þriðjudagur
Myndir
Loksins drattaðist ég með tvær filmur í framköllun sem eru búnar að vera ansi lengi uppí hillu hjá mér. Önnur búin að vera þar í ár en hin mun skemur. Hvað get ég sagt..... jú, ég er allavegna ekki alveg með fulle fem þegar ég er að taka myndir. Ég er ofboðslega mikið fyrir það að taka mynd af mér sjálfri með einhverjum öðrum og ég held að ég verði að hætta því, allt úr fókus og ves. Einnig mikið fyrir það að taka myndir sem ég held að verði ótrúlega listrænar en eru það svo innilega ekki..... voru til dæmis nokkrar myndir úr Hrísey af fótunum á stelpunum og eitthvað svona rugl. Hins vegar verð ég að útnefna Lóu sem módel ársins.... dí hvað ég á mikið af gellumyndum af henni.... enda er hún algjör skutla ;-)
Fékk fyrstu útborgunina fyrir spilamennskuna í dag.... veiiii. Ekki amalegt og ég verð að kaupa mér eitthvað á morgun til að halda uppá það :-) haha
Fer uppí skóla á eftir til að búa til auglýsingar fyrir Sprellmótið..... ég hlakka svooo til.... Sprellmótsins sko, þótt það verði örugglega líka gaman í kvöld!! Á morgun ætlar svo Eva formaður að bjóða REKA stjórninni í mat og halda óformlegann fund, gaman að því.
Vil óska Hölla, Steina, Benna og Siffa innilega til hamingju með magnaðann árangur í MSB keppninni sem var um helgina... þriðja sæti :-)