<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Síðasti dagurinn.... á morgun 

Síðasti dagurinn á þessu ári er á morgun.... ekki lengi að líða eitt stykki ár. Það er búið að vera ljómandi skemmtilegt þó ég haldi að næsta ár verði enn viðburðaríkara..... þá ætla ég neflilega að útskrifast úr skólanum og svo tekur óvissan við. Jájá, ég veit ekkert hvað ég á af mér að gera þegar ég hef lokið skólanum. langar mest til að flytja til London og hafa það huggulegt, eyða peningunum mínum. En það gengur held ég ekki upp.... ætla að mennta mig eitthvað meira og hafa það svo huggó í London þegar ég er orðin aðeins eldri.... eða þetta segi ég núna, aldei að vita hvað mig langar á morgun..... heimavinnandi húsmóðir kannski..... er neflilega klofin, þið skiljið!!

Er semsagt uppí skóla núna og les stefnumótun.... fínt að eyða næst síðasta degi ársins í lærdóm uppí skóla. Hafði reyndar hugsað mér að vera heima og lesa en nei nei, Gísli er að gera eitthvað í tölvunni heima þannig að ég þurfti að víkja.... ekki nóg með það heldur tók hann líka herbergið mitt af mér (og hýsir fjölskyldu sína þar) þannig að ég þarf að sofa í gestaherberginu.... einmitt, útskúfunin hafin.

Flott flott, áramót á morgun og ég er strax farin að kvíða matnum.... mútta verslaði neflilega 9 kílóa kalkún, það verður sko át í lagi!! Svo er það Lóa´s pleis eftir miðnætti, þegar við erum búin að bomba smá og skála fyrir nýju ári.... kannski maður búi bara til eina risa bombu og láti vaða á Ebburnar..... held að þessi hugmynd komi upp á hverju ári, spurning hvenær hún verður að veruleika!!

laugardagur

át, drykkja og meira át 

Þá eru fyrstu dagar jólanna liðnir með öllu sem þeim tilheyrir. Ég hef að sjálfsögðu átt frábær jól og þakka öllum kærlega fyrir jólakortin, kveðjurnar og auðvitað alla pakkana. Í hnotskurn eru jólin búin að snúast um mikið át og mikinn svefn..... já svo var það auðvitað djamm í gær, annan í jólum. Fór í partí heim til bróður hans Grjóna (Ace of bace hljómuðu í bland við Jethero Tull.... góð blanda) og svo í Sjallann með Hörpu. Hitti Bjössa þar og þvílík snilld.... ekki eins skemmtilegt að djamma með neinum eins og Bjössa. Pósur dauðans litu dagsins ljós og það var flippað út í eitt.... hitti líka gamla bekkjarfélaga úr MA (herra Ísland og Daða)

Á morgun er svo málið að byrja að glugga aðeins í Stefnumótunarbækurnar.... eintóm hamingja.

Nenni ekki að skrifa neitt meira.... ætla að leggjast uppí rúm, horfa á sjónvarpið, borða súkkulaði og drekka appelsín..... Bjössi stakk mig af!!

þriðjudagur

GLEÐILEG JÓL!! 

".... Katrín Harðardóttir sendir vinum og vandamönnum um land allt hugheilar jóla- og nýjárskveðjur. Þakka frábærar stundir á árinu sem er að líða....ekki djamma of grimmt á komandi ári. KataHá...." Svona myndi mín kveðja hljóma í útvarpinu... Gerður G. Bjarklind myndi lesa hana.... ekkert meira jóla en jólakveðjurnar í útvarpinu á Þorláksmessu allavegna.

