þriðjudagur
Tónleikar og Ebburnar
Þá eru bara einir skólatónleikar eftir og þeir eru næsta þriðjudag.... á morgun er samt æfing allan morguninn og svo líka allan laugardaginn af því að það eru tónleikar á sunnudaginn. Endilega allir að mæta á þá, eru fjölskyldutónleikar þar sem við 13 munum spila það sem við höfum verið að spila á skólatónleikunum og svo eitthvað meira..... Eru klukkan 16 í Glerárkirkju :-) Getið líka horft á Aksjón í kvöld og séð okkur (eða á morgun).... um að gera að auglýsa!!
Sá miður skemmtilega nágranna áðan..... það eru tvær gamlar piparjúnkur sem búa rétt hjá okkur (bakvið hús hjá mér er hóll og í kringum þennan hól eru nokkur hús og eru þær þar á meðal, bara eitt hús á milli okkar). Hef ekki séð þessar kjellingar í marga mánuði og við það sjá þær rifjuðust upp nokkuð margar minningar tengdar þeim. Þetta eru semsagt gamlar systur sem hafa alltaf búið saman og það eina sem þær gera er að bögga annað fólk.
Þær:
- höfðu alltaf gaddavírsgirðing í kringum húsið sitt í gamla daga.
- kærðu okkur í fyrra fyrir heilbrigðiseftirlitinu af því að pabbi geymdi kerru á bakvið hús....af því að hún stóð aðeins út fyrir lóðina okkar.
- bönnuðu Manninum sem bjó einusinni við hliðina á þeim að standa á lóðinni þeirra þegar hann málaði bílskúrinn, heldur þurfti hann að liggja á maganum uppá bílskúrnum og mála þannig.
- löbbuðu á sloppnum inn til nágrannans þar sem var partí og slökktu á græjunum.
- voru klikkaðar þegar maðurinn við hliðina á þeim var að þvo bílinn sinn og vatnið rann í ræsið sem er fyrir utan húsið þeirra. Sögðu að þettta væri þeirra ræsi og vatnið mætti ekki renna í það!!
- eru mjög ógnvekjandi. Einusinni gerði ég dyraat hjá þeim og hef sjaldan verið jafn hrædd.
- Kunna ekki að brosa.... eða jú, önnur kann að nota andlitsvöðvana (ekki hin) og gaf mér og Bjössa einusinni súkkulaði..... hélt samt að hún ætlaði að drepa okkur.
- eru ósjaldan skemmtiefni í fjölskylduboðum
- heita Ebburnar og eru snar klikkaðar.....