<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Hlussa! 

The little gay man á afmæli í dag.... til lukku með það.

Ef það er eitthvað að marka þennan teljara þá er greinilega eitthvert rennerí í gegnum þessa síðu, bara gaman að því.... nei það er ekki bara ég að hamast á refresh takkanum (ég veit hvernig þið huXið).

Það er búin að vera bongó blíða í allan dag og ég sat eins og klessa inná bókasafni og át súkkulaði (hljómar bara eins og týpískur dagur), en svo fékk ég ógeð.... varð að komast út og hreyfa á mér rassgatið, þannig að ég kláraði súkkulaðið og dreif mig út. Ætlaði að fara í sund en endaði í smá göngutúr úti og brjáluðu hlaupi á brettinu inní bílskúr.... ljúft var það og hreyfing næstu vikna komin. Get þá haldið áfram að sitja eins og hlussa fyrir framan tölvuna og borðað mitt Prins polo.... huggó.

Aðalfundur fsha er á föstudaginn í Deiglunni..... ég hlakka til!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?