<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur

Lokaprófsgettogether 

Búin að taka fataskápinn í gegn.... allt nema hilluna og skúffurnar tvær með bolunum mínum, ég legg barasta ekki í það. Náði að losa mig við einn og hálfan ruslapoka bara af peysum og buxum og losa 10 herðatré.... nokkuð gott.
Annars er ég bara búin að vera að slæpast og reyna að finna jólagjafir og það hefur gengið ágætlega. Mér finnst þetta bara eitthvað svo leiðinlegur tími ársins.... allir í flogi inni í búðunum, hvergi hægt að fá bílastæði og stanslaust verið að telja niður í jólin í útvarpinu og veldur því að fólk stressast enn meira..... hrikalegt. Annars er ég mjög chilluð og ætla að fara í kvöld og fá mér bjór. Hinsvegar má ég ekki drekka mikið af honum þar sem ég er að fara til hjartalæknis á morgun.... ekki laust við að það sé smá stress í gangi þar sem ég hef bara einu sinni áður farið til læknis (þegar mamma lét tékka hvort ég væri nokkuð hætt að stækka, gama að því). En það er búið að vera að fylgjast með hjartanu í nokkra daga og svo er það bara doktorinn sjálfur á morgun.... úfff
Skrapp á Glerártorg í dag, frekar leiðinleg verslunarmiðstöð að mínu mati, en þar sá ég skemmtilega og miður skemmtilega sjón.... bara bland í poka. Það var ekkert mikið að gerast þar frekar en venjulega í svona búðum.... bara steikjandi hiti.

Afmælisbarn dagsins er hinn sprellfjörugi Keith Richards.... orðinn sextugur kallinn, flottur!!

Jæja, best að pakka þeim pökkum inn sem eiga að fara í borgina og leggjast svo í bað áður en átök kvöldsins taka við!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?