<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur

ROSALEGT!! 

Titillinn segir allt sem segja þarf um föstudaginn..... vááá hvað það var gaman. REKI hitaði upp fyrir mótið á Amor með samlokum, bjór, trommuslætti og söng. Eftir klukkutíma upphitun var svo haldið útá torg þar sem allar deildirnar hittust, þar var sungið, öskrað og bara reynt að hafa eins mikinn hávaða og mögulegt var. Eftir að hafa nýðst all verulega á röddinni var haldið í skrúðgöngu að umferðarmiðstöðinni og hoppað upp í rútu og keyrt útá Þelamörk þar sem keppnin var haldin. Hún gekk mjög vel og þar hélt hávaðinn svo sannarlega áfram..... það var keppt í boðhlaupi, blindraþraut, limbó, kökuskreytingum, átkeppni og reipitogi.... allt saman mjög óhefðbundið. Ég var semsagt ein af dómurunum og það gat verið stressandi.... allir að öskra á mann... en mikið ofboðslega var gaman.... flott Karen í boðhlaupinu. Við vorum á Þelamörk til 16:30 en þá tóku við partí út um allan bæ. Svo var það Sjallinn þar sem söngkeppnin fór fram..... að lokum var svo bikarinn afhentur, það var Stafnbúi sem sigraði í ár en REKI lenti í 3. sæti. Eftir verðlaunaafhendinguna byrjaði ballið....hljómsveitin Sent var að spila og þeir eru ekkert lítið góðir!! Stóðu sig ótrúlega vel og héldu uppi gríðarlegu stuði. Ég, Karen, Beggi og Harpa dönsuðum eins og brjálæðingar..... Karen fór á kostum þegar hún tók tyrkneskan magadans!!! Þvílík snilld.... svona kvöldi er erfitt að lýsa í orðum, set link á myndirnar þegar þær koma.

Laugardagsmorguninn var erfiður..... þurfti að vakna fyrir 11 af því að við þurftum að bera út blöð til að fjármagna útskriftarferðina okkar sem verður vonandi farin í janúar :-) Ég var með einhverja þá verstu strengi sem ég hef nokkurntíman fengið..... líkamsrækt vikunnar var svo sannarlega tekin á föstudagskvöldið...... en líkamsrækt mánaðarins var tekin á laugardeginum. Ég var svo hepppin að lenda í að bera út í einbýlishúsahverfi þar sem tröppurnar ráða ríkjum. Ekki það auðveldasta að labba upp og niður tröppur þegar maður á erfitt með að ganga venjulega...... getið ímyndað ykkur hvernig mér líður í dag.....

Stelpa sem er með mér í skemmtinefnd bætti kjellingar beygluna frá Ólafsfirði alveg upp.... hún spurði mig hvaða ár ég væri fædd og ég sagði 1980 þá kom voða svipur á hana og hún sagði: HA, í alvöru...... þannig að ég spurði hvort hún héldi að ég væri kannski fædd 1985..... þá sagðist hún halda að ég væri jafn gömul henni, eða jafnvel eldri!!! Og vitiði það að hún er fædd 1976!!! hahaha..... þetta finnst mér sko merkilegt og hef aldrei heyrt annað eins áður..... Gaman að því :-)

Þetta er orðið fínt í bili..... lögfræðin kallar en strengirnir kalla samt hærra.....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?