Verð að hneykslast smá á þeim plebbalíð sem húkir inná skemmtistöðum borgarinnar um helgar.... og sennilega líka ekki um helgar. Sammi frændi minn (fyrir þá sem ekki vita hver hann er, þá er hann básúnuleikarinn í Jagúar og er algjör töffari) hann var semsagt að skemmta sér á einhverjum skemmtistað á laugardaginn þegar fimm negrar með rörbút tóku sig til og réðust á hann.... OK kannski smá ýkt, en sögurnar eru yfirleitt skemmtilegri þannig. Það var allavegna ráðist á hann og hann laminn. Og Sammi sem gerir engum mein.... svona er þetta orðið. Aumingja drengurinn vinnur við það að spila og auðvitað getur hann ekkert spilað með bólgið andlit.... hrikalegt.

Þorláksmessa og þá fer ég alltaf með vinkonum mínum í bæinn að skoða fólk og sprella smá. Í fyrra lenti ég í ferlega fyndinni reynslu inni í Aladin búðinni..... reykelsisbúð dauðans. Byrjaði á því að fá hóstakast þarna inni og kjellingin sem vann þarna drap mig með augunum, svo verð ég stundum pínu handóð og í fyrra missti ég tvær kúlur (svona drasl kúlur sem maður rúllar í lófanum og á með því að öðlast sálarró) kúlurnar pössuðu ekki í lófann minn og duttu þess vegna í gólfið og brotnuðu..... úpppps, þetta drasl kostaði mig 2.500 krónur (peningur sem ég ætlaði að nota í Sjallann og bjór)..... mikið ógeðslega var þetta samt fyndið og þetta eru frægar kúlur..... Kjellingar beyglunni sem var að vinna þótti þetta ekki fyndið og ég er viss um að hún á wúdú-dúkku sem hún potar annaðslagið í....

Jæja, hafði það ofboðslega gott um jólin og áramótin hvar sem þið verðið í heiminum.....

sunnudagur

jólajóla 

Ég get ekki hamið mig í þessu bloggi....
Í gær var semsagt massa djamm. Þar sem Sálin var að spila í Sjallanum og allir komnir í jólafrí gekk ekkert annað en að mæta snemma í miðasöluna til að tryggja sér miða.... auðvitað fór ég í röðina og ég sver að ég hélt að það væri mitt síðasta, að ég myndi drepast í röð. Það var ógeðslega mikið af fólki og eftir því sem ég fikraðist nær því þrengra varð.... svo var 300 kílóa gyltan ekki að gera góða hluti. Ekki nóg með það að ég var kramin uppvið vegg heldur lagðist þessi jussa á mig og kramdi í mér öll innyfli..... ánægjulegur dauðdagi það!
Þrátt fyrir þessa ógeðislífsreynslu skemmti ég mér ljómandi vel og frábært að hitta þá sem ég hef ekki hitt lengi.... og auðvitað líka frábært að hitta fólk sem ég hitti oft!

Jæja, 3 dagar eða eitthvað í jól..... styttist í ofát, ofdrykkju og fleira skemmtilegt.

laugardagur

Plehh 

Horfði á Idol í­ gær eftir að hafa skorið nokkur laufabrauð í hinum ýmsu myndum. Tengdasonur þjóðarinnar bara kosinn í­ burtu og allar stelpurnar í­ salnum fóru að gráta.... Get í­myndað mér að það rí­ki mikil sorg hjá öllum 17 ára stelpum núna.
Próflokadjammið heppnaðist mjög vel. Ég og Harpa Björk vorum auðvitað fyrstar á staðinn og fengum fullt af frí­um bjór...ekki slæmt. Samt frekar asnalegt að byrja að drekka klukkan 9 og fara heim kl. 1.... reyndar ógeðslega sniðugt því þá er dagurinn eftir ekki í­ tómu rugli eins og þegar maður fer út á föstudags og laugardagskvöldum.....
Áður en við fórum á Dátann á fimtudaginn ákvað ég að sýna Hörpu kápu sem mig langar ógeðslega mikið í­.... ég er búin að horfa á hana í­ nokkurn tí­ma en aldrei þorað að máta. Ég mátaði hana svo á fimmtudaginn og gjörsamlega féll fyrir henni og keypti hana (einmitt það sem mig grunaði að myndi gerast).... er ógeðslega ánægð með hana og bað mömmu og pabba um að gefa mér hana í­ jólagjöf, algjör snilld.
Lóa kemur norður á eftir... las á blogginu hennar að ég má mæta í­ parí­ til Nonna, en þar sem við plötuðum Elsu til að halda smá teiti þá fer ég þangað og vona að Lóa láti líka sjá sig þar.....það er lí­ka fjör að flakka á milli partí­a. Fjóla er líka að koma í bæinn og Lí­ney..... allt að gerast í kvöld og allir á leið í­ Sjallann.
Var að tala við Bjössa og hann leggur af stað til landsins í­ kvöld og kemur svo til Akureyrar á morgun..... vei vei, á morgun :-)
Skoðið líka hvað Sunna Kristín er orðin stór og ógeðslega sæt.... 6 mánaða og með þessa fínu kórónu!!

