinn sem ég var í sló svo sannarlega í gegn, enda saga á bakvið þennan bol sem inniheldur Kambódíu, Bjössa og AK47 riffil..... ekki slæm saga það :-)
Mesta snilldin var samt þegar enginn annar en Árni Johnsen kom inná staðinn ásamt Jóhannesi eftirhermu.... maður lætur svona tækifæri ekki renna sér úr greipum og auðvitað bauð ég Árna uppí dans (ég er í góðri dansþjálfun eftir alla snúningana sem ég hef tekið með Gylfa uppá síðkastið). Ekkert flottara en að dansa við þennan mann og það er greinilegt að hann svelti ekki á Kvíabryggju.... það er til MIKIÐ af Árna Johnsen. Svo þegar dansinum var að ljúka ákvað ég nú að spyrja hann spurningarinnar sem allir hafa verið að velta sér uppúr, þannig að ég lét hana bara vaða; Árni, ertu nokkuð hommi eftir dvölina á Kvíabryggju??? Þessi spurning kom svolítið flatt uppá hann og hann svaraði ekki heldur horfði bara á mig eins og ég væri vangefin.... er farin að fá það look frekar oft frá fólki. En þetta var bara snilld :-)
Það var annar maður þarna inni sem er alls ekki snillingur, eiginlega bara óþolandi. Jamm, bæjarstjórinn var þarna inni og ég og Binni fundum góða leið til að losna við kauða, sú leið inniheldur reipi, eitt stykki bæjarstjóra, hlekki og barsmíðar....
Semsagt þá skemmti ég mér rosalega vel með frábæru fólki....!!!

Annars vil ég óska honum Heimi innilega til hamingju með glæsilegan árangur í Söngkeppni framhaldsskólanna :-) ógeðslegt lag sem vann þetta þannig að ég skil ekki af hverju Heimir vann ekki bara.... en annað sætið er flottur árangur!!

laugardagur

Rúnni Júl.... 

...here we come!!!!! jahhhh

föstudagur

Gamlir 

Jahérna, það er sama hvar maður er... gamlir "kærastar" Höllu frænku dúkka upp hér og þar. Magnús Geir bara orðinn leikhússtjóri hér á Akureyri og Viktor Blær var að taka þátt ömurlegasta þætti landsins, keppti þar um titilinn ´landsins snjallasta fyrirsæta´ .... svo sannarlega gaman að því :-)

Óvinur 

Susss, hitti Steina í skólanum áðan og það kom í ljós að það er ekkert djamm um helgina. Hlynur farinn suður, pabbahelgi hjá Steina, Karen að keppa fyrir austan og ég veit ekki hvað og hvað....sennilega allir að stinga af fyrst Eygló og Binni eru að koma til landsins. Svo er víst eitthvert grímuball á fimmtudaginn og allir að fara að djamma.... Steini ætlar að vera Axl Rose, ekkert flottara. En já, mér er semsagt ekki boðið í þetta partí..... ótrúlegt en satt þá líkar ekki öllum vel við mig. Svolítið cool að eiga óvin!! Sé semsagt fram á foreldralausa lærihelgi þar sem Tikk takk, Brynjuís og sófinn verða mínir helstu vinir. Ef einhver er góður í nuddi er sá hinn sami velkominn heim til mín um helgina!!
YESSSS, Bjössi kemur til landsins á morgun :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?