<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur

Ofát 

Susss, þessi helgi er búin að vera rosaleg hvað át varðar.... ber helst að nefna gærkvöldið þar sem ég, Harpa Björk, Karen, Birna og Jóhanna ákváðum að fara út að borða. Fengum ljómandi góðan mat á La Vita é Bella en létum okkur það ekki nægja heldur skelltum okkur í Brynju á eftir.... jájá, ég fékk mér meira að segja bragðaref. Eftir að hafa rúntað um bæinn og smellt nokkrum góðum myndum af íbúum Akureyrar fórum við heim til Hörpu í enn meira át.... snakk og páskaegg áttu hug okkar allan. Gerðum heiðarlega tilraun til að spila og það gekk ágætlega framan af, við urðum þó að hætta þar sem letin og ofátið hafði tekið yfirhöndina og við nenntum ekki að kasta teningnum og hreyfa kallana í spilinu..... of mikil hreyfing í því. Þarna lágum við hver um aðra þvera og gátum okkur hvergi hreyft vegna ofáts.... held að ég hafi fengið mjög góða sýn inní líf offitusjúklings og komst að því að það er eitthvað sem ég hef ekki áhuga á að leggja fyrir mig.... Andlitið á mér ber vott um það að of mikils sykurs hafi verið neytt í gær..... jájá, ógeðisbólurnar eru mættar á svæðið!! það eru væntanlegar myndir af þessum ósköpum! (ekki bólunum heldur snilldinni í gær)

Þar sem ég er bankastóri Landsbankans þá hef ég vald til þess að ráða fólk og hef ég nú þegar nýtt mér það vald..... jammm, ég réði Hörpu Björk í bankann þannig nú verður dansað :-) Keypti mér meira að segja ógeðslega sæta hvíta skó á föstudaginn og verða ófá danssporin tekin í þeim í bankanum í sumar..... gleði gleði.


This page is powered by Blogger. Isn't yours?