Ég skelli svo einu gleðilegjólbloggi hingað inn á miðvikudaginn en þangað til, ble ble

fimmtudagur

Lokaprófsgettogether 

Búin að taka fataskápinn í gegn.... allt nema hilluna og skúffurnar tvær með bolunum mínum, ég legg barasta ekki í það. Náði að losa mig við einn og hálfan ruslapoka bara af peysum og buxum og losa 10 herðatré.... nokkuð gott.
Annars er ég bara búin að vera að slæpast og reyna að finna jólagjafir og það hefur gengið ágætlega. Mér finnst þetta bara eitthvað svo leiðinlegur tími ársins.... allir í flogi inni í búðunum, hvergi hægt að fá bílastæði og stanslaust verið að telja niður í jólin í útvarpinu og veldur því að fólk stressast enn meira..... hrikalegt. Annars er ég mjög chilluð og ætla að fara í kvöld og fá mér bjór. Hinsvegar má ég ekki drekka mikið af honum þar sem ég er að fara til hjartalæknis á morgun.... ekki laust við að það sé smá stress í gangi þar sem ég hef bara einu sinni áður farið til læknis (þegar mamma lét tékka hvort ég væri nokkuð hætt að stækka, gama að því). En það er búið að vera að fylgjast með hjartanu í nokkra daga og svo er það bara doktorinn sjálfur á morgun.... úfff
Skrapp á Glerártorg í dag, frekar leiðinleg verslunarmiðstöð að mínu mati, en þar sá ég skemmtilega og miður skemmtilega sjón.... bara bland í poka. Það var ekkert mikið að gerast þar frekar en venjulega í svona búðum.... bara steikjandi hiti.

Afmælisbarn dagsins er hinn sprellfjörugi Keith Richards.... orðinn sextugur kallinn, flottur!!

Jæja, best að pakka þeim pökkum inn sem eiga að fara í borgina og leggjast svo í bað áður en átök kvöldsins taka við!!

