laugardagur
Drulla!
Ég skal sko segja ykkur það, þessi blessaða ráðstefna var ekkert nema drulla. Úfff, þarna átti að tala um breyttar áherslur í markaðssetningu Íslands.... já, nei nei eitthvað hafa ALLIR misskilið þetta umræðuefni eða hreinlega ekki skilið það.... fólkið baulaði þarna bara eitthvað um fortíðina og komu með endalausar tölur frá 1997 til 2002. Sko, 2002 er ekki framtíðin!! Svo var ein kona útí sal sem spurði hver stefnumótunin væri til næstu 5-10 ára, þá var henni svarað með því að hún gæti bara skoðað stefnumótunina frá 1996.... kræst. Þetta fólk er svo innilega ekki með neina framtíðarsýn og veit örugglega ekkert hvað það er..... það þarf að skipta öllu þessu liði út og setja einhverja í þeirra stöðu sem hefur vit á svona hlutum. Ekki hef ég áhuga á að vinna fyrir þetta fólk.... óheppin þau :-) En þessi ráðstefna fær svo sannarlega falleinkunn og aldrei hef ég eytt eins miklum pening í gallaða vöru.....
Fór með 8 ára frænda mínum í Brynju áðan og gaf honum ís. Hann sagði mér að uppáhalds lagið hans væri It´s my life með Bon Jovi.... þannig að setti það á og hækkaði í botn á meðan við rúntuðum um og borðuðum ísinn! Reyndar kom hann með miklar pælingar um stráka og stelpur og endaði þá pælingu á því að segja með að hann væri svona stelpu-strákur.... frábært!!
Erum búin að kaupa okkur web cameru, þannig að núna getið þið horft á mig á meðan ég tala við ykkur á msn..... heppin þið :-)