miðvikudagur
Ráðstefna
Þá er komið að því, ég er að fara á mína fyrstu alvöru ráðstefnu á morgun. Það er semsagt ferðamálaráðstefna í Mývatnssveit og þarna verða allir helstu kallar og kellingar í ferðaiðnaðnum í dag. Viðfangsefni ráðstefnunnar er markaðssetning Íslands og verður án efa mjög fróðleg..... ég þarf þess vegna að fara í greiðslu, förðun og finna mér ný föt svo ég líti nú vel út fyrir þetta merkilega fólk. Kannski ég búi mér til nafnspjöld og lummi að einum og einum..... fínt svona þegar maður útskrifast.... annars eru það bara aumingjabæturnar sem bíða!!
En þessi ráðstefna er alls ekki gefins, þótt maður sé bara eitt stykki nemandi þá þarf maður að borga..... við fáum þó 50% afslátt þannig að við þurfum BARA að borga 4.000 í stað 8.000. Jammm, verðum þarna í kannski 5 tíma.... ágætis tímakaup það!!
Best að huga að lúkkinu fyrir þennan dýra atburð.....