þriðjudagur

Jólafrí 

Jæja, prófin kláruðust víst hjá mér í gær...... eintóm hamingja, bara svona eins og alltaf. Í tilefni prófloka fór ég heim og þreyf herbergið mitt sem ég sef í og svo læriherbergið mitt.... algjör tæja. Enginn smá tími sem fór í það enda ekkert djók að þrýfa tvö 300 fermetra herbergi. Í dag er það svo fataskápurinn minn.... úfff, það verður eitthvað skrautlegt. (Ég myndi bjóða ykkur einhver föt en þar sem enginn passar í neitt af mér nema ég sjálf, þá sleppi ég því....)
Síðasta prófið gekk ekki alveg nógu vel. Það var einhver ritstífla í gangi og ég þurfti alltaf að tala í kringum hlutina af því að mundi ekki hvað þeir hétu.... málfarið var alveg vonlaust og ég var alltaf að stroka út og laga.... þannig að það væri fínt að fá nýtt strokleður í jólagjöf, já og svo vantar mig líka drullu í hárið – Di:fi með ljósbláu loki.
Auðvitað þurfti ég að fagna próflokum en þar sem ég á enga vini var enginn tilbúinn til að gera neitt með mér þannig að ég endaði ein yfir sjónvarpinu með vodka í báðum og horfði á Survivor.... Fínasta kojufyllerí! Nei bara grín, mér finnst Survivor ekkert skemmtilegt..... aðal fagnaðarlætin hjá mér voru að sofa í 12 tíma.... ójá, það var sko ljúft :-)
Hlakka til að komast á Dátann í frían bjór á fimmtudaginn.... jamm ég ætla sko að mæta um leið og opnar. Sötra bjór og spjalla við fólkið, eins gott að allt skemmtilega fólkið mæti.
Laufabrauð á föstudaginn, ekki seinna vænna... það er alltaf stuð. Fullt af fólki, kók og Prinz póló í tonnavís og svo pizza um kvöldið..... hlakka til, samt enginn Bjössi og enginn afi.... það verður skrýtið!!
Ég ætla að skrifa jólakort til Eyglóar, já hún fær kort þar sem hún verður ekki á landinu um jólin (þannig að ef þið viljið kort frá mér þá skuluð þið flýja land.... einhvernvegin býst ég við að enginn fari neitt!!) Hún verður með fjölskyldunni og Binna sínum á Spáni. Svo verður Hlynur í Belgíu og Toni á Kanarí (þeir fá samt ekki kort.... já svona er þetta bara) Þannig að það verður ekkert djammað með þeim um jól og áramót eins og síðustu ár. En Lóa verður með sitt árlega áramótapartí og það er vel :-)

Leiter allesammen!!

sunnudagur

fundinn, dauður, lokapróf 

Það er svo innilega allt að gerast í heiminum um þessar mundir:
# Búið að handtaka Saddam..... Jájá, guttinn hafði það bara huggulegt ofaní holu á bóndabæ með helling af peningum í poka. Ég verð nú bara að segja að ég vorkenni aumingja manninum. OK harðstjóri dauðans en common, hafið þið sé mynd af kauða.... alveg væri ég til í að setja Bush ofaní holuna, fínt að geyma mannfíluna þar.
# Keikó dauður..... það var mikið. Alveg það fáránlegasta þegar ákveðið var að fljúga með skeppnuna til Íslands í þeim tilgangi að láta hann aðlagast náttúrunni..... og auðvitað klikkaði það. Þvílík peningasóun. Það er samt algjör snilld sem hljómar í hausnum á mér núna....."Keikó, komdu heiiiim"....... svona eins og Toni söng þetta....
# Síðasta prófið mitt á morgun.... jammm, stjórnun 3. Enginn veit neitt um hvað þessi blessaði áfangi snýst og þar er ég engin undantekning. En maður rúllar þessu upp eins og öllum hinum prófunum, ekki spurning.
# Idol á föstudaginn.... fór með Hörpu Hrönn á Dátann og horfðum þar... auðvitað held ég með Önnu Katrínu, en greyið stelpan var ekki að gera alveg nógu góða hluti.... kvefuð. En hún er greinilega voða viðkvæm, úffff hún mun aldrei höndla það ef hún dettur út....

..... éttu skít með hníf og gaffli!!

fimmtudagur

Sýruhaus 

....Efnahagsbandalög, tollar, kvótar, alþjóðakerfi í viðskiptum, endalaus innflutningur og útflutningur og ég veit ekki hvað og hvað. Jamm ég er orðin algjör sýruhaus.... en þessi prófatíð styttist og ég get farið að klæðast eðlilegum fötum aftur.
Mamma fór í bæinn til að kaupa jólagjafir.... jólagjafir já, hmmm eru að koma jól?? Alveg finnst mér það svo innilega ekki, enda hef ég aldrei verið neitt jólabarn. Fínt að fá frí og borða góðan mat. Reyndar er kominn þessi flotti jólasnjór, vona svo innilega að hann haldist og hlussusnjókornin láti sjá sig á aðfanga- og jóladag.... En þegar ég fór að hugsa um jólagjafir þá finnst mér svo stutt síðan ég sat inní herbergi í hláturskrampa og pakkaði jólagjöfinni hans Bjössa inn.... sá leikur verður sennilega endurtekinn í ár þar sem ég er stútfull af brjálæðislegum hugmyndum.... moohhhaaaaa

Lokaprófs get together 18. des......
Djamm djamm djamm þann 20. des.... Lóa er að koma heim og Líney líka :-)
Bjössi kemur ekki fyrr en 21. des.... frekar seint félagi!

