<$BlogRSDUrl$>

laugardagur

Hvað er að gerast....?? 

Horfði í Idol í gær og djöfull er ég svekkt.... af hverju í andskotanum datt Anna Katrín ekki út? Fólkið hefur kosið hana bara útaf samúð. Jújú, hún er með rosa útgeyslun og lifir sig inní það sem hún gerir og allt það.... en þegar manneskjan er búin að vera raddlaus og gjörsamlega ósönghæf í margar vikur þá á að henda henni út og ekkert kjaftæði. Ég var ekkert smá foj eftir þáttinn í gær þegar það kom í ljós að Ardís datt út.... þvílíkt ósanngjarnt. Já og svo ég klári þáttinn... að velja lagleysuna sjálfa til að vera gestadómari..... kræst!!
En mikið ógeðslega var Svínasúpan fyndin í gær..... þvílíkir snilldar þættir og ekkert annað :-)
Ég tók klarinettið mitt upp í gær og ákvað að blása aðeins í það... vúppss, kannski aðeins of langt síðan ég gerði það síðast... ég var alveg uppgefin eftir svona hálftíma. Þvílíkur aumingjaskapur. En þá er bara að herða í sér af því að það eru SN tónleikar 8. febrúar. Spilum 2. Sinfóníu Brahms og svo eitthvert verk eftir Mahler og einhver kona mun syngja með.... æi kemur betur í ljós seinna.
Er einhver til í að koma með mér í sukk- og verslunarferð til Reykjavíkur um næstu helgi? En ég á sko ekki bíl og ég tými ekki að fljúga....
Í fríinu mínu er ég búin að vera nokkuð dugleg við að horfa á video og ég verð hreinlega að mæla með einni mynd sem allir hafa gott af því að sjá og er held ég núna í bíó..... en hún heitir City of God. Fyrir mér eru bíómyndir aðallega afþreying og ég pæli ekki mikið í þeim, en þessi mynd er rosaleg.

Þormóðs á afmæli í dag..... held hann sé í Belgíu en samt sem áður, til lukku með daginn!!


This page is powered by Blogger. Isn't yours?