<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Þvílíkt og annað eins... 

Isss, nú er ég sko ekki nógu hamingjusöm með námið mitt.... eða námið er kannski fínt en það er málið að ég valdi mér ferðaþjónustubraut og hef þurft að líða fyrir það alveg frá því ég hóf þetta nám. Ég og Harpa Hrönn erum semsagt bara tvær eftir á þessari braut þannig að núna var ákveðið að troða okkur í tíma með helvítis fjarnemunum.... og engin smá tímasetning, annað hvort á miðvikudögum frá 19-21 eða 17-19.... já eða á föstudögum frá 19-21!!! Einmitt, frábært.... get ekki beðið eftir að byrja þetta.... sitja heima og horfa á kennarann. Ég hef sko ekki nógu mikinn aga til að sitja heima og hlusta á kennarann á föstudagskvöldum (eða bara hlusta á þá almennt).... þetta verður nú ljóti áfanginn. En þetta er ekki í fyrsta skipti.... nei nei, í fyrra þurftum við að mæta í tíma annan hvern föstudag frá 17-19 og líka á laugardagsmorgnum (man ekki klukkan hvað, er að reyna að gleyma þessum ógeðis tíma í lífi mínu)..... huggulegt, eintóm hamingja á mínum bæ núna!!
En ég fer í minn fyrsta tíma á morgun... stundaskráin er voða þunn. Þriðjudagar 12:35- 15:10, miðvikudagar 8-10 og svo föstudagar 10-12.... og svo lokaritgerðin.

Ég hélt ég væri að missa vitið á laugardaginn þegar ég komst að því að litli strákurinn í húsinu við hliðina á mér var að halda partí.... og það ekkert smá. Hann bauð sko uppá lifandi tónlist, fór með rafmagnsbassann útá palla hjá sér og glamraði þar, inn á milli heyrðust svo þessi rosalegu öskur.... já, þetta 15 ára lið kann sko að skemmta sér. Það er bara svo stutt síðan þessi drengur var ber að ofan um miðjan vetur, í byssó uppá hól. Eða þegar hann stakk af úr baðinu og fór út að hjóla í stígvélunum einum saman..... nú er hann semsagt orðinn fullorðinn og farinn að halda partí. Það snar þagnaði samt allt klukkan 12.... getur verið að Ebburnar hafi mætt á svæðið og slátrað þeim.

Það er ekki hægt að þverfóta fyrir heilsuauglýsingum þessa dagana. Líkamsrætarstöðvar auglýsa eins og þetta sé þeirra síðasta, megrunarpillur og drykkir aldrei verið vinsælli, verið að reyna að sannfæra fólki um að það hafi aldrei litið eins illa út og akkúrat eftir jólin og ég veit ekki hvað og hvað.... þetta hefur allt öfug áhrif á mig, það er sennilega þrjóskan því mér dettur ekki í hug að fara í megrun..... bara borða minna af nammi, en ALDREI skal ég hætta því!!!

Er að fara á fyrsta skemmtifundinn á eftir.... allt að komast á fullt. Svo á ég að spila undir hjá undirleikaranum mínum þegar hún útskrifast úr söng í vor... æfing fyrir það á morgun. Fínt að rífa sig uppúr sófanum og letilífinu....

Ragnheiður biskupsdóttir brókar var með sótt....!!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?