Nenni ekki að búa til jólakort..... finnst það leiðinlegt. Ef ég ætti krakka myndi ég kannski senda mynd af honum... eða ef ég væri ný búin að gifta mig.... en það er ekkert svoleiðis þannig að ég er alveg laus við þetta.

..... jó jó, siggalafó!!!

miðvikudagur

Muse 

Einmitt, tónleikarnir eru í kvöld.... Ekkert svekkt að komast ekki, er mjög hamingjusöm yfir því að vera bara heima og LÆRA!!
Allavegna þið sem eruð að fara.... skemmtið ykkur, því ef þið gerið það ekki eruð þið hálfvitar og eigið ekki skilið að fara á svona tónleika....

mánudagur

Brúðkaupið 

Ég átti svo sannarlega magnaðan laugardag. Um morguninn ákvað ég nú að stytta enn einar buxurnar og hafði ég hugsað mér að fara í þeim í brúðkaupið.... Þurfti að taka ansi mikið neðan af þeim þannig að ég ákvað að prófa að sauma buxurnar fyrst og klippa svo, en ekki öfugt eins og ég hef alltaf gert og á sennilega að gera. Jæja, ég saumaði þær saman en svo þegar ég prófaði að fara í þær þá auðvitað kom búturinn sem var innaná niðurfyrir (ok, veit að þetta hljómar fáránlega en ég kann bara ekki neitt saumakonumál), þannig að ég klippti bútinn sem var innaná buxunum..... það gekk svona líka ljómandi vel á annarri skálminni en ekki eins vel á hinni.... þegar ég skoðaði skálmina betur kom í ljós að ég hef haldið eitthvað vitlaust á buxunum því það var komið gat í miðja skálmina sem ég hafi klippt úr...... vúpps, þannig að ég skipti yfir í bútasauminn og reyndi að sauma fyrir gatið. Hrikalegt og ég gat sko ekki farið svona í brúðkaupið þannig að ég þurfti að finna mér aðrar buxur. Það tókst á endanum og þegar ég var að fara að leggja af stað útá völl fékk ég sms; búið að fresta fluginu, mæting 16:15..... daaaa helvítis Reykjavíkurveður. Jæja ég myndi alveg sleppa ef ég færi með þeirri vél, yrði allavegna komin fyrir klukkan 18. Svo klukkan 16 fékk ég annað sms; aftur töf, mæting 16:45...... shit, þarna var ég orðin stressuð og ég var búin að ákveða að ef fluginu yrði frestað enn eina ferðina þyrfti ég að hætta við að fara. Hef aldrei óskað þess jafn heitt að fá ekki sms og það virkaði. Ég var komin í loftið 17:15 og ferðin tók klukkutíma. Var lent 18:15, sat aftast í vélinni og fólkið var ekki að flýta sér út...... þegar ég loksins komst út hljóp ég í fyrsta leigubílinn sem ég sá og brunaði í Dómkirkjuna (lenti á flottum leigubílstjóra....var frekar mikið gamall, talaði og talaði en hafði rás1 í botni á sama tíma þannig að ég heyrði ekkert hvað hann var að segja, sagði bara já og nei til að vera með) Allavegna, ég náði síðasta laginu í athöfninni og sá brúðhjónin labba út..... hefði verið nokkuð gott að riðjast inní kirkjuna með látum, en ég fór mjög pent í þetta!
Verð að segja það að Dóra frænka er glæsilegasta brúður sem ég hef séð.... ofboðslega er hún falleg og var í æðislegum kjól. Með svo þennan myndarlega mann uppá arminn.... vægast sagt glæsileg hjón :-)
Svo var haldið í veisluna þar sem var nóg af kjöti að borða og þjónar sem gerðu ekkert nema hella aftur og aftur í glösin hjá manni.... almennilegt. (ég var samt bara í kókinu en fékk allavegna nóg af því!)
Ættin mín kann svo sannarlega að skemmta sér og þetta eru ekkert nema snillingar. Ruglað út í eitt um einhverja blökkumenn, sérstaklega svarta kærastann hennar Höllu, Ole!! En sá sem stóð sig lang best og gjörsamlega sló í gegn var enginn annar en Kobbi hann fór svoleiðis á kostum drengurinn á dansgólfinu og tók hverja dömuna á fætur annari og sveiflaði henni um á milli þess sem hann tók míkrafóninn og söng..... alveg brilliant og fær drengurinn fimm rokkslæður fyrir snilldar takta :-) Ég er samt mest svekkt yfir því að atriðið hans Gossa datt uppfyrir. Sólveig frænka mín er búin að æfa magadans í nokkurn tíma og ætlaði að sýna hann og Gossi ætlaði svo að koma inná sviðið og dansa með henni.... mikið ofboðslega hefði það verði fyndið. En Sólveig var hálf veik þannig að hún treysti sér ekki til að dansa..... svekkelsi.
Annars voru allir í gúddí fíling eins og venjulega og ég skemmti mér ofboðslega vel.....algjör snilld :-)
Vona að ég geti kannski einhverntíman sýnt ykkur myndir!!

