miðvikudagur
Saumaskapur
Það er ekkert smá sem tíminn líður..... Jæja, tónleikarnir gengu ógeðslega vel um helgina og þetta var ofboðslega skemmtilegt!!
Gamla settið er farið suður þannig að ég er ein heima :-) vei, en það verður samt ekkert partí.... þarf að læra. Hins vegar er ég á gestilista hjá Sent (hljómsveitin frá sprellmótinu) sem eru að fara að spila á Siglufirði á laugardaginn. Þannig að ef einhvern langar með mér á ball á Siglufirði þá bara að bjalla í mig!!
Ég keypti mér buxur um daginn og auðvitað þarf að stytta þær, þannig að ég ætla að ráðst til atlögu í því núna á eftir..... versta er að það þarf líka að þrengja þær örlítið og ég kann það svo engan vegin.... sjáum hvernig þetta fer (vonandi þarf ég samt ekki að skipta um tvinna í saumavélinni því ég kann það ekki...) Þetta reddast samt á meðan ég þarf ekki að prjóna neitt...... það er eitthvað sem ég er alveg vonlaus í. Í Gagganum náði ég að prjóna hálfan ullarsokk á einni önn og í barnaskóla áttu allir að prjóna nálapúða og þegar ég hélt að ég væri búin með minn þá fór ég með hann til kennarans og hún horfði vel og lengi á þetta sem ég hafði prjónað en sagði svo eftir langan tíma "já Kata mín, þetta verður fínasta barbie pils!!!"..... einmitt, ég kann ekki að prjóna!!
Það er allt á fullu í skólanum og er ég að gera ritgerð í ferðaþjónustu um heilsutengdaferðamennsku. Er búin að liggja á netinu yfir allskonar síðum og er farin að þrá að komst í gott nudd...... eins og til dæmis í Bláa lónið ..... annað sem ég er að gera er hópverkenfi í alþjóðaviðskiptum og erum við þar að markaðssetja Popppunkt í Svíþjóð og það er sko skemmtilegt.....
Jæja, er farin að huga að buxunum mínum....

sunnudagur
Töffarar!!!
fimmtudagur
Heimasíða
vííí..... tölvunarfræðingurinn hann bróðir minn hefur loksins sett upp heimasíðu fyrir litlu fjölskynduna sína svo umheimurinn geti fylgst með litla krílinu hans og Stínu. Síðan er enn á byrjunarstigi en það eru þó komnar inn nokkrar myndir af henni Sunnu Kristínu sem er algjört krútt..... Njótið :-)
Fór með símann minn enn eina ferðina í viðgerð og í þetta skipti þarf hann að fara alla leið til Reykjavíkur þar sem það er eitthvað hugbúnaðarfock í honum. Á meðan er ég með gamla Siemens símann minn sem enginn hefur viljað kaupa af mér, en ég get ekki beðið eftir að sá nýji komi aftur úr viðgerð.....
Það er klikk að gera í skólanum, endalaus verkefni og um helgina eru svo Sinfó tónleikar þannig að öll helgin fer í æfingar og svo tónleika á sunnudaginn. Þetta er efnisskráin, fyrir þá sem hafa áhuga:
George Bizet: Suite jeux d´enfants
Joseph Hydn: Trompetkonsert
Manuel deFalla: El amor brujo
Zoltán Kodaly: Dansar frá Galanta
Ógeðslega skemmtilegt allt og drullu erfitt líka. Þannig að þeir sem hafa áhuga, endilega komið í Akureyrarkirkju á sunnudaginn kl.16 :-)

Birna
Hún Birna er búin að setja upp heimasíðu og er mjög skemmtileg lesning, bæði um hana og kynbombuna :-) Birna er í skóla á Laugarvatni og mun útskrifast þaðan bráðum sem íþróttafræðingur.... enda íþróttafrík dauðans... hehe
sunnudagur
100 hlutir um mig
Hérna koma 100 hlutir um mig sem þið vitið sjálfsagt, en ég er bara að passa að þið gleymið þeim ekki :-) Njótið
1. Heiti Katrín Harðardóttir
2. er alltaf kölluð Kata
3. Fædd 8.október 1980 í Gautaborg, Svíþjóð
4. pabbi minn er verkfræðingur
5. mamma er meinatæknir
6. á tvo bræður
7. hefur alltaf langað í systur...
8. ... ekki lengur
9. bræður mínir eru bestir
10. nema þegar Gísli dúndraði mér einu sinni í vegginn heima og það kom hola í hann eftir hausinn á mér.....
