þriðjudagur
Æla
Vaknaði í morgun með ofboðslega ógleði..... ákvað að sleppa morgnumatnum þar sem lystin var ekki til staðar. Mætti útí Glerárskóla þar sem ég átti að spila þrenna tónleika. Fyrstu tveir gengu vel en þegar þeir þriðju áttu að byrja var ógleðin virkilega farin að segja til sín. Ég hafði fengið mér eina brauðsneið á milli tónleika bara svo ég myndi ekki svelta.... hefði frekar átt að svelta. Þegar tvö lög voru búin var ælan komin mjög ofarlega í hálsinn, svitnaði óvenjulega mikið köldum svita og ég var hætt að sjá á nóturnar, ég sá fram á það að ef ég myndi ekki fara strax, myndi ég æla inni hljóðfærið...... úfff. Ég stökk á fætur og inná klósett þar sem þessi myndarlega gusa kom uppúr mér.... mér var svo skutlað heim.
Ákvað að fá mér vatn þegar ég kom heim af því að ég var að skrælna í munninum.... nokkru síðar ákvað vatnið að yfirgefa líkama minn og fór sömu leið og það kom þannig að ég fór bara uppí rúm og svaf í 3 tíma. Þannig að svona er ástandið á mér núna: Er heitt og kalt til skiptis, kaldur sviti, er að detta niður úr næringarskorti, get ekkert drukkið því það fer strax aftur uppúr mér, þarf að læra en þar sem ég get ekki hugsað þegar ég er svöng þá gengur ekkert að læra..... eintómt volæði.