fimmtudagur
Heimasíða
vííí..... tölvunarfræðingurinn hann bróðir minn hefur loksins sett upp heimasíðu fyrir litlu fjölskynduna sína svo umheimurinn geti fylgst með litla krílinu hans og Stínu. Síðan er enn á byrjunarstigi en það eru þó komnar inn nokkrar myndir af henni Sunnu Kristínu sem er algjört krútt..... Njótið :-)
Fór með símann minn enn eina ferðina í viðgerð og í þetta skipti þarf hann að fara alla leið til Reykjavíkur þar sem það er eitthvað hugbúnaðarfock í honum. Á meðan er ég með gamla Siemens símann minn sem enginn hefur viljað kaupa af mér, en ég get ekki beðið eftir að sá nýji komi aftur úr viðgerð.....
Það er klikk að gera í skólanum, endalaus verkefni og um helgina eru svo Sinfó tónleikar þannig að öll helgin fer í æfingar og svo tónleika á sunnudaginn. Þetta er efnisskráin, fyrir þá sem hafa áhuga:
George Bizet: Suite jeux d´enfants
Joseph Hydn: Trompetkonsert
Manuel deFalla: El amor brujo
Zoltán Kodaly: Dansar frá Galanta
Ógeðslega skemmtilegt allt og drullu erfitt líka. Þannig að þeir sem hafa áhuga, endilega komið í Akureyrarkirkju á sunnudaginn kl.16 :-)