laugardagur
Ráðabruggið
Jæja ekki veit ég hve mörg ykkar trúðu því að ég væri að fara til Pakistan til að versla mér kall en ég er viss um að Eygló trúði því.... haha, það er hægt að segja allan andskotan við hana. En auðvitað þarf ég ekkert að versla mér kall.... eða það vona ég svo sannarlega ekki. Ég og Villi erum búin að gera samkomulag að ef við verðum single þegar við erum orðin fertug, þá ætlum við að giftast hvort öðru.... það yrði skrautleg sambúð :-)
Jæja málið er það að ég ætla að vinna í bankanum í sumar og græða peninga, svo í október þá er ferðinni heitið til ÁSTRALÍU þar sem ég og Harpa Hrönn ætlum að vinna og ferðast um landið fram yfir áramót... chilla á ströndinni um jólin með bjór í annarri og einn sveittan í hinni (strák eða hammara!!). Eftir áramót mun svo Harpa fara til Nýja Sjálands í skóla og læra master í ferðamálafræði en ég verð í Melbourne og tek 10 vikna námskeið í business english..... eftir námskeiðið ætla ég svo til Hörpu og fæ vonandi vinnu, annars verð ég bara að ferðast og halda áfram að hafa það gott.
Ég ætla svo að koma heim um sumarið og græða meiri pening því um haustið 2005 ætla ég að flytja til Þýskalands og fara í master í sennilega stjórnun (ekki alveg ákveðið)..... jamm jamm, þetta er það sem bíður mín og er ég ekkert nema spenningurinn. Við ætlum að kaupa okkur digital myndavélar og vera ógeðslega duglegar að taka myndir og setja á netið þannig að allir geti fylgst með okkur.... eða auðvitað þeir sem hafa áhuga.
Þá er þetta endanlega orðið opinbert og hér eftir verður ekki aftur snúið með þessa hugmynd....