<$BlogRSDUrl$>

mánudagur

Horrenglur og gamlir rokkarar 

Þegar prófin nálgast þá breytist líkamsstarfsemin algjörlega. Ógeðisbólur blómstra í andlitinu á mér, nammifíknin segir til sín sem aldrei fyrr (og kannski þess vegna sem ógeðisbólurnar koma fram), mig langar að sofa endalaust lengi og mikið, er fyrir vikið frekar mikið drusluleg og svo er heilinn á mér algjör froða þannig að mér dettur ekkert í hug sem ég get bloggað um.... meira ástandið.
Ég er líka með rosalegar áhyggjur af því í hverju ég á að fara í brúðkaupið sem er um næstu helgi.... á svo gríðarlega mikið af gellufrænkum þannig að það má ekki vera of áberandi að ég sé dreifbýliskona. Er búin að panta mér klippingu/litun á föstudaginn en veit ekkert hvað ég á að láta gera..... mig langar líka að prófa að láta lita á mér augabrúnirnar en er svo hrædd um að afskræmast við það..... eins og þið heyrið er eintómt volæði í gangi!!

Horfði á sjónvarpið á laugardagskvöldið.... laugardagskvöld með Gísla Marteini var ljómandi skemmtilegt, Magga föða var í smá viðtali en það sem toppaði þáttinn var að sjálfsögðu enginn anar en Nauðgarinn..... hann er orðinn ógeðslega gamall en geggjað svalur gaur.
Eftir þann þátt byrjaði einhver tísku og tónlistarþáttur og þar bar ég augum einhverjar þær mestu horrenglur..... greyið stelpurnar. Alveg dauðar í andlitinu, engin lífsgleði til staðar og svo horaðar að Beyonce Knowles virtist feit miðað við þær..... eins og hún er nú flott!!

....eitt barn á dag, brúnt á litin.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?