<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Plokkfiskur 

Fór í fyrsta skiptið á ævi minni í litun og plokkun í gær. Ég settist í sófann í smá stund en svo kom kona og kallaði á mig og leiddi mig inní eitthvert herbergi. Þar inni var bekkur með teppi, kertaljós og slökunartónlist dauðans..... bíddu nú við, var ég eitthvað að misskilja, pantaði ég mér nokkuð nudd!! Svo þegar við vorum komnar inn í herbergið tók hún teppið af bekknum og bað mig um að fara úr fötunum..... OK ekki í alvörunni en ég beið samt eftir að hún myndi segja það, hefði hentað mjög vel við þessar aðstæður. Jæja, ég lagðist á bekkinn og hún pakkaði mér inni í teppið.... hef sjaldan upplifað annað eins. Svo spurði hún mig með seiðandi röddu hvort ég vildi bæði brúnir og hár..... kræst, hélt ég fengi hláturskast. Ef ég hefði vitað fyrir fram að ég þyrfti að liggja á bekk, pökkuð inní teppi með sjávarhljóðin í eyrunum og umlukin kertaljósum og látum, hefði ég farið allt öðruvísi stemmd á þetta deit okkar. Á ýmsu átti ég von en ekki þessu, þetta er voða athöfn..... verð að muna það næst. Jammm það verður sennilega næst þar sem ég var bara nokkuð ánægð með þetta stefnumót og afrakstur þess :-)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?