þriðjudagur
Hitt og þetta
Úfff, fyrstu skólatónleikarnir voru í dag og voru það Húsvíkingar sem voru þess heiðurs aðnjótandi að fá okkur í heimsókn. Versta við þetta er að ég þurfti að vakna klukkan hálf sjö í morgun, skrölta í rútu í klukkutíma, spila þrenna tónleika og skrölta svo aftur til baka. Maður verður ekki bara dofinn í líkamanum á því að sitja í rútu, heldur verður heilinn eitthvað sljór líka... ég komst aldrei almennilega í gang!
Er að huXa um að fara á lúðrasveitaæfingu í kvöld, ekki það skemmtilegasta. Það er til dæmis einn 13 ára strákur sem spilar á trompet og alltaf þegar hann er ekki að spila þá leikur hann sér með trompetinn, ímyndar sér að hann sé riffill og skýtur stjórnandann.... svo er annar sem er í svo miklum mútum að ég hreinlega vorkenni greyið drengnum í hvert skipti sem hann opnar munninn. Gaman að þessu.
Hún Karen á ammæli í dag, til hamingju með það :-) Ætlaði að finna þig uppí skóla og smella á þig einum vel blautum en ég fann þig ekki. Óheppin þú, verður að bíða í ár eftir öðrum svona sveittum....
Annars er það að frétta að ég er ástfangin...... ójá, síminn minn er æðislegur og ég gjörsamlega elska hann.
Ég er líka alveg í skýjunum yfir því að Skjár einn er byrjaður að endursýna fyrstu seríuna af Malcolm.... frábærir þættir og svo er Bjössi búinn að sækja nokkra Family guy þætti á netið!! Takk Gossi fyrir að hafa kynnt okkur fyrir þessum æðislegu þáttum :-) Nú verður sko dansað.
Hall mín, ég er að vinna í slúðrinu..... en takk fyrir ÖLL smsin sem þú sendir mér. Vá, mér leið eins og ég ætti næstum því vini..... 8 sms í röð.....
....kannast einhver við spur???