11. ég er miðjubarn.....
12. .... það útskýrir ýmislegt
13. ég er með tvö ör
14. eitt á hökunni og annað í munnvikinu
15. ég er klaufi og alltaf með stóra marbletti
16. Bjó í Reykjavík í nokkur ár, Álfheimunum
17. Flutti til Akureyrar 1985 og hef búið þar síðan
18. Gekk í Lundarskóla
19. Gaggann
20. Menntaskólann......
21. ....útskrifaðist þaðan 17. júní 2000
22. er í Háskólanum á Akureyri
23. Viðskiptafræði og útskrifast þaðan í vor
24. æfði júdó þegar ég var 10 ára
25. byrjaði í tónó 8 ára af því að mig langaði að læra á píanó
26. gamla konan sem kenndi mér á blokkflautu bannaði mér að læra á píanó
27. þess vegna spila ég á klarinett
28. kann ekkert á píanó
29. ekki heldur að syngja
30. hætti að læra í tónó 21 árs
31. en spila samt ennþá á rörið mitt
32. ég nota gleraugu
33. og sé illa í myrkri
34. er líka orðin myrkfælin með aldrinum
35. ég er mjög bílhrædd
36. ég er klofinn persónuleiki....
37. ....stundum segist ég vera 5 árum yngri en ég er
38. fólk trúir því
39. fólk segir líka að ég sé klikkuð
40. fólk er fíbbl
41. ég hef húmor fyrir sjálfri mér
42. ég elska nammi
43. ég elska líka að liggja í baði.....
44. .... lengi og borða nammi
45. mér finnst gaman í sundi....
46. ....að liggja í pottinum
47. ætla að verða forstjóri í sundlauginni þegar ég útskrifast
48. nema bæjastjórafíbblið ráði einhvern annan
49. þá ætla ég að flytja til Þýskalands
50. læra þýsku.....
51. ....ekki leika í klámmyndum
52. ég ætlaði alltaf að vinna í sjoppu þegar ég yrði eldri
53. hvern dreymir ekki um það
54. ég hef komið tvisvar til London
55. ég elska London
56. elska gallajakkann minn
57. dýrka símann minn
58. langar í digital myndavél
59. elska líka bjór
60. að drekka bjór með skemmtilegu fólki
61. ég þekki mikið af skemmtilegu fólki
62. ég er nett kærulaus
63. og vinn best undir pressu
64. er líka ógeðslega þrjósk
65. er algjör draumóramanneskja og get gleymt mér í mínum eigin draumum....
66. ... sérstaklega þegar ég á að vera að læra
67. eða sit í tímum
68. finnst gott að kúra
69. líka gott að sofa
70. ég sef mikið
71. er feimin....
72. .....en ekki við fólk sem ég þekki
73. uppáhalds bíómyndin mín er Sódóma
74. keypti hana í Hrísalundi fyrir mörgum árum af því að hún fylgdi með pylsupakka
75. Björn Jörundur er ekki frændi minn....
76. ....vildi samt að hann væri það
77. ég reyki ekki
78. hata sígarettureyk
79. ég á fullt af peningum.....
80. ....er það eina sem ég á nóg af
81. flutti einu sinni að heiman
82. en kom aftur til baka
83. hótel mamma er best
84. hef verið heppin með heilsuna mína
85. er samt með pínu klikkað hjarta sem fer á yfirsnúning ef mér dettur í hug að hreyfa mig....
86. ... enda á maður ekkert að vera að því
87. labba í skólann og það er nóg
88. Karen á heima sjöhunduðogeitthvað skrefum frá mér
89. nema þegar hún býr í Hveragerði, þá er það aðeins lengra
90. mér finnst fólk sem keppir í vaxtarækt ógeðslegt
91. ég hata ketti
92. mig langar ekki í nein dýr....
93. ég hata líka grænmeti
94. sérstaklega soðið grænmeti
95. hata fólk sem segir að maður verði að borða gras....
96. .... það á að borða dýrin en ekki frá þeim
97. ég borða alltaf vanilluskyr frá KEA í morgunmat
98. ég er alltaf með eplaflysjara í skólatöskunni og kakóduft
99. stundum líka dósaopnara
100. Vá, komin uppí hundrað..... gæti skrifað hundrað í viðbót :-)

laugardagur
Drulla!
Ég skal sko segja ykkur það, þessi blessaða ráðstefna var ekkert nema drulla. Úfff, þarna átti að tala um breyttar áherslur í markaðssetningu Íslands.... já, nei nei eitthvað hafa ALLIR misskilið þetta umræðuefni eða hreinlega ekki skilið það.... fólkið baulaði þarna bara eitthvað um fortíðina og komu með endalausar tölur frá 1997 til 2002. Sko, 2002 er ekki framtíðin!! Svo var ein kona útí sal sem spurði hver stefnumótunin væri til næstu 5-10 ára, þá var henni svarað með því að hún gæti bara skoðað stefnumótunina frá 1996.... kræst. Þetta fólk er svo innilega ekki með neina framtíðarsýn og veit örugglega ekkert hvað það er..... það þarf að skipta öllu þessu liði út og setja einhverja í þeirra stöðu sem hefur vit á svona hlutum. Ekki hef ég áhuga á að vinna fyrir þetta fólk.... óheppin þau :-) En þessi ráðstefna fær svo sannarlega falleinkunn og aldrei hef ég eytt eins miklum pening í gallaða vöru.....
Fór með 8 ára frænda mínum í Brynju áðan og gaf honum ís. Hann sagði mér að uppáhalds lagið hans væri It´s my life með Bon Jovi.... þannig að setti það á og hækkaði í botn á meðan við rúntuðum um og borðuðum ísinn! Reyndar kom hann með miklar pælingar um stráka og stelpur og endaði þá pælingu á því að segja með að hann væri svona stelpu-strákur.... frábært!!
Erum búin að kaupa okkur web cameru, þannig að núna getið þið horft á mig á meðan ég tala við ykkur á msn..... heppin þið :-)

Ráðstefna
Þá er komið að því, ég er að fara á mína fyrstu alvöru ráðstefnu á morgun. Það er semsagt ferðamálaráðstefna í Mývatnssveit og þarna verða allir helstu kallar og kellingar í ferðaiðnaðnum í dag. Viðfangsefni ráðstefnunnar er markaðssetning Íslands og verður án efa mjög fróðleg..... ég þarf þess vegna að fara í greiðslu, förðun og finna mér ný föt svo ég líti nú vel út fyrir þetta merkilega fólk. Kannski ég búi mér til nafnspjöld og lummi að einum og einum..... fínt svona þegar maður útskrifast.... annars eru það bara aumingjabæturnar sem bíða!!
En þessi ráðstefna er alls ekki gefins, þótt maður sé bara eitt stykki nemandi þá þarf maður að borga..... við fáum þó 50% afslátt þannig að við þurfum BARA að borga 4.000 í stað 8.000. Jammm, verðum þarna í kannski 5 tíma.... ágætis tímakaup það!!
Best að huga að lúkkinu fyrir þennan dýra atburð.....

ROSALEGT!!
Titillinn segir allt sem segja þarf um föstudaginn..... vááá hvað það var gaman. REKI hitaði upp fyrir mótið á Amor með samlokum, bjór, trommuslætti og söng. Eftir klukkutíma upphitun var svo haldið útá torg þar sem allar deildirnar hittust, þar var sungið, öskrað og bara reynt að hafa eins mikinn hávaða og mögulegt var. Eftir að hafa nýðst all verulega á röddinni var haldið í skrúðgöngu að umferðarmiðstöðinni og hoppað upp í rútu og keyrt útá Þelamörk þar sem keppnin var haldin. Hún gekk mjög vel og þar hélt hávaðinn svo sannarlega áfram..... það var keppt í boðhlaupi, blindraþraut, limbó, kökuskreytingum, átkeppni og reipitogi.... allt saman mjög óhefðbundið. Ég var semsagt ein af dómurunum og það gat verið stressandi.... allir að öskra á mann... en mikið ofboðslega var gaman.... flott Karen í boðhlaupinu. Við vorum á Þelamörk til 16:30 en þá tóku við partí út um allan bæ. Svo var það Sjallinn þar sem söngkeppnin fór fram..... að lokum var svo bikarinn afhentur, það var Stafnbúi sem sigraði í ár en REKI lenti í 3. sæti. Eftir verðlaunaafhendinguna byrjaði ballið....hljómsveitin Sent var að spila og þeir eru ekkert lítið góðir!! Stóðu sig ótrúlega vel og héldu uppi gríðarlegu stuði. Ég, Karen, Beggi og Harpa dönsuðum eins og brjálæðingar..... Karen fór á kostum þegar hún tók tyrkneskan magadans!!! Þvílík snilld.... svona kvöldi er erfitt að lýsa í orðum, set link á myndirnar þegar þær koma.
Laugardagsmorguninn var erfiður..... þurfti að vakna fyrir 11 af því að við þurftum að bera út blöð til að fjármagna útskriftarferðina okkar sem verður vonandi farin í janúar :-) Ég var með einhverja þá verstu strengi sem ég hef nokkurntíman fengið..... líkamsrækt vikunnar var svo sannarlega tekin á föstudagskvöldið...... en líkamsrækt mánaðarins var tekin á laugardeginum. Ég var svo hepppin að lenda í að bera út í einbýlishúsahverfi þar sem tröppurnar ráða ríkjum. Ekki það auðveldasta að labba upp og niður tröppur þegar maður á erfitt með að ganga venjulega...... getið ímyndað ykkur hvernig mér líður í dag.....
Stelpa sem er með mér í skemmtinefnd bætti kjellingar beygluna frá Ólafsfirði alveg upp.... hún spurði mig hvaða ár ég væri fædd og ég sagði 1980 þá kom voða svipur á hana og hún sagði: HA, í alvöru...... þannig að ég spurði hvort hún héldi að ég væri kannski fædd 1985..... þá sagðist hún halda að ég væri jafn gömul henni, eða jafnvel eldri!!! Og vitiði það að hún er fædd 1976!!! hahaha..... þetta finnst mér sko merkilegt og hef aldrei heyrt annað eins áður..... Gaman að því :-)
Þetta er orðið fínt í bili..... lögfræðin kallar en strengirnir kalla samt hærra.....

föstudagur
Sprellmótsdagurinn
Vei vei..... kominn föstudagur og Sprellmótið hefst á torginu klukkan eitt, en REKI mun hittasta á Amor klukkan 12 og hita upp. Síðan verður hávaðakeppni á torginu og svo haldið með rútu útá Þelamörk þar sem við sprellum úr okkur lífið.... segi hvernig þetta verður eftir helgi.
Ég átti semsagt afmæli á miðvikudaginn, 8.okt og vil ég hér með þakka opinberlega fyrir allar kveðjurnar, sms-in, kortin, kossana og síðast en ekki síst sönginn sem Karen og Thelma sungu fyrir mig í skólanum. Takk elskurnar :-) Fékk meira að segja bónorð frá honum Villa, þar sem ég er komin á giftingaraldurinn. Ferlega skrítið að vera loksins orðin 18 ára..... finnst svo stutt síðan ég var lítil 13 ára budda. Reyndar eru sumir enn á þeirri skoðun að ég sé lítil budda.... en er þó orðin 18 ára!!!
Mamma fór með móður sinni og tveim systrum til Kaupmannahafnar í gær, það þýðir að ég er húsmóðirin á heimilinu og elda ofan í gamla manninn. Það fyrsta sem ég gerði eftir að mamma fór var að taka ísskápinn í gegn..... mamma hendir sko ekki neinu og þar er matur engin undantekning. Allir afgangar fá að vera inní ísskáp í nokkurn tíma þótt við vitum að þeir verði aldrei borðaðir.... svo enda þeir í ruslinu á endanum. Ætli pabbi noti ekki líka tækifærið og hendi einhverju eldgömlu drasli úr bílskúrnum..... Hann er allavegna í essinu sínu núna, Pink Floyd hljómar um allt húsið og enginn biður hann um að lækka.
Verð að segja ykkur það að Ólafsfirðingar eru ruglaðir, það er nú ekkert nýtt. En ég var semsagt að spila þar á þriðjudaginn og þangað komu líka nemendur frá Hrísey. Held að þetta hafi verið krakkar uppí 7.bekk. Allavegna, til að gera langa sögu stutta þá sagði einhver kjelling við mig að hún hafi haldið að ég væri einn af nemendunum frá Hrísey..... Jájá, frábært... hvað er maður gamall í 7. bekk...... 12 ÁRA!!!! Ég var meira að segja með gleraugun og allt en nei nei..... ég veit ég er barnaleg en svona barnaleg er ég nú ekki..... bollukinnarnar eru greinilega ekki að gera góða hluti!!
Vona að kommentkerfið komist í lag..... ég bara hinkra, er ekkert nema rólegheitin!!

mánudagur
Fyrsta myndin
laugardagur
Gærdagurinn.....
...heppnaðist alveg ótrúlega vel. Ég kom heim úr skólanum um 4 og þá kom Harpa til mín og við lögðum lokahönd á togarann okkar (skrifuðum nöfnin okkar á hann og úðuðum hann með glimmerúða). Svo var haldið niður á bryggju í þessu líka skemmtilega veðri, ískulda, snjókomu og roki. Við hentum togaranum útí og settumst sjálf á bryggjuna með bjór. Harpa er svo sniðug, hún kom með 2 sólstóla með sér þannig að ég, hún og Beggi fundum okkur skjól, sátum þar, drukkum bjór og kjöftuðum.... ferlega huggulegt. Dómararnir voru ekkert ánægðir með okkur þar sem við gerðum ekkert, en við reyndum að útskýra það að þetta væri togari.... maður kallar ekkert togarana inn í tíma og ótíma. Það ríkti mikil spenna þegar við drógum svo togarann upp...... en enginn fiskur þar. Svo unnum við ekki heldur keppnina um frumlegasta veiðarfærið.... þrátt fyrir að hafa mútað dómaranum!!! En Karen og Thelma urðu í öðru sæti í þeirri keppni og hefðu unnið ef þær væru á sjávarbrautinni.... flott það.
Eftir keppnina ákváðum ég, Harpa og Beggi að skella okkur í pottinn í sundi og það var ekkert smá ljúft... gott að fá hita í kroppinn. Þaðan lá svo leiðin á Tikk Takk þar sem ein vel sveitt og ógeðslega góð nautaloka fékk að renna ljúft niður með bjór og Idol..... fórum sko á Dátann með lokurnar og borðuðum þar.
Svo var það bara heim til Begga í meiri bjór. Ætlunin var að fara á Oddvitann í karókí en það var ekki nógu góður stemmari á staðnum þannig að við fórum aftur á Dátann (fáum sko afslátt af bjór þar). Eftir að hafa setið þar í smá stund mættu Stuðmenn á svæðið til að hita sig aðeins upp og prófa hljóðkerfið. Þá skelli ég mér til Egils og bað hann um að setja mig á gestalista þar sem ég væri fátækur námsmaður.... ekki að spyrja að því, ég fékk meira að segja tvo miða :-) Við vorum svo rekin út af Dátanum kl.12 af því að þá átti Sjallinn að opna. Við út af Dátanum og fórum inn Sjallamegin og beint upp á Dáta í sömu sæti..... ég hef aldrei áður mætt svona hrikalega snemma í Sjallann. Beggi fór heim en Elli kom með í Sjallann. Sátum í smá stund en svo var farið að dansa og það á fullu...... og alveg til 4..... það var svo hrikalega gaman.
Lóa, ég tók lagið okkar og hugsaði sterkt til þín á meðan þeim flutningi stóð..... ætli þú hafir ekki verið hálf dauð niður í bæ á því augnabliki......

Framundan...
... er sko nóg að gera. Jammm, í dag er opna heimsmeistaramótið í dorgveiði og verður það haldið á ÚA bryggjunni. Ég, Harpa Björk og Beggi ætlum að taka þátt og vinna titilinn frumlegasta veiðarfærið. Í gærkvöldi fórum ég og Harpa og stálum einhverjum pramma og það var engin smá ránsferð.... hlógum okkur máttlausar af klaufaskapnum í okkur!! Svo fórum við inní bílskúr heima og bundum veiðilínur við prammann og festum á nokkra öngla og flugur. Þetta var mjög klaufalegt allt saman en ég held að þetta hafi tekist fyrir rest.... það kemur bara í ljós í dag þegar við hendum prammanum í sjóinn.
Eftir keppnina verður farið á Dátann og fylgst með Idol, af því að í þáttnum í kvöld verður sýnt frá þegar leitin var gerð á Akureyri..... gaman að sjá hverjir það eru sem gera sig að fíbbli í þetta skipti. Svo verður endað á Stuðmannaballi og þetta lofar allt saman mjög góðu.
Helgin fer svo bara í lögfræðipróf og eitthvað svoleiðis skemmtilegt..... við erum að byrja á MJÖG spennandi alþjóðaviðskiptaverkefni og ég segi ykkur betur frá því seinna....
Hætti við að versla mér eitthvað fallegt í tilefni útborgunarinnar þar sem ég áttaði mig á því að ég á eftir að borga skatt af þessum pening og svo eiga námslánin mín eftir að skerðast líka.... úfffff, þannig að ég þarf að borga til baka næst en fæ ekki þennan árlega 500 kall til mín.... hrikalegt!!
Well well.... er að fara að hlusta á strákana kynna verkefnið sitt úr MSB keppninni..... og losa fæturnar úr þessari snúruflækju sem er hérna undir borðinu.