<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Frekar tæp 

Ég held að ég sé endanlega að missa það þessa dagana..... í skólanum í gær ætlaði ég að kaupa mér kringlu. Ég stóð fyrir framan konuna í sjoppunni og beið eftir að hún gæfi mér til baka.... þannig að við stóðum þarna báðar, hún horfandi á mig eins og ég ætti virkilega bágt og ætti svo sannarlega ekki heima í háskóla og ég á hana eins og gamla trega kjellingu sem fattaði ekki að hún ætti að gefa mér til baka....svo ákvað hún að taka af skarið og spurði hvort ég ætlaði ekkert að borga!! Já OK þannig að það virkar svoleiðis, þarf ég að borga áður en ég fæ til baka...dööö.
Ég ætlaði líka að sjóða pasta um daginn, vatnið var farið að sjóða þannig að ég lækkaði hitann.... svo eftir nokkrar mínútur fór ég að pæla af hverju ég væri að sjóða vatn, hlýtur að hafa verið einhver tilgangur með því....ójá, pastað átti að fara út í það!!
Jájá, ég er svona pínu utan við mig eða eins og Daninn segir, ekki alveg með fulle femm.

Annars er hárið á mér orðið frekar skuggalegt... ég minni alltaf meira og meira á Jón Ásgeir!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?