<$BlogRSDUrl$>

föstudagur

Gleðilegt ár 

Blessuð og sæl öll og gleðilegt ár :-)
Vona að nýja árið leggist vel í ykkur og að þið hafið notið áramótanna alveg útí ystu æsar. Eftir að hafa borðað mig pakk sadda af kalkún, spilað, spjallað, horft á skaupið, skotið ragettum og skálað fyrir nýju ári þá hélt ég í partí til Lóu. Þar var fullt af fólki sem ég þekki og líka sem ég þekki ekki neitt.... var frábært að hitta Guðbjörgu (sem bæ ðe vei segist vera byrjuð að blogga aftur... ég færi hana í virka flokkinn ef hún heldur áfram þegar hún snýr aftur til Danmerkur). Allavegna þá var fólk mis drukkið þarna, sjálf var ég EDRÚ og Á BÍL.... já já, shit happens.
Sá eitt stykki hálfvita í götunni minni þegar við vorum að bomba hverfið..... jamm, kjellingar begla úti að labba með hundinn sinn.... ég náði henni á video þannig að ykkur er velkomið að koma og skoða..... freak show!!

Og furðulegir hlutir gerast enn..... í gær var í sjónvarpinu mynd sem heitir Opinberun Hannesar (tek það fram að ég horfði ekki á hana) en það merkilega er að hún er frumsýnd í bíó í kvöld...... jájá, Rúv bara farin að sýna myndir áður en þær koma í bíó.

Nú er stefnan tekin á að klæða sig og skella sé í átveislu.... 18 ára afmæli hjá Sólveigu frænku minni. Í kvöld ætlar Guðbjörg svo að bjóða okkur vinkonunum heim til pabba síns..... pabbi hennar ætlar meira að segja kannski að elda handa okkur, myndarlegur maðurinn.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?