<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur

Jammm.... ég fór á náttfötunum í skólan í dag! Hversu tæpur er maður eiginlega. Allavegna, þegar ég vaknaði hélt ég að ég væri að verða veik.... heddari, hor og ves. En hörkutólið ég hef ekki verið veik í marga mánuði þannig að ég reif mig á fætur. Það sem ég var svona líka ofboðslega tussuleg ákvað ég bara hafa þennan dag drusludag. Ég var í náttbuxunum mínum og fann einhverjar hlífðarbuxur (ofboðslega þægilegar) sem mamma á og fór í þær yfir. Fór svo í þykka peysu þannig að ég leit út eins og ég hafi verið að koma úr gönguferð...... fyrir utan stýrurnar og baugana. Er komin heim núna og er að fara í 6 ára afmæli til frænku minnar, þannig að ég er komin í venjulegar buxur. Ætla að gefa henni gulrætur í afmælisgjöf þar sem þær voru á óskalistanum hennar..... skil ekki hvað er að börnum í dag. Ef ég hefði einhverntíman svo mikið sem beðið mömmu um gulrætur, hvað þá óska mér þeirra í afmælisgjöf, hefði hún sko látið athuga hvort það væri ekki í lagi með mig..... en þetta er orkuátakið og er reyndar ekkert nema gott um það að segja!!

Keypti mér flugfar til Reykjavíkur um daginn. Er að fara í brúðkaup til Dóru frænku og Fannars 6.des (þau eru þá búin að vera saman í næstum 10 ár...... og hún er ný orðin 25 en hann 56.... hahahaha, nei djók.... hann er 26 :-))...... Fer um miðjan 6. og kem heim með fyrstu vél 7. des.... mjög stutt stopp það, þar sem prófin mín byrja 8..... en ég hlakka til og efast ekki um að þetta verður algjör snilld...... á svo mikið af skemmtilegu skyldfólki sem verður gaman að hitta.


This page is powered by Blogger. Isn't yours?