<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Teljari 

Jamms ég er komin með teljara.... þá kemur í ljós hvort það eru fleiri en ég sem kíkja á þessa síðu! Á samt enn eftir að velja einhvern góðan stað fyrir hann, geri það seinna.

Get sagt ykkur það að ég og Stína héldum að við myndum gefa upp öndina á laugardaginn þegar við löbbuðum uppí gönguhús..... kræst. Þetta hús er einhversstaðar lengst uppí fjalli og það er ekkert djók að labba þangað upp. Sérstaklega ekki fyrir tvær stelpur sem eru ekki í neinu formi og snjórinn var svo linur að við runnum alltaf hálft skref afturábak. En þetta var minna mál fyrir guttana sem hlupu framúr okkur á miðri leið, ekkert svekkjandi að horfa á það.... en þetta hafðist að lokum og þvílík fagnaðarlæti sem brutust út hjá okkur þegar við loksins sáum húsið.

En núna er ég að fara til Stefaníu....við ætlum að tækla þetta lokaverkefni og ég ætla að kenna Kristjáni litla að segja Kata :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?