Var í mínu fyrsta prófi áðan..... lögfræði og það gekk ljómandi vel. Vona bara að það haldi svoleiðis áfram. Ferðaþjónusta á morgun og svo "frí" fram á föstudag...

föstudagur

Komin helgi enn eina ferðina 

Skil ekki hvernig tíminn getur liðið svona hratt...mér finnst alltaf vera helgi. Ég verður flutt í sumarhúsið mitt á Tælandi á svífandi starfslokasamning áður en ég veit af....
Ég semsagt fór í klippingu í morgun og lít ofboðslega vel út... ekki eins og það sé eitthvað nýtt!! Frábær kona sem klippir mig alltaf. Sagði þegar hún sá mig; jæja, voru sumir að lita á sér hárið?? Ég er neflilega oftast búin að missa mig í einhverjum eldrauðum lit sem ég kaupi í Hagkaup og búin að skella í hárið á mér.... vægast sagt mjög ljótt, en henni er alltaf vel skemmt þegar ég mæti þannig að það er vel.... ég er allavegna ánægð og svo hárið á mér líka orðið svo sítt.... hehe

Jæja, gamla settið keyrir suður á eftir en ég verð eftir heima af því að ég þarf víst að læra, svo ætla ég líka að fara í bæinn og kaupa mér föt.... helst líka skó... og kannski veski líka.... svo auðvitað einherja hálsfesti, eyrnalokka og svoleiðis smádót... jájá, nóg að gera hjá mér :-) Þarf líka að keyra ömmu á völlinn og fæ að hafa bílinn hennar. Súbarúinn okkar er í láni þannig að það er ekki amalegt að fá ömmubíl.... algjör kaggi það! Var held ég ekki besta hugmynd sem ég hef fengið að koma heim með fyrsta flugi á sunnudaginn.... ef ég þekki ættina mína rétt þá verður stanslaust partí langt fram á nótt, spilað og sungið.... en ég verð bara að vera róleg og fara snemma heim :-(

Daddara..... búin að fá nýjan síma. Ótrúlegt, hann er alveg að vera búinn í hleðslu og ég get ekki beðið eftir því að sjá hvort hann sé líka gallaður....Verðið að vera dugleg að senda mér sms næstu daga svo ég sjái hvort hann sé belaður!!

miðvikudagur

Mannæta og aðeins meiri gleði 

Allt að gerast á þessari síðu.... tvær færslur sama dag.
Ætla bara að deila með ykkur gleði minni, við erum semsagt búin að redda hljómsveit, heiðursgest og kynnum fyrir árshátíðina sem verður haldin í­ Sjallanum laugardaginn 6.mars..... allir að mæta, þetta verður algjör snilld :-)

Horfði á fréttirnar áðan og það var loksins verið að leiða þýsku mannætuna fyrir dóm.... hann auglýsti á netinu eftir ungum og hraustum manni til slátrunar. Það gaf sig einn fram og mannætan tók uppá myndband þegar hann myrti kauða og át hann svo....hmmm, hvor er klikkaðri. Sá sem bauð sig fram til slátrunar eða mannætan?? En mannætunni finnst þetta ekkert tiltökumál þar sem það kemur hvergi fram í­ þýskum lögum að það sé bannað að boða fólk.... mér finnst þetta nokkuð gott!!

Talaði við Bjössa á msn áðan og ég lá í­ hláturskrampa mest allan tímann....váá hvað það verður gaman þegar drengurinn kemur loksins heim.... endalaus geðveiki :-)

Immer dasselbe 

Allt við það sama hjá mér, þreyta, ógeðisbólur og kæruleysið alveg að ná hámarki..... er að reyna að lesa eitthvað fyrir þessi blessuðu próf sem byrja víst á mánudaginn en það gengur eitthvað treglega.
Ég fer semsagt í fjögur próf núna og svo eitt í janúar..... það próf verður örugglega algjör dauði (þótt ég sé að reyna telja mér trú um annað) kennarinn er nebbla vægast sagt ekki sáttur við að ég og Stefanía ákváðum að fara í 100% skriflegt próf í stað allra leiðinlegu verkefnana sem hann lagði fyrir.... erum að fara að tala við kauða í fyrramálið.
Lóa sendi mér próf í gær um sjálfa sig með ofboðslega mörgum spurningum og ég er ekkert smá montin..... fékk níu í einkunn. Er prófsýning Lóa þannig að ég get séð hvað ég gerði vitlaust??!!!
Jæja.... ætli ég verði ekki að lesa smá í lögfræði og ferðaþjónustu. Svo fer ég líka á morgun í BT og það í síðasta sinn í þessu lífi vona ég.

.....Guð býr í garðslöngunni, amma!

mánudagur

Horrenglur og gamlir rokkarar 

Þegar prófin nálgast þá breytist líkamsstarfsemin algjörlega. Ógeðisbólur blómstra í andlitinu á mér, nammifíknin segir til sín sem aldrei fyrr (og kannski þess vegna sem ógeðisbólurnar koma fram), mig langar að sofa endalaust lengi og mikið, er fyrir vikið frekar mikið drusluleg og svo er heilinn á mér algjör froða þannig að mér dettur ekkert í hug sem ég get bloggað um.... meira ástandið.
Ég er líka með rosalegar áhyggjur af því í hverju ég á að fara í brúðkaupið sem er um næstu helgi.... á svo gríðarlega mikið af gellufrænkum þannig að það má ekki vera of áberandi að ég sé dreifbýliskona. Er búin að panta mér klippingu/litun á föstudaginn en veit ekkert hvað ég á að láta gera..... mig langar líka að prófa að láta lita á mér augabrúnirnar en er svo hrædd um að afskræmast við það..... eins og þið heyrið er eintómt volæði í gangi!!

Horfði á sjónvarpið á laugardagskvöldið.... laugardagskvöld með Gísla Marteini var ljómandi skemmtilegt, Magga föða var í smá viðtali en það sem toppaði þáttinn var að sjálfsögðu enginn anar en Nauðgarinn..... hann er orðinn ógeðslega gamall en geggjað svalur gaur.
Eftir þann þátt byrjaði einhver tísku og tónlistarþáttur og þar bar ég augum einhverjar þær mestu horrenglur..... greyið stelpurnar. Alveg dauðar í andlitinu, engin lífsgleði til staðar og svo horaðar að Beyonce Knowles virtist feit miðað við þær..... eins og hún er nú flott!!

....eitt barn á dag, brúnt á litin.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?