<$BlogRSDUrl$>

laugardagur

Dómari 

Það var ógeðslega gaman að vera dómari í Söng- og hæfileikakeppninni..... auðvitað var frír bjór handa okkur á meðan á keppninni stóð og við nýttum okkur það í þaula, höfðum meira að segja hlé bara til að lengja keppnina.... ótrúlega sniðug. En þetta var snilldar lið sem var að dæma með mér og við skemmtum okkur konunglega..... við brutum samt páskaeggið alveg óvart!!
Eftir að hafa látið ljós mitt skína sem dómari tóku dansspor dauðans við..... Gylfi er rosalegur í sveiflunum og við gjörsamlega fórum á kostum. Eftir að hafa tjúttað smá við hljómsveitina Sent, sem var að gera mjög góða hluti þarna, skelltum við okkur í karókí..... ég, Thelma, Beggi, Alli, Gylfi, Ólöf, Kristjana og einhver Hrafnhildur hlupum á Oddvitann og létum ljós okkar skína.... sérstaklega strákarnir sem tóku hvern slagarann á fætur öðrum og auðvitað fórum við á kostum þarna.... kemur sennilega mynd af okkur í Dagskránni J En já, talandi um myndir.... verð að fá myndir hjá Thelmu af þessu kvöldi og skella í myndaalbúmið mitt. Váá, hvað ég skemmti mér vel og litlu hvítu skórnir mínir voru að gera góða hluti!!

Þegar ég svo kom heim var auðvitað búið að taka herbergið mitt af mér þannig að ég skreið í rúmið hans Bjössa.... maður þarf að líða fyrir það að eiga stærsta herbergið í húsinu. Svo í morgun vaknaði ég snemma til að fara uppí skóla og gera verkefni.... þá voru allir enn sofandi í mínu herbergi þar sem öll fötin mín og allt mitt er þannig að pabbi fór inní bílskúr fyrir mig og fann gamlan poka með fötum sem ég átti þegar ég var 16 ára..... vægast sagt ógeðsleg föt, en ég fann mér einhverjar allt of stórar gallabuxur og ljóta peysu og mér leið ekki vel í þessari múderingu. Til að fullkomna ömurlegheitin þá ákvað ég að fara í gullskóna mína (jammm, á sko hrikalega flotta gullskó.... þegar við vorum að föndra fyrir árshátíðina vorum við að spreyja með gullspreyi og ég spreyjaði bæði skóna og buxurnar mínar, semsagt glæsilegir spreyjaðir gullskór sem ég á). En svona er ég hugulsöm, læt mér líða illa svo öðrum geti liðið vel.

En núna er stefnan tekin með Stínu í fjallið..... er ekki að fara á skíði heldur horfa á Gísla pína sig á gönguskíðunum. Gylfi er sennilega líka þarna og fróðlegt verður að sjá hvernig heilsa hans er eftir viðburði næturinnar......

This page is powered by Blogger. Isn't yours?