laugardagur
Gærdagurinn.....
...heppnaðist alveg ótrúlega vel. Ég kom heim úr skólanum um 4 og þá kom Harpa til mín og við lögðum lokahönd á togarann okkar (skrifuðum nöfnin okkar á hann og úðuðum hann með glimmerúða). Svo var haldið niður á bryggju í þessu líka skemmtilega veðri, ískulda, snjókomu og roki. Við hentum togaranum útí og settumst sjálf á bryggjuna með bjór. Harpa er svo sniðug, hún kom með 2 sólstóla með sér þannig að ég, hún og Beggi fundum okkur skjól, sátum þar, drukkum bjór og kjöftuðum.... ferlega huggulegt. Dómararnir voru ekkert ánægðir með okkur þar sem við gerðum ekkert, en við reyndum að útskýra það að þetta væri togari.... maður kallar ekkert togarana inn í tíma og ótíma. Það ríkti mikil spenna þegar við drógum svo togarann upp...... en enginn fiskur þar. Svo unnum við ekki heldur keppnina um frumlegasta veiðarfærið.... þrátt fyrir að hafa mútað dómaranum!!! En Karen og Thelma urðu í öðru sæti í þeirri keppni og hefðu unnið ef þær væru á sjávarbrautinni.... flott það.
Eftir keppnina ákváðum ég, Harpa og Beggi að skella okkur í pottinn í sundi og það var ekkert smá ljúft... gott að fá hita í kroppinn. Þaðan lá svo leiðin á Tikk Takk þar sem ein vel sveitt og ógeðslega góð nautaloka fékk að renna ljúft niður með bjór og Idol..... fórum sko á Dátann með lokurnar og borðuðum þar.
Svo var það bara heim til Begga í meiri bjór. Ætlunin var að fara á Oddvitann í karókí en það var ekki nógu góður stemmari á staðnum þannig að við fórum aftur á Dátann (fáum sko afslátt af bjór þar). Eftir að hafa setið þar í smá stund mættu Stuðmenn á svæðið til að hita sig aðeins upp og prófa hljóðkerfið. Þá skelli ég mér til Egils og bað hann um að setja mig á gestalista þar sem ég væri fátækur námsmaður.... ekki að spyrja að því, ég fékk meira að segja tvo miða :-) Við vorum svo rekin út af Dátanum kl.12 af því að þá átti Sjallinn að opna. Við út af Dátanum og fórum inn Sjallamegin og beint upp á Dáta í sömu sæti..... ég hef aldrei áður mætt svona hrikalega snemma í Sjallann. Beggi fór heim en Elli kom með í Sjallann. Sátum í smá stund en svo var farið að dansa og það á fullu...... og alveg til 4..... það var svo hrikalega gaman.
Lóa, ég tók lagið okkar og hugsaði sterkt til þín á meðan þeim flutningi stóð..... ætli þú hafir ekki verið hálf dauð niður í bæ á því augnabliki......