mánudagur
Brúðkaupið
Ég átti svo sannarlega magnaðan laugardag. Um morguninn ákvað ég nú að stytta enn einar buxurnar og hafði ég hugsað mér að fara í þeim í brúðkaupið.... Þurfti að taka ansi mikið neðan af þeim þannig að ég ákvað að prófa að sauma buxurnar fyrst og klippa svo, en ekki öfugt eins og ég hef alltaf gert og á sennilega að gera. Jæja, ég saumaði þær saman en svo þegar ég prófaði að fara í þær þá auðvitað kom búturinn sem var innaná niðurfyrir (ok, veit að þetta hljómar fáránlega en ég kann bara ekki neitt saumakonumál), þannig að ég klippti bútinn sem var innaná buxunum..... það gekk svona líka ljómandi vel á annarri skálminni en ekki eins vel á hinni.... þegar ég skoðaði skálmina betur kom í ljós að ég hef haldið eitthvað vitlaust á buxunum því það var komið gat í miðja skálmina sem ég hafi klippt úr...... vúpps, þannig að ég skipti yfir í bútasauminn og reyndi að sauma fyrir gatið. Hrikalegt og ég gat sko ekki farið svona í brúðkaupið þannig að ég þurfti að finna mér aðrar buxur. Það tókst á endanum og þegar ég var að fara að leggja af stað útá völl fékk ég sms; búið að fresta fluginu, mæting 16:15..... daaaa helvítis Reykjavíkurveður. Jæja ég myndi alveg sleppa ef ég færi með þeirri vél, yrði allavegna komin fyrir klukkan 18. Svo klukkan 16 fékk ég annað sms; aftur töf, mæting 16:45...... shit, þarna var ég orðin stressuð og ég var búin að ákveða að ef fluginu yrði frestað enn eina ferðina þyrfti ég að hætta við að fara. Hef aldrei óskað þess jafn heitt að fá ekki sms og það virkaði. Ég var komin í loftið 17:15 og ferðin tók klukkutíma. Var lent 18:15, sat aftast í vélinni og fólkið var ekki að flýta sér út...... þegar ég loksins komst út hljóp ég í fyrsta leigubílinn sem ég sá og brunaði í Dómkirkjuna (lenti á flottum leigubílstjóra....var frekar mikið gamall, talaði og talaði en hafði rás1 í botni á sama tíma þannig að ég heyrði ekkert hvað hann var að segja, sagði bara já og nei til að vera með) Allavegna, ég náði síðasta laginu í athöfninni og sá brúðhjónin labba út..... hefði verið nokkuð gott að riðjast inní kirkjuna með látum, en ég fór mjög pent í þetta!
Verð að segja það að Dóra frænka er glæsilegasta brúður sem ég hef séð.... ofboðslega er hún falleg og var í æðislegum kjól. Með svo þennan myndarlega mann uppá arminn.... vægast sagt glæsileg hjón :-)
Svo var haldið í veisluna þar sem var nóg af kjöti að borða og þjónar sem gerðu ekkert nema hella aftur og aftur í glösin hjá manni.... almennilegt. (ég var samt bara í kókinu en fékk allavegna nóg af því!)
Ættin mín kann svo sannarlega að skemmta sér og þetta eru ekkert nema snillingar. Ruglað út í eitt um einhverja blökkumenn, sérstaklega svarta kærastann hennar Höllu, Ole!! En sá sem stóð sig lang best og gjörsamlega sló í gegn var enginn annar en Kobbi hann fór svoleiðis á kostum drengurinn á dansgólfinu og tók hverja dömuna á fætur annari og sveiflaði henni um á milli þess sem hann tók míkrafóninn og söng..... alveg brilliant og fær drengurinn fimm rokkslæður fyrir snilldar takta :-) Ég er samt mest svekkt yfir því að atriðið hans Gossa datt uppfyrir. Sólveig frænka mín er búin að æfa magadans í nokkurn tíma og ætlaði að sýna hann og Gossi ætlaði svo að koma inná sviðið og dansa með henni.... mikið ofboðslega hefði það verði fyndið. En Sólveig var hálf veik þannig að hún treysti sér ekki til að dansa..... svekkelsi.
Annars voru allir í gúddí fíling eins og venjulega og ég skemmti mér ofboðslega vel.....algjör snilld :-)
Vona að ég geti kannski einhverntíman sýnt ykkur myndir!!
Var í mínu fyrsta prófi áðan..... lögfræði og það gekk ljómandi vel. Vona bara að það haldi svoleiðis áfram. Ferðaþjónusta á morgun og svo "frí" fram